Vikan


Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 45

Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 45
vatnið, og í spillingunni sem Túra-fangelsið var gagntekið af þreifst hann eins og blóm í eggi. Eins og allir nýfangar varð Lotz að hírast tíu daga í refsi- álmu fangelsins. En líf hans breyttist til batnaðar þegar á fyrsta morgni. Þá kom til hans ránmorðingi að nafni Fattúk, sem var einhvers konar umsjón- armaður í álmunni, klæddur tandurhreinum fangafötum og í gljáburstuðum skóm. „Góðan daginn, herra Lotz!“ sagði hann. „Victor sendi mig. Hvað get ég gert fyrir yður?“ Mínútu síðar hafði Lotz fengið hrein rúmföt í klefann. Berfættur fangi gerði klefann hreinan meðan Lotz sjálfur sat í klefa Fattúks og snæddi egg og skinku í morgun- verð. Lotz trúði naumast eigin aug- um. Fattúk bjó við snotur hús- gögn, niðursoðinn mat, eldunar- plötu og raftengiútbúnað. „Allt er þetta. opinberlega bannað,“ sagði Fattúk glottandi. „En hver sá sem hefur peninga og síga- rettur getur fengið hér næstum allt. Til dæmis leggur fangelsis- rafvirkinn rafmagn inn til þín fyrir áttatíu sígarettur." Leið nú ekki á löngu áður en Lotz fór að sjá framtíðina í bjartara ljósi. Hann vissi að ísraelska leyniþjónustan myndi greiðlega borga fangelsisreikninga hans gegnum lögfræðing sinn í Miin- chen og vestur-þýzka konsúlatið í Kaíró. Á ellefta degi fangelsisvistar- innar var Lotz settur í deildina fyrir pólitíska afbrotamenn, og fékk númerið 388. Á múrnum, sem umlukti þessa fjögurra hæða byggingu, spásséruðu her- menn með vélbyssur. Þegar Lotz var leiddur inn gegnum tröll- aukið múrhliðið kom smávax- inn, gráhærður fangi á móti honum með útbreiddan faðminn — Victor! Victor fylgdi Lotz upp á fjórðu hæð. Þar beið þeirra þreklegur, húðdökkur yfirlið- þjálfi. „Þetta er nú varðmaður- inn okkar,“ sagði Victor. Varð- maðurinn tók geysistóran lykil upp úr vasa sínum og opnaði klefadyrnar. Klefinn hefði komið kunnug- legar fyrir sjónir í konungshöll en í fangelsi: nýmálaðir veggir, rekkjuvoðir, rafljós og olíumál- verk hangandi uppi á vegg. „Allt er þetta þægilegt að hafa þótt bannað sé,“ sagði Victor hlæj- andi. Fangi einn kom inn í klef- ann með ilmandi te. „Múhameð heitir hann,“ sagði Victor, „og er þjónninn þinn.“ Múhameð heilsaði sínum nýja herra með kossi á handarbakið. Meðan þeir drukku teið út- skýrði Victor reglur hússins. Þar eð starfslið fangelsisins var mjög illa launað voru mútumöguleik- arnir ótakmarkaðir, og hinar opinberu fangelsisreglur voru ekki til nema á pappírnum. Samkvæmt þeim áttu fangarnir að vera einangraðir hver frá öðrum, en þess í stað gat varla heitið að klefadyrnar væru nokkurn tíma læstar. Síðar um daginn hitti Lotz „Túra-aðalinn“ í fangelsisgarð- inum. Victor kynnti hann þar fyrir hópi sællegra herramanna. „Má ég kynna nýjasta aðila sam- félags okkar — herra Lotz!“ sagði Victor. Herramennirnir heilsuðu þessum „Almani“, sem þeir héldu vera, mjög hjartan- lega. Þeir voru flestir Egyptar. Þar á meðal var Abdúl Rakman Salim, sem dæmdur hafði verið í tíu ára fangelsi fyrir þjónustu við bandarísku njósnastofnun- ina CIA, Karem ísmail, sem fengið hafði fimmtán ár fyrir njósnir fyrir sömu stofnun, Ak- med Lufti, dæmdur í tuttugu og fimm ára fangelsi fyrir njósnir fyrir brezku leyniþjónustuna og dr. Asseddín Abdel Kader, dæmdur til tuttugu og fimm ára fangelsisvistar fyrir pólitísk af- glöp. Lotz sagði: „Það leynir sér ekki að ég er í bezta hugsanlega félagsskap.“ Svo heilsaði hann ókrýndum konungi Túra, svip- miklum manni með hátt enni og gáfuleg, vingjarnleg augu. Hann var Mústafa Amín, fyrrum mesti blaðaútgefandi í Austurlöndum nær og náinn ráðgjafi Nassers. Hann var sá eini í fangelsinu sem ávarpaður var með titlinum „Bey“. Mústafa Bey sat í Túra sökum andstöðu við stefnu Nass- ers í skiptunum við Sovétríkin, sem hann taldi of vinsamlega. CIA-njósnarinn Abdúl Rak- man hughreysti Lotz á lýta- lausri Oxford-ensku. „Það er alls ekki sem verst hérna, vinur minn. Viljið þér ekki borða há- degisverð með mér á morgun? Þjónninn minn er frábær mat- sveinn!" Sérréttindafangarnir lifðu eins og miðaldagreifar eða sam- kvæmisljón á bak við grindurn- ar ,en á öðrum hæðum fangels- isins voru lífskjörin öllu bág- legri. Þar voru örþröngir klefar troðfullir af grindhoruðum föng- um, vesælum og bjargarlausum fórnardýrum duttlungafulls ein- ræðisherra. Flestir þeirra voru úr svokölluðu Bræðralagi Mú- hameðstrúarmanna. Meðan Wolfgang Lotz lifði góðlífi meðal mikilvægustu and- stæðinga Nassers sat frú Wal- traud í Kanaterfangelsi og drap tímann með því að prjóna peysu á mann sinn. Samfangar hennar voru flestar óbrotnar alþýðu- konur, þar á meðal margar sem sálgað höfðu eiginmönnum sín- um, oftast nær fyrir ærnar sak- ir. Henni líkaði dável við þær. Þannig liðu tvö ár. Um morg- uninn fimmta júní 1967 hrökk Lotz upp úr værum blundi í klefa sínum við sprengidynki í fjarlægð. Loftvarnaflautur ýldu. „Heyrirðu!" hrópaði Abdúl Rak- HEILBRIGÐI HREINLÆTI VELLÍÐAN Bodedas-bflð Vítamín í hverjum dropa Badedas-vftamín Er mest selda bað Evrópu í dag II. A. Tnlinias heildverzlnn VIÐARÞILJUR í miklu úrvali. * Viðartegundir. eik, askur, álmur, beyki, lerki, fura, valhnota, teak, mansonia, caviana. HiARÐVIÐUR og þilplötur, ýmsar tegundir. PLASTPLÖTUR, Thermopal, ýmsir litir. * Harðviðarsalan sf. Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670. F 4» GEIIIT ÁSKBIFENDin POSTHÓLF 533 SlMI 35320 REYKJAVfK «• tbl. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.