Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 5
:
mi'/L
Sacha Distel
hamingjusamur
Sacha Distel er greinilega bú-
inn að ná sér eftir vonbrigðin
með Brigitte Bardot forðum.
Hann sér heldur ekki út úr því
sem hann hefur að gera. í sum-
arfríinu skrapp hann til Tahiti
með Francine, konunni sinni, en
þau söknuðu svo barnanna að
þau flýttu sér heim og eyddu
síðustu frídögunum með börnun-
um, Laurent, sem er fimm ára
og Julien, sem er tveggja, í St-
Tropez. Eftir það fór Sacha í
tveggja vikna söngferðalag um
Suður-Frakkland, þar sem hann
gerði mikla lukku. I september
var hann svo í Köln við sjón-
varpsupptöku og þaðan fór hann
til París til hljómplötuupptöku,
svo það er greinilega áskipaðir
dagar hjá honum. Þegar hann er
spurður hvort hann sé ekki
þreyttur, segir hann: — Ég safn-
aði svo miklu sólskini í sumar-
leyfinu að mér dugir það allt ár-
ið.
☆
Bæði með rúllur
í hárinu
Það er ekki bara dans á rósum
að vera hippi. Maður verður að
hugsa vel um hárið á sér, þvo það
í tíma og ótíma, og ekki dugir að
hafa það alveg rennislétt alla leið
niður á rass. Þessi mynd er ofur-
lítil sönnun þess og hún leiðir
okkur líka fyrir sjónir, að ung og
nútimaleg hjón verða bæði að
iiggja með rúllur í hausnum á
nóttunni. Aumingja þau!
# vísur vikunnar
Galdramenn kveða
Stattu kyrr á gólfi, grár,
í guðs nafni ég særi þig,
hrærðu þig ekki heljar ár;
en herrann Jesú styrki mig.
Heklugjá er heljar-krá,
henni gusar eldur frá;
stofuna þá ég stefni þér á,
stað skalt’ engan betri fá.
Séra Magnús á Hörgslandi
(Úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar)
Fífldjarfi lávarðurinn
Brezkur lávarður, Gretton að
nafni, fékk skyndilega löngun til
að láta festa sjálfan sig og dirfsku
sína á léreft, svo að eftirkomend-
ur hans hefðu óynggjandi sönn-
un um hreysti og hugrekki hans.
Hann fékk listmálara til að mála
af sér mynd við hliðina á ljóni.
Auðvitað var ljónið tamið, en
engu síður vogaði lávarðurinn sér
ekki að halda því fast upp að sér,
rétt eins og hann væri með ung-
barn í fanginu. Málarinn fékk
hins vegar það hlutverk að hag-
ræða svolítið veruleikanum eins
og sjá má á myndinni. -p;
Gamla fólkið trúir öllu.
Miðaldra fólkið tortryggir
allt. Og unga fólkið veit
allt.
46. tbi. VIKAN 5