Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 12
mm
EFTIR LUPUS
Jil HKIOBN
Alþýðuflokkurinn átti
lengi erfitt uppdráttar á því
landssvæði, er nú kallast
Norðurlandskjördæmi
vestra. Helzt mátti hann sín
nokkurs á Siglufirði og
keppti um þingsætið þar
með sæmilegum árangri eft-
ir að kaupstaðurinn varð
sérstakt kjördæmi og skilinn
frá Ey j af j arðarsýslu. Mál-
svari hans, Erlendur Þor-
steinsson, beið þó lægra hlut
fyrir Áka Jakobssyni fyrrum
bæjarstjóra og síðar ráð-
herra þrjú skipti í röð, en
Áki vék úr Sósíalistaflokkn-
um eins og þreyttur heldri
jnaður og gaf ekki kost á sér
til framboðs við kosningarn-
ar 1953. Erlendur varð samt
enn af hnossinu þráða, þvi
að Einar Ingimundarson
bæjarfógeti vann yfirburða-
sigur á Siglufirði í umboði
Sjálfstæðisflokksins.
Hræðslubandalag Alþýðu-
flokksins og Framsóknar-
flokksins 1956 gerbrey tti
bins vegar pólitískum við-
horfum þar í kaupstaðnum.
Reiknaði Gylfi Þ. Gíslason
með Harald Guðmundsson
og Hermann Jónasson sem
prófdómara Áka .Takobsson
inn i Alþýðuflokkinn og
þóttist liafa vænan drátt á
öngli. Bauð Áki sig fram í
hinu gamla kjördæmi sínu
og felldi Einar Ingimundar-
son hárri sniðglímu. Einar
launaði bonum hins vegar
lambið grátt við fyrri kosn-
ingarnar 1959. Lá Áki kylli-
flatur og líkt og í roti og
vissi ekki, hvaðan á sig stóð
veðrið. Gylfi mun enn Iiafa
reiknað af sínum vélræna
dugnaði, en Áki heyrði ekki
tölur bans eða útskýringar
og bar sig eins og sært dýr í
skógi, er skríður í leyni til
að deyja. Tók hann ekki i
mál framboð í Norðurlands-
kjördæmi vestra liaustið
1959. Þá skaut Jóni Þor-
steinssyni upp allt í einu eins
og varamanni á fyrsta borði
i skáksveit. Sýndist honum
ósigur vís, en Jón tefldi
meistaralega og kom mjög á
óvart. Mun enginn hafa
undrazt frammistöðu hans
meira en Áki Jakobsson, er
látið bafði sér happ úr liendi
sleppa.
Jón Þorsteinsson fæddist
21. febrúar 1924 á Akureyri,
sonur Þorsteins .Tónssonar
verkamanns þar og konu
hans, Guðrúnar Guðmunds-
dóttur. Þótti sveinninn efni-
legur og var settur til
mennta. Varð Jón stúdent í
höfuðstað Norðurlands 1944,
en las síðan lög við Háskóla
íslands og laulc prófi í þeim
fræðum 1949. Hann var full-
trúi hjá bæjarfógetanum í
Vestmannaeyjum sumarið
1949, en rak svo málflutn-
ingsskrifstofu á Akureyri
1950—1954. Jón Þorsteins-
son var lögfræðingur Al-
jjýðusambands íslands 1955
1960, en hefur liaft fram-
færi af málfærslu og nefnda-
störfum upp frá því jafn-
hliða þingmennsku. Situr
Iiann löngum i Reykjavík,
en á lögheimili norður á
Blönduósi.
Skólabræður Jóns Þor-
steinssonar vissu stjómmála-
skoðanir bans, enda er mað-
urinn ófeiminn og segir
gjarnan bug sinn. Samt gaf
bann sig lítt að þjóðmálum
framan af og beið færis.
Honum bauðst efsta sæti á
lista Alþýðuflokksins í Norð-
urlandskjördæmi vestra
haustið 1959, þegar Áka Jak-
obssyni blæddi. Keppti Jón
vasklega, blaut 495 atkvæði
ög varð landskjörinn. Jók
bann fylgi sitt 1963 og hélt
þingsætinu, þó að liöllum
fæti stæði, en gat sér enn
meiri orðstir 1967. Hreppti
Jón þá 652 atkvæði í kjör-
dæminu og aðeins átján
færri en Björn Pálsson á
Löngumýri, er rak lest hinna
héraðskosnu á þessum slóð-
um. Virtist Jóni uppbótar-
þingsætið naumast áhyggju-
efni framar, en nú læzt hann
munu víkja brott úr höllinni
við Austurvöll, þegar bann
fer að anga að vori. Vaka
annaðbvort fyrir honum at-
vinnubagsmunir eða brögð í
tafli.
.Tón Þorsteinsson er mað-
ur skarpgreindur, stálminn-
ugur og skjótráður, vel máli
farinn og ritfær, skeleggur
og svo framgjarn, að fáir
þykja bonum kappsamari.
Kveður að honum i orða-
seririum, hvort heldur í ein-
rúmi eða á málfundum. Ilins
vegar er hann einþykkur og
slríðlundaður og lætur eng-
an veginn misbjóða sér. Sam-
herjum finnst liann því rek-
ast illa i flokki, en andstæð-
ingar bafa beyg af honum.
Jón telst ihaldssamur í af-
stöðu, vantrúaður á fræði-
kenningar og mannasetning-
ar og óþægilega ráðríkur og
breinskilinn. Mun hann
löngu þreyttur orðinn á
stjórnarsamvinnu Alþýðu-
flokksins við Sjálfstæðis-
flokkinn, en lítt fýsandi þess
12 VIKAN «• tw.