Vikan - 12.11.1970, Page 38
FRÁ RAFHA
56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill).
Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322
vonzka hans lifði meðal lifenda,
sem höfðu einhver samskipti
haft við hann. Cissi varð æ viss-
ari um að nafn þessa manns var
lykillinn að leyndardómnum um
Mikael. Gat Leo verið faðirinn
og Katja móðirin? Til þess að
komast að því rétta var Cissi
hér nú, en hún vissi ekki hvern-
ig hún ætti að setja þá spurningu
fram. Hún varð fyrst að vinna
traust stúlkunnar.
— En foreldrar þínir hefðu
skilið þetta, ef þú hefðir trúað
þeim fyrir því.
— Hann bannaði mér að gera
það! Hann hótaði að láta vísa
mér úr landi, ef ég gerði það.
Katja hvæsti þessi orð, hatrið
sagði til sín.
— En nú er Leo dauður. Hvers
vegna ferð þú ekki, til þeirra
núna?
—- Hvað heldurðu að þau
hugsi, ef ég færi að nálgast
þau núna, eftir heilt ár, og eftir
að hafa lifað sem vændiskona
allan þennan tíma? Gleymdu því
ekki að Pólverjar hafa svolítið
aðrar hugmyndir um siðgæði en
Svíar, og þess utan erum við
kaþólsk.
— Eg held þú metir of lítils
ást þeirra á þér. Þau munu fyr-
irgefa þér.
— Ef ég væri örugg um það!
Það var örvænting í rödd
stúlkunnar.
— Ætlaðir þú að biðja Samson
að komast að því fyrir þig?
Katja kinkaði kolli og leit nið-
ur á skóna sína.
— Og einn daginn hittir þú
líka Willie og hann varð ástfang-
inn af þér. Hvers vegna hljópst
þú frá honum?
— ííg hljóp ekki frá honum!
Eg....
— Þú faldir þig fyrir honum!
Og eftir að þú komst aftur í
gærkvöldi, þá flýðir þú líka frá
honum. Veiztu ekki að hann
elskar þig?
— Hann heldur því fram, en
það getur aldrei orðið neitt var-
anlegt á milli okkar. Ég verð
send til Póllands, um leið og yf-
irvöldin komast að því að ég er
hér.
— Vitleysa, þú getur fengið
hér hæli sem flóttamaður, eins
og aðrir!
— Það held ég ekki. Ekki
þegar þeir komast að því að ég
er búin að vera hér svona lengi
skilríkjalaus. Ekki þegar þeir
komast að því hvernig ég hef
séð fyrir mér.
— Ert þú. . . . Cissi átti erfitt
með að finna rétt orð. — Ert þú
ennþá.. . . ?
— Nei, ekki lengur. Eg er bú-
in að hitta aðra Pólverja, sem
hafa hjálpað mér. Þau hafa ver-
ið mér einstaklega góð. En þetta
getur bara ekki gengið lengi.
— Ég held að þú vanmetir
Willie, Katja. Hann getur hjálp-
að þér, ef þú gefur honum tæki-
færi til þess.
Katja leit upp, hræðsluleg en
áköf um leið.
— Heldurðu það í raun og
veru?
— Já, ég er viss um það. Og
þú þarft ekki að óttast Leo leng-
ur. Veiztu ekki að það er búið
að finna flugvélarflakið?
Það var greinilegt að Katja
vissi það ekki. Hún reis til hálfs
upp af bekknum og starði undr-
andi á Cissi.
— Nei, ég hef ekki heyrt það!
Hafa þeir fundið eitthvað ann-
að? Ég á við hvort hann. . . .?
— Já,’það var sagt að eitt-
hvað hefði verið athugavert við
lendingartækin. Að þau hefðu
líklega verið í ólagi áður en hann
fór af stað frá Finnlandi. En nú
finnst mér að þú ættir að fara
heim í Ryttmástergötu. Fyrst til
Willie og svo til.. . •
— Nei!
Þetta var eins og neyðaróp.
Katja stóð upp, sneri baki í
Cissi og tók til fótanna.
Cissi þaut líka af stað, en það
var of seint. Katja hljóp svo
hratt að hún var komin alltof
langt á undan. Cissi hefði ekki
getað náð henni, þótt hún legði
blöðin frá sér.
— Katja!
En stúlkan var horfin.
Þegar Cissi kom heim kom
tónaflóðið á móti henni. Þau
höfðu með sameiginlegum átök-
um flutt flygilinn inn í innsta
herbergið í íbúðinni, en samt
mátti heyra hljóðfærasláttinn,
þótt allar dyr væru lokaðar.
Cissi varð óróleg. Skyldi Mika-
el hafa vaknað og legið öskr-
andi, án þess að Sten heyrði til
hans. Hún þaut inn í svefnher-
bergið.
En ótti hennar var ástæðulaus.
Drengurinn lá rólegur í nýja
rúminu og svaf vært. En dásam-
legt. Það var greinilegt að hljóm-
listin truflaði hann ekki. Þá var
einu vandamálinu minna.
Meðan kartöflurnar voru að
sjóða, settist hún við eldhús-
borðið og fór að fletta dagblöð-
unum. Þar var lítið sagt annað
en það sem hún vissi nú þegar
um hvarf Leos van der Heft.
Hún sat lengi og virti fyrir sér
andlitin á myndunum. Andlit
Leos var blíðlegt og brosandi.
Engum gat dottið í hug að þetta
hefði verið annað en notalegur
ungur maður. Þess utan var
hann óvenjulega laglegur. Það
var ekki svo skrítið að konur
hefðu fallið fyrir honum.
Var hann faðir Mikaels? Cissi
reyndi að finna einhvern svip,
sem gæti bent í þá átt, en án ár-
angurs. Og hver gat þá verið
móðirin? Katja, ástmey Leos?
Sylvia, konan hans? Og hver gat
hafa eyðilagt tækin í vélinni?
38 VIKAN tbi.