Vikan - 03.12.1970, Blaðsíða 6
brjósta-
stækkunartækið
ásamt fullkomnum nuddáhöldum
ARO-LADY gefur brjóstum yö-
ar nýjan lífsþrótt og er ein-
staklega áhrifamikið fyrir lítil
og slök brjóst.
Hinn einstæði fíngerði útbún-
aður ARO-LADY tækjanna
gerir yður kleift að nota þau
hvar og hvenær sem er, enda
eru þau knúin rafhlöðum og
tryggja þess vegna áhættu-
lausa og þægilega notkun.
ARO-LADY starfar sjálfvirkt
að fegurð yðar á meðan þér
hvílizt frá önnum dagsins.
ARO-LADY sér ekki eingöngu
um velferð brjósta yðar, það
hjálpar yður einnig til að
halda æskufegurð, frískleika
og reisn frá hvirfli til ilja.
SKILATKYGGING
Skilyrðislaus trygging yður til
handa fylgir kaupunum á
ARO-LADY tækjunum þ.e.a.s.
ef þér teljið að tækin standist
ekki auglýst notkunargildi, þá
mun Heimaval endurgreiða yð-
ur tækin umyrðalaust, innan
14 daga eftir að þér móttakið
þau.
Póstleggið afklippinginn
Látið ekki hjá líða að klippa
út afklippinginn hér að neðan
og senda hann til HEIMA-
VALS og munum við senda
yður um hæl nánari upplýs-
ingar um ARO-LADY í venju-
legu sendibréfi um leið og
hann berst okkur í hendur.
SIMI 22003.
Prentstafir
Vinsamlegast sendið mér nánari upplýsingar um ARO-LADY-
brjóststækkunar- og nuddtækin mér að kostnaðarlausu og án
skuldbindinga frá minni hálfu. 181070—M.
Heimilisf
HEI MAVALER&Sogi 39
'j
Imm,
Vinsælir
samkv
Það er öruggt merki um aldur og afturför,
ef menn eru hættir að geta leikið sér.
Sumum þykja samkvæmisleikir skelfing bjána-
legir, og fitja upp á nefið, ef á þá er minnzt.
En ef þeir eru leiknir með hinu eina og
rétta hugarfari: fersku ímyndunarafli
og ósviknu fjöri, - þá má hafa af þeim mikið
gaman. Yfir jólin gefst gott tækifæri til
að fara í leiki.
NÚMERALEIKURINN
Hann byrjar með því, að allir
þátttakendurnir sitja í hring á
stólum. Einn stóllinn á að vera
auður. Þátttakendurnir eru núm-
eraðir eftir því hvar þeir sitja. Sá
sem hefur stólinn á vinstri hönd,
kallar upp eitthvað númer og á
þá sá, sem hefur það númer að
flýta sér í auða stólinn. Nú fær
annar þátttakandi auða stólinn
vinstra megin við sig, og á hann
þá að flýta sér að kalla upp núm-
er. Ef hann gleymir því, er hann
úr leik, og um leið er einn stóll
fjarlægður. Leikurinn heldur
áfram, þar til aðeins þrír eru eft-
ir og hafa þeir unnið leikinn.
HRINGURINN
FERÐAST
Þátttakendurnir sitja í hring
nema einn sem stendur í miðj-
unni. Þeir sem sitja halda allir
í langa snúru. Á snúrunni ,er
hringur og nú er um að gera að
láta hringinn ferðast á milli
manna, svo að lítið beri á. Sá
sem er í miðjunni, verður að vera
vel á verði til þess að sjá hver
er með hringinn. Þegar hann hef-
ur fundið „hringþjófinn“, má
hann setjast, en „þjófurinn“
lendir í miðjunni.
FINGURBJARGAR-
LEIKURINN
Byrjað er á því að velja pró-
fessor. Síðan fara allir aðrir út
úr stofunni og á meðan felur
hann fingurbjörgina. Þátttakend-
urnir eru kallaðir inn og hefja
nú leitina. Um leið og einhver
þeirra kemur auga á fingurbjörg-
ina, sezt hann niður án þess að
segja neitt. Sá, sem síðastur
finnur fingurbjörgina tapar, en
sá sem fyrstur kemur auga á
hana, verður prófessor næst.
6 VIKAN-JÓLABLAÐ