Vikan


Vikan - 03.12.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 03.12.1970, Blaðsíða 30
♦ hrædd um að Sylvia grunaði hvers vegna hún hefði komið. En Cissi þurfti ekki að vera hrædd um það. Ég kem fljótt aftur, það tekur ekki nema fimm mínútur að laga kaffi. Um leið og Sylvia var farin opnaði Cissi albúmið. Hún fletti þangað til hún kom að þeirri opnu, sem hún hafði verið að skoða síðast, svo fletti hún áfram. Það voru éintómar mynd- ir af samkvæmum, — margt fólk. Sumt þekkti hún, sumt ekki. Katja var á mörgum. Að lokum fann Cissi það sem hún var að leita að. Það var andlit, sem hún þekkti. Hún sá þetta andlit við hliðina á litlum sport- bíl. Cissi lokaði albúminu. Þeg- ar Sylvia kom inn með kaffi- bakkann spurði hún: Áttu bíl, Sylvia? — Já, reyndar. Hann hefur staðið við Valhallevag síðan, — síðan Leo hvarf, en ég fór til að sækja hann í dag. Hvers vegna spyrðu? Veena þess að ég sá bíl hér fyrir utan, bíl, sem ég hafði ékki séð áður, sagði Cissi. Mér datt bara í hug að þú ættir hann. Það er rauður Porsqhe. Já. það er rétt. Revndar átti Leo hann, en hann gaf mér Sylvia van der Heft opnaði ekki fyrr en Cissi hafði hringt tvisvar. Hún var náföl, með dökka bauga undir augunum og hárið, sem annars var svo vel hirt, var nú úfið. Fyrirgefðu, Sylvia. Þú hef- ur kannske legið fyrir? SylVia hló kuldalega. Nei, síður en svo, það er nú frekar öfugt. Ég hef ekki getað sofið síðan. . . . — Ó. Ertu veik? spurði Cissi. Það var greinilegt að Sylvia var mjög æst. Veik? Það getur verið. Ég veit það ekki. En komdu inn fyrir, ef þér er sama um allt þetta rót. í stofunni var allt á öðrum endanum. Bækur höfðu verið rifnar úr hillunni og lágu út um allt. Skrifborðsskúffurnar voru opnar og innihaldið úr þeim var dreift á stólana. Er það víst að ég trufli þig ekki, Sylvia? Alls ekki. Ég er bara að leita, — leita að nokkru. Viltu kaffi? — Já, takk, það vil ég gjarn- an! Cissi langaði ekkert í kaffi, Eitt gott hafði þó þessi undariega saga haft í för meff sér, Katja myndi bráðlega hitta foreldra sína. En einn þráðinn vantaði ennþá, þann sem lá til móður Mikaels... 10. HLUTÍ Það var stutt í grátinn hjá Cissi. Hvaða hlutverki gegndi Sten í þessari dularfullu sögu. Við hvern var hann að tala í símann og hvert var hann far- inn? Og svo var peningavanda- málið, hvar áttu þau að fá pen- inga? Útgjöldin voru alltof mik- il. Hvernig skyldi vera ástatt með að greiða húsaleiguna? Reyndar var hún ekki mjög há, en hún varð að greiðast! Cissi gekk að skrifborðinu og leitaði undir bréfapressunni. Jú, þarna lá húsaleigurei'kningur- inn með nafni fasteignasalans; Esplanaden 1. Það var eitthvað kunnuglegt við þetta heimilis- fang. Cissi hafði séð það fyrr. Já, og það alveg nýlega. Svo mundi hún það. Van der Heft stofnunin! Hún greip símaskrána og blað- aði áköf í henni, en missti hana svo í gólfið. Þetta hús, Rytmast- ergata 6, var þá líka í eigu tengdaföður Sylviu, Otto van der Heft! Cissi kólnaði upp. Og hún hafði alltaf verið að dásama hve heppin þau voru að fá þessa íbúð fyrir svona sanngjarna leigu. Nú mundi hún líka eftir tortryggninni, sem hún hafði orðið vör hjá Elisabeth Sture og frú Skopalski. Þær hafa grunað að það væri ekki bein hending að þau hefðu fengið íbúð í þessu FRAMHALDSSAGA EFTIR LENA LOUIS húsi, sem bráðlega átti að rífa. Hvaða samband var milli Stens og van der Heft konsúls? Milli hins þekkta auðkýfings og bláfátæks tónlistarnemanda! Eitt var víst, menn eins og van der Heft láta ekki neitt af mörkum fyrir ekki neitt. Hann hlaut að hafa krafizt einhvers af Sten fyrir vikið, en hvað gat það verið? Hún gat ekki látið sér detta í hug hvaða skýring væri á þessu. Það var aðeins einn staður í þessu húsi, þar sem hún gat gert sér vonir um að finna svar við þessari gátu. Og þangað fór hún. . . . en hún sagði já, til þess að geta verið ein í stofunni, meðan Syl- via færi fram til að hella upp á könnuna. Hún sá nefnilega að myndaalbúmið lá í sófanum. Þetta var sama albúmið og Syl- via hafði tekið af henni í fyrra skiptið sem hún kom þarna. Cissi gaut augunum til Sylviu og skammaðist sín fyrir að vera með þetta undirferli og var líka 30 VIKAN-.TÓLABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.