Vikan


Vikan - 03.12.1970, Síða 27

Vikan - 03.12.1970, Síða 27
„Hin svokallaða „upplausn“ síðustu ára hefur frelsaS okkur undan oki úreltra skoðana, venja og skipulags. Fólk hefur vaknað til meðvitundar um sitt eigið sjálf....“ PÉTUR EINARSSON LEIKARI: Jafnoki atómvoðans Því miSur hlýt ég aS telja að heimurinn hafi farið versnandi; horf- ur í friðarmálum hafa ekki batnað, bilið milli ríkra og snauðra hefur breikkað og i ofanálag við ógn atóm- sprengjunnar komið mengunin. Hún hefur einmitt fyrst og fremst komið til sögunnar þennan áratug sem full- kominn jafnoki atómvoðans; hún þarf ekki að eyðileggja nema einn hlekk í keðju lífsins á jörðunni til að öll keðjan verði að engu. DR. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON, LEKTOR: Verðum að varast vítin Hvort heimurinn hafi batnað eða versnað á síðasta áratug er ein þess- ara spurninga, sem aldrei verður gerð fullnaðar skil og ógerlegt er að svara sómasamlega í stuttu máli. í fyrsta lagi fer svarið eftir almennu viðhorfi til gæða heimsins: hvert mat viðkomandi leggur á efnahags- Iegar framfarir, tekjuaukningu og ýmiss konar þægindi, eða hvort hann metur meira frið á jörð, fagurt um- hverfi og annað sem ekki verður beinlínis talið í peningum. I öðru lagi er svarið háð því hvaða hlutar heimsins eru taldir mikilvægari en aðrir. Bændur í Vietnam, sem í upp- hafi áratugsins ræktuðu óáreittir jörð sína, sáðu og skáru upp, búa nú vjð sviðna velli, brennda bústaði og aðra óáran styrjaldar. Börnin í Bi- afra, sem áður lifðu friðsömu lífi með foreldrum og öðrum ættmönn- um, eru nú velflest munaðarleys- ingjar og þjökuð vegna næringar- skorts. íbúar þessara heimshluta og margra annarra búa þannig við verri aðstæður en áður fyrr. Hinar auðugu heimsálfur, Evrópa og Ameríka, geta hinsvegar fagnað margvísleg- um framförum, aukinni hagsæld og velmegun. Afrakstur iSnbyltingar- innar miklu hefur haldið áfram að falla að mestu leyti í þeirra skaut. Þær gjafir hafa þó í æ ríkara mæli reynzt gallaðar. Hin gífurlega meng- un lofts og vatns, sem nú er á hvers manns vörum, hefur gjörbreytt gæðamati milljóna manna. Það sem áður var talið grundvöllur aukinnar farsældar hefur æ oftar í reynd orð- ið hinn mesti skaðræðisvaldur. Ibú- ar stórborganna í Evrópu og Ameríku munu eflaust þrátt fyrir aukin efna- hagsgæði telja heiminn hafa versn- að á síðustu árum. Þegar drykkjar- vatn nálgast eiturstigið, allt líf deyr í vötnum og andlitsgrímur eru nauð- synlegar á götum úti, þá er óhjá- kvæmilegt að matið á lífsgæðunum breytist. Framfarir á íslandi hafa blessunarlega enn sem komið er að mestu verið lausar við hin neikvæðu eftirköst iðnbyltingarinnar. Okkar litla heimshorn, náttúra landsins, heilnæmt loft og ferskt vatn, eru í æ ríkara mæli að verða öfugdarefni annarra þjóða. Eigi næsti áratugur að vera okkur eins góður og hinn liðni, verður að varðveita vel þessi gæði. Ef við viljum eignast betri heim, verðnm við að varast víti annarra. Því hvað stoðar það mann- inn þótt hann eignist allar verk- smiðjur veraldar, ef hann hættir að geta andað. ÁSDÍS SKÚLADÓTTIR KENNARI: Eilítið skárra að vera kvenmaður Svar við þessari spurningu er háð því hvar staldrað er við og hvert litið. Það sem mér finnst mest um vert er, að fólk er frjálsara í allri hegðun og atferli. Hin svokallaða „upplausn" siðustu ára hefur frels- að okkur undan oki úreltra skoðana, venja og skipulags. Fólk hefur vakn- að til meðvitundar um sitt eigið sjálf. Eilítið skárra er að vera kven- maður í „veröld karlmannsins". For- dómar í garð kvenmanna eru ekki eins magnaðir (þó magnaðir séu). Skilningur er að vakna á því að konur eru „EKKI HÓPSÁLIR HELD- UR EINSTAKLINGAR". VIKAX-JÓLABLAÐ 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.