Vikan - 03.12.1970, Qupperneq 31
hann, þegar hann missti ökuleyf-
ið fyrir glannalegan akstur. En
Leo notaði hann samt alltaf.
— Þótt hann hefði ekki öku-
leyfi? Ók hann án þess?
— Nei, síður en svo. Hann lét
aðra keyra fyrir sig.
Cissi kinkaði hægt kolli. Nú
vissi hún hver hafði eyðilagt
tækin í vél Leos, hvenær það
skeði og hvers vegna. . . .
Það var þetta venjulega hálf-
rökkur í stiganum, þegar Cissi
gekk niður. Há þrepin voru úr
kalksteini og birtan féll á þau
gegnum mjóa gluggana og lýsti
upp fornaldardýrin eins og hvít-
gula bletti. Þar sem lengi var
búinn að vera þessi óþolandi
hiti, var loftið í stigaganginum
þungt og mollulegt.
Þegar Cissi hringdi dyrabjöll-
unni leið góð stund þangað til
hún heyrði silalegt fótatak inn-
an við dyrnar. Eins og venju-
lega opnaði Sara Skopalski að-
eins rifu á dyrnar. Hún var
hræðsluleg á svipinn og Cissi sá
í augum hennar að hún hafði
verið að drekka. Og hún varð
viss í sinni sök, þegar hún fann
vínlvktina.
— Já, hvað vantar yður?
Tortryggnin leyndi sér ekki og
Cissi gat ekki varizt þeirri hugs-
un að konuna grunaði erindi
hennar.
— Ég ætlaði að vita hvort ég
gæti ekki fengið að tala við
herra Skopalski?
— Um hvað?
Sara hafði ekki sleppt hurð-
inni, það var eins og hún væri
á verði.
—■ Það er vegna kranans í eld-
húsinu okkar, hann lekur, laug
Cissi. — Ég ætlaði að vita hvort
hann gæti ekki gert við hann. Ég
held að það sé biluð pakkn-
ing. ...
Takið á hurðinni losnaði svo-
litið, en rödd konunnar var jafn-
kuldaleg.
— Hann er niðri í kyndiklef-
anum. Ég skal segja honum það,
þegar hann kemur upp.
-— Þakka yður fyrir, sagði
Cissi brosandi, en um leið og
Sara lokaði dyrunum, læddist
hún niður í kjallarann. Þetta var
einmitt það sem hún hafði von-
að, að fá tækifæri til að tala
einslega við hann.
Henni lá við að snúa við, þeg-
ar hún kom að kjallarastiganum.
Þetta hús var svo gamalt, frá
þeim tíma, þegar þjónustufólkið
eitt gekk um kjallarana. Mjór
og brattur stigi lá milli hrjúfra
steinveggja og eina ljósið var frá
daufri ljósaperu, sem hékk í
loftinu á lausri snúru. Sumarhit-
hafði ekki náð þarna niður,
loftið var kalt og hráslagalegt,
eins og í grafhvelfingu.
Cissi fálmaði sig varlaga
áfram og hún gretti sig, þegar
hún kom við vegginn, þar sem
rykið var sem mest. Þegar hún
hafði farið niður tíu eða tólf
þrep í svarta myrkri, kom önn-
ur ljósapera. Dyr stóðu opnar út
á þröngan kjallaraganginn og
Cissi sá að hún hafði farið rétta
leið.
Hún gekk inn í klefann og sá
á bakið á Hans Skopalski. Hann
var í óhreinum samfestingi og
hann sneri sér við um leið og
hún kom inn. Hann hrökk við
og kipraði augun. Cissi sá að
hann gjóaði augunum að verk-
færahillunni.
Cissi sá flöskuna á hillunni;
það var einhver einkennilegur
miði á henni. Þetta var þá
smyglaða brennivínið. Flaskan
var tæplega hálf og Cissi hugs-
aði með sér hvort það gæti ver-
ið að hann hefði drukkið þetta
allt núna í dag. Það leit helzt út
fyrir það, því hann var ekki vel
stöðugur á fótunum og augun
voru blóðhlaupin.
-— Góðan dag, herra Skop-
alski!
Cissi fannst sjálfri þessi
kveðja bláfalleg og hún heyrði
sjálf að rödd hennar var ósköp
vesældarleg. Var það skynsam-
legt af henni að tala við hann
þarna niðri, sérstaklega þar sem
hann var drukkinn? Það myndi
enginn heyra til hennar ef hún
öskraði og það gat verið að hún
yrði að öskra.
— Hvað viljið þér mér?
Ég ætlaði að biðja yður að
hjálpa mér með svolítið.
- Hjálpa?
Hann var greinilega mjög
undrandi. Hann hafði örugglega
ekki búizt við því að hún myndi
biðja hann að hjálpa sér. En
tortryggnin hvarf ekki.
•— Hvers konar hjálp á það
að vera?
Cissi hugsaði sig vel um, áður
en hún bar fram næstu spurn-
ingu.
Þér þekktuð Leo van der
Heft vel, var það ekki, herra
Skopalski?
Hvern fjandann eigið þér
við?
Cissi sá að hann kreppti hnef-
ana og hún hörfaði ósjálfrátt
nokkur skref aftur á bak. Hún
sá að hún var nær dyrunum en
hann. Ef í hart færi gat hún
komizt undan. Þess vegna hélt
hún áfram.
— Aðeins það að þér voruð
einkabílstjóri fyrir hann eftir að
hann missti ökuskírteinið....
—- Og hvað um það?
— Þá hafið þér ekið honum í
samkvæmi um borgina og í ná-
grennið.
Hann svaraði ekki, en hún
fann að augu hans hvíldu á
henni, eins og hann væri á verði.
Þér sáuð sitt af hverju,
Skopalski. Meðal annars hvaða
konum hann var með.
Hann hreyfði sig ekki, en
Cissi hafði það á tilfinningunni
að hann væri reiðubúinn til að
stökkva á hana. En hún var
ákveðin í að halda áfram.
— Hvaða konur voru það,
herra Skopalski?
— Versta sort!
Hann spýtti.
—- Allra versta sort! Stúlkur,
sem gera hvað sem er fyrir pen-
inga! Þær voru allar eins!
— Er það víst, herra Skop-
alski? Hugsið ef ein þeirra eða
fleiri hafa gert það gegn vilja
sínum!
— Gegn vilja sínum, endur-
tók hann með fyrirlitningu. ■—■
Hvernig er hægt að þvinga
stúlkur til annars eins?
— Leo van der Heft gat það!
Á nákvæmlega sama hátt og
hann gat þvingað yður til að aka
fyrir hann, þótt þér hefðuð and-
styggð á honum. Hvaða vald
hafði hann á yður, Skopalski?
— Hann sagði að . . . hann
lofaði að . . . o, það var ekkert!
— Ó, jú! Hann lofaði yður
einhverju? Var það að hann
hafði náð sambandi við Catarina
dóttur yðar? Að hann hefði hitt
hana á einni ferð sinni til Pól-
lands og að hann gæti ef til vill
hjálpað til að koma henni til
Svíþjóðar?
Cissi sá að hún hafði gizkað á
það rétta. Hann opnaði munn-
inn til að svara, en lokaði hon-
um aftur og nú starði hann á
hana, greinilega dauðhræddur.
Cissi mjakaði sér svolítið nær
dyrunum, áður en hún hélt
áfram:
— En svo komuzt þér að því
að hann hafði farið á bak við
yður. Catarina var fyrir löngu
komin til Svíþjóðar. Þér sáuð
hana einu sinni, þegar þér voruð
að sækja Leo í eina af svall-
veizlunum. Sjáið þér til, ég sá
nefnilega mynd nýlega, mynd af
Kötju, eins og hún er kölluð hér,
þar sem hún var að kyssa Leo.
Bak við var hægt að greina bíl-
inn hans og þar stóðuð þér. Leo
vissi ekki að þér voruð þarna.
Hans Skopalski hreyfði sig
ekki ennþá, en Cissi sá að reið-
in vék fyrir örvæntingu. Svo
hneig hann hægt niður á stól-
garm og faldi andlitið í höndum
sér. Þegar hann loksins talaði,
var það rétt svo að Cissi gat
greint orðin.
— Hún kom til Svíþjóðar. en
hún kom ekki til okkar! Hún
kom ekki til sinna eigin for-
eldra! Við vorum ekki nógu fín!
Við vorum of fátæk! Þess vegna
perðist hún hóra Leos og vina
hans. Hún.. . .
- Þar skjátlast yður, Skop-
alski, tók Cissi fram í fyrir hon-
um. Hún kom beint til ykk-
ar begar hún kom frá Póllandi,
en þið voruð ekki heima. Hefur
vður aldrei komið til hugar að
Framhald á bls. 95
VIKAN-J ÓLABLAÐ 31