Vikan - 03.12.1970, Page 82
JÖL BERNSKU
MINNAR
HVAÐ VELDUR
SÍVAXANDIVINSÆLDUM
FORD CORTINA
m
Reynsla Islenzkra
bifreiðaeigenda
og tæknikunnátta
og reynsla FORD
verksmiójanna
• Ný yfirbygging • Ný fjöðrun - gormar
• Nýir litir framan og aftan
• Meiri sporvídd • Aukin breidd og rými
• Nýr stýrisútbúnaður® Aflmeiri vélar
• Lengra hjólamillibil (65, 78, 98, 112)
Enn fremur innifalið í verðinu: Styrkt fjöðrun,
hlífðarpönnur undir vél og benzíngeymi,
stærri rafgeymir, vandaðri startari, öryggis-
belti, aurhlífar, og frostlögur.
Umboð í Vestmannaeyjum: Bifreiðaverkstæði Kristjáns og Bjarnasími: 1535.
Umboð á Akranesi: Ólafur Eyberg Guðjónsson Krókatúni 11 sími: 1866
® HR. KRISTJÁNSSDN H.F.
OMBDDID SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00
verð frá
kr. 265.000.oo
Framhald af bls. 17.
mig og byrja að lesa bænir
mínar:
— Faðir vor, þú sem ert
á himnum....
II.
Nú er jóladagsmorgunn.
Ég var að vakna. Það fyrsta
sem ég þreifa eftir er Mjall-
hvít og spilin min og hvort-
tveggja liggur fyrir ofan mig
í rekkjunni. Ennþá brennur
á lömpunum tveim.
Á snældustólnum við
rekkjubrík mína stendur
kertastjakinn auður. Drif-
hvítir tólgarstraumar kvísl-
ast niður um hann allan og
stór tólgarskjöldur hefur
storknað á stéttinni.
Kertið hefur brunnið út á
meðan ég svaf.
Nú kemur mamma inn að
rekkju minni.
— Guð gefi þér góðan dag
og gleðileg jól, segir hún og
kyssir mig. — Nú sæki ég
kaffið þitt. Hún hraðar sér
fram baðstofugólfið.
Ég er aleinn i baðstofunni.
Pabbi og piltarnir eru úti að
ljúka við morgunverkin. Á
jólum, þegar fara átti til
kirlcju, var fénu gefin hálf
dagsgjöfin að morgninum,
seinni hluti gjafarinnar var
gefinn að kveldinu, þegar
frá ldrkju var komið.
Stúlkurnar eru frammi í
eldhúsi að sjóða jólagraut-
inn, hnausþykkan hrís-
grjónagraut með rúsínum í.
Blessuð jólin! Mikið
hlakka ég til að fá kaffi og
jólabrauð! Nú kemur
mamma upp með kaffið.
Hún tekur rúmfjölina frá
rekkju minni og leggur hana
ofan á sængina í kjöltu mína.
Hún setur kaffibollann og
brauðdiskinn á rúmfjölina.
Á diskinum eru, auk brauðs-
ins, fjórir hvítasykursmolar
og teskeið fylgir bollanum.
Ég á þá að gera kaffið sætt!
Mikið eru jólin ólik öðrum
dögum. Ég vildi að það væru
oftar jól.
Góð stund líður.
Nú kemur pabbi inn.
Hann sezt hjá mér á rekkju-
stokkinn, kyssir mig og ósk-
ar mér gleðilegra jóla.