Vikan - 03.12.1970, Side 96
TmumálakeBniiii ir UnnaDbon§
HliúManAÉs Renkiavílnr M.
Laugavegi 96 — Sími 13656.
Linguaphone
kennir yður nýtt tungu-
mál á auðveldan og
eðlilegan hátt.
Það stuðlar að:
ánægjulegri ferðalög-
um, liagkvæmari við-
skiptum, betri árangri í
prófum, og er fyrir alla
fjölskylduna.
Kennarinn, sem þér hafið í hendi.
Enska — franska — þýzka — spænska — ítalska — norska — sænska — danska o. fl.
— Hvern elskar hún? Er þa'ð-
einn af. . . .
— Nei, alls ekki. Það er góð-
ur maður, sem hugsar um það
eitt að hjálpa henni og að láta
henni líða vel.
-— Hvar er hún núna?
Hann var staðinn upp og kom
nú til móts við Cissi, sem ekki
hörfaði undan í þetta sinn. Hún
var ekki lengur hrædd við þenn-
an sterklega mann með stóru
hendurnar. Hann var aðeins fað-
ir, sem hugsaði um það eitt að
bjarga barni sínu.
—• Ég skal hjálpa yður til að
finna hana, en fyrst verðið þér
að hjálpa mér. . . .
—■ Hvað get ég hjálpað yður?
Hún leit fast í augu hans.
— Ég vil vita sannleikann um
flugslysið. Siglingatækin voru í
ólagi, höfðu verið eyðilögð í
Svíþjóð, áður en hann lagði af
stað til Finnlands. Þér ókuð hon-
um til flugvallarins, Skopalski.
Þér eruð vélsmiður, eða voruð
það í Póllandi. Þér höfðuð líka
ástæðu til að hata hann!
Nú var það sagt og Cissi beið
spennt eftir að sjá hvernig hann
myndi bregðast við þessu. En
það var eins og hann hefði vit-
að hvað hún vildi. Hann kink-
aði aðeins kolli.
— Já, það var ég sem eyði-
lagði tækin. Hann skildi mig"
einan eftir í flugvélinni í nokkr-
ar mínútur og ég gerði þetta í
augnabliks reiði. En þegar ég sá
hann taka af stað, var mér ljóst
að það hafði verið tilgangslaust.
Veðrið var gott og Leo van der
Heft var mjög góður flugmaður.
Hann gat lent hvar sem var,
þegar hann kæmist að biluninni.
Hann komst líka heilu og höldnu
til Finnlands. Það var á heim-
leiðinni sem hann villtist og þá
var hann örugglega búinn að sjá
að tækin voru ekki í lagi.
— Hvernig vitið þér það?
— Hánn hringdi til mín frá
Finnlandi og bað mig að hitta
sig við Ská eftir þrjá klukku-
tíma. Og svo bætti hann hæðn-
islega við að ég skyldi taka með
mér verkfæri til að gera við
tækin, sem ég hafði eyðilagt.
— Hverju svöruðuð þér?
— Að ég skildi hvað hann
ætti við. En hann hló og sagði
að það gerði ég eflaust. Ég sagð-
ist ekki hafa gert neitt af því
sem hann ásakaði mig um, en
hann sagði að við gætum rætt
um það síðar. Hann sagðist vera
tímabundinn, hann þyrfti að tala
við einhvern mann í Stokkhólmi
áður en hann legði af stað heim-
leiðis.
Þetta kom heim við það sem
Willie Samson hafði sagt. Ann-
að simtal, en við hvern?
Rödd Hans Skopalski truflaði
hugsanir hennar. — Sg fór og
sótti bílinn og ók honum hingað,
en þar sem mér veitti ekki af að
fá eitthvað róandi, keypti ég
nokkrar bjórflöskur. Ég talaði
lengi við stúlkuna í búðinni og
96 VIKAN-JÓLABLAÐ