Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 4
pósturinn
Augnaháralos
Kæri Póstur!
Eg hef nú vist ekki skrifað þér
áður, en nú er það þannig að ég
þarf að fá ráð, góð ráð, og datt
mér þá í hug að skrifa þér.
Svo er mál með vexti að það
detta svo hræðilega af mér augn-
hárin, aðallega neðri augnhárin,
og þegar ég mála mig er alveg
auður blettur, svo áberandi Ijótt.
Nú bið ég þig kæri Póstur um góð
ráð og enga útúrsnúninga né stæla.
Fyrirfram þökk.
I.S.
fá að sofa á milli okkar. Ég er því
alveg mótfallin, en maðurinn minn
er alveg með þvi að hún sofi þar,
og má ég varla hreyfa mig, því að
þá vaknar sú stutta og ætlar aldrei
að sofna aftur. Nú hefur hún verið
hjá okkur í einn mánuð og maður-
inn lætur allt eftir henni, og ég er
farin að sofa frammi í stofu. Ég
fæ ekki við neitt ráðið, og kemur
þetta m|ög illa við mig og heim-
ilislíf okkar er næstum óþolandi.
Kæri Póstur, reyndu að finna
einhver ráð til að hjálpa mér.
Ein í vandræðum.
Einstaklega hagkvæmur sem fólksbíll eða sendibíll. Til heimilis-
nota eða við atvinnurekstur — alltaf jafn lipur. Benzíneyðsla
aðeins 5.5 I pr. 100 km. Framhjóladrifinn með hurð að aftan.
Auðveldur og ódýr í rekstri.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Hvernig eiga Ijónið og steingeitin
saman? Hvernig eiga nautið og
hrúturinn saman?
Það er allt sem mælir með RENAULT.
<0>
Kristinn Guðnason hf«
Klapparstíg 27. — Sírni 21965.
— Sporin liggja í kringum ákveð-
inn blett, en það sézt bara ekki
hvaða blettl
— Ég get ekki gert að því, það
setur að mér kulda, ég kann ekki
við hálsband!
Um augnhár gegnir að þvi leyti
líku máli og um annan hárvöxt
líkamans, að spretta þeirra er mjög
misjöfn eftir einstaklingum og erf-
itt að breyta nokkru um hana. En
nú fást í flestum eða öllum snyrti-
vöruverzlunum gerviaugnahár sem
eru löngu komin í almenna notk-
un. Þú ættir að geta bætt eitthvað
úr vandræðum þínum með þeim.
Skriftin er heldur óregluleg og
erfitt að lesa mikið út úr henni, en
segja mætti okkur að þú væri full
hlédræg og kjarklítil. Ljón og stein-
bukkur eiga að því leyti vel sam-
an, að bæði eru mjög metnaðar-
gjörn, og sýni þau hvort öðru til-
litssemi og skilning er varla vafi
á því að þau komist langt í sam-
einingu. En munurinn á metnaði
þeirra er einkum sá að Ijónið sæk-
ist aðallega eftir þvi sem er innan
sjóndeildarhrings, en steinbukkur-
inn rýnir í myrkan og dulúðugan
fjarskann. Hrútur og naut eiga
fremur fátt sameiginlegt og eiga
því oft í erfiðleikum með að ná
saman, en takist það á annað borð
verða þau hvort öðru oft að miklu
liði.
Næstum óþolandi
Kæri Póstur!
Ég sé að svo margir leita til þín
í vandræðum sínum, svo að ég
ætla að reyna að skrifa um vanda-
mál mitt. Ég er svo til nýgift og er
átján ára. Ég og maðurinn minn
tókum í fóstur systurdóttur hans,
sem er þriggja ára, hún á að vera
hjá okkur í sex mánuði. En nú er
svo mál með vexti að hún neitar
að sofa ein í rúmi og heimtar að
Undarlegt má það heita að mað-
urinn þinn skuli hafa svo lítinn
áhuga á að sofa hjá þér sem helzt
má ætla samkvæmt þessu bréfi.
Því fremur sem þið eruð nýgift.
Okkur grunar því að það sé ekki
litla telpan, sem sé helzti erfið-
leikavaldurinn i sambúð ykkar,
þótt svo kunni að virðast í augna-
blikinu. Þú segir að hún verði hjá
ykkur í sex mánuðr, það þýðir
fjóra til fimm mánuði í viðbót. Það
er ekki lengri tími en svo að þú
ættir að geta beðið hann af þér —
ef þú telur líklegt að þetta lagist
alltsaman þegar þið verðið aftur
tvö ein í bólinu.
Svar til einnar
óhamingjusamrar
Samkvæmt íslenzkum lögum er
ekki hægt að banna ykkur að
ganga i hjónaband þótt þið séuð
þetta mikið skyld. En hinsvegar er
löngu vitað mál að viss áhætta
fylgir skyldleikahjónaböndum, sem
sé auknar líkur á því að einhverjir
arfgengir kvillar, andlegir sem lík-
amlegir, koma fram í afkvæmun-
um. Með tilliti til þessa og eins
hins hve ung þið eruð og óreynd
(sérstaklega þó hann, eftir því sem
lesa má á milli línanna), væri ráð-
legast að þið biðuð eitthvað með
að ákveða hvort þið verðið hjón
og eignist börn. Spursmál er hvort
þið þurfið endilega að hætta að
vera saman fyrir því; nú á dögum
á svoleiðis að geta gengið án veru-
legrar hættu á að hlaða niður börn-
um fyrr en maður vill. Hitt er líka
athugandi hvort pilturinn er eftir
allt saman mjög heppilegur lifs-
förunautur alveg burtséð frá skyld-
leikanum; sú mynd (óljós að vísu)
sem bréfið gefur af honum er ekki
ýkja geðsleg, en það getur auð-
vitað allt stafað af æsku og
4 VIKAN i- tw.