Vikan


Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 39

Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 39
znHussi ER BEZTA VALIÐ 7 mismunandi gerðir með og án djúpfrystis. Zanussi hefur framleitt rafmagnsáhöld f meira en hálfa öld og hafa þegar framleitt meira en 10 milljón véla Firmað hefur viðskipti við 120 lönd víða úti í heimi. Tækninýjungar sitja í fyrirrúmi hjá ZAIMUSSI. iLiyiKifii inie SNORRABRAUT 44 SÍMAR 16242 15470. Kæliskápar gert neitt fyrir hann. Ég hafði alls ekki unnið fyrir þeim. — Nei, það er hverju orði sann- ara, sagði Ingigerður þurrlega. — En hvers vegna skyldir þú ekki taka við þeim? Ef þessar hundrað krónur væru enn í veskinu hans, þá mundi enginn n|óta þeirra. En við þurfum á þeim að halda. — Ef til vill á hann konu og börn, sem nú hafa þörf fyrir hvern eyri af því, sem hann átti. — Hann Sixten Strömberg! Nei, vertu ekki svona heimsk, Mikaela. Þú þekktir hann ekki, en það gerði ég. Og það veit hamingjan, að hann var sko ekki spar á pening- ana sína. Annan hvern mánuð var hann hérna í Stokkhólmi og lifði eins og greifi. Það var leiðinlegt, að þetta skyldi þurfa að gerast einmitt f gærkveldi. En nú er hann dauður og það gagnar lítið, þótt við syrgjum hann. Hann lifnar ekki við fyrir það. Hvað er að þér, Mika- ela? Er þér illt? — Mér er svo hræðilega kalt, hvíslaði Mikaela. — Og svo er ég komin með ákafan höfuðverk. Ingigerður horfði rannsakandi é hana. Síðan stundi hún þungan og sagði: — Farðu strax í rúmið! Ég skal bæta á kamínuna, svo að það verði vel heitt í herberginu. Þú hlýtur að hafa ofkælt þig í gærkveldi. — En ég get ekki lagzt í rúríiið núna. Ég á að mæta í tíma klukkan tólf til að kenna stelpunni hans Bengtsons. — Á sunnudegi? — Já, þú veizt, sagði Mikaela og reyndi að brosa. — Pabbi henn- ar vill vera heima og fylgjast með tímanum. Hann segir, að ég haldi engum aga. Og kannski hefur hann rétt fyrir sér. — Ég skal fara til Bengtsons, þegar ég fer að senda skeytið á eftir og tilkynna, að þú sért veik. Ó, bara að ég hefði ekki lofað að hitta Birgi í dag! Þá gæti ég farið strax til Gautaborgar. Birgir ætl- aði heim á morgun og þetta leið- indaatvik með Strömberg gerir það auðvitað að verkum, að hann þarf að vera á eilífum þönum í allan dag. Bara að mér takist nú að hafa upp á honum! Mikaela skalf. Aftur var hugur hennar allur á valdi þess, sem Ingi- gerður vildi ekki skilja eða lét að minnsta kosti eins og svo væri. — En þú veizt ekki einu sinni hvar hann á heima. Þú veizt ekki einu sinni, hvort hann heitir Birgir Rosén i raun og veru. Þú veizt yfir- leitt ekkert um hann. — Byrjar þú enn, sagði Ingi- gerður sárreið. — það er að minnsta kosti stórt B fsaumað í jakkann á náttfötunum hans. Svo mikið veit ég þó! Náttfötin hans eru líka ótrúlega falleg, enda hef- ur hann góðan smekk. — Ingigerður! Hvernig get- urðu . . . — Ég fæ ekki séð, að nein ástæða sé til þess að hneykslast á þessu. — Ég . . . ég veit ekki . . . Mikaela gafst upp við að rök- ræða við vinkonu sína. Hún lagði árar í bát og hélt áfram: — Þú hefur líklega rétt fyrir þér. Ég tala of mikið. En mér líður svo illa. Ég skammast mín svo hræði- lega fyrir þetta allt . . . — Komdu þér nú í rúmið, sagði Ingigerður. — Svo skaltu taka svefntöflu og sofa vel út. — Ég sá leikrit einu sinni, sagði Mikaela allt í einu. — Ég man ekki hvað það heitir en það fjallaði um mann, sem hélt að hann hefði myrt annan mann, þótt hann hefði alls ekki gert það. Og ég man, að hann bað til guðs, að hann stöðv- aði heiminn og lofaði honum að lifa fortíðina á nýjan leik. — Þetta leikrit hét Silfurprins- inn. En hvað kemur það þessu máli við? — Ég mundi vilja fá að byrja upp á nýtt, sérstaklega vildi ég láta þurrka út síðustu sex mánuð- ina. Ég vildi fá að lifa aftur þann tíma, þegar mamma var enn á Iffi og framtíðin virtist brosa við mér. Ef- ég hefði vitað þá það sem ég veit nú, — þá hefði ég kosið að fá að deyja með henni. — Það mætti halda, að þú hefð- ir framið afbrot. Þú hefur alls enga ástæðu til að iðrast. Þú hef- ur ekki gert nokkrum manni illt. — Ekki nema sjálfri mér. Ingigerður stundi þungan aftur. — Þú ert veik! En komdu nú f rúmið, sofnaðu og þá verður þú hress og kát, þegar þú vaknar aftur! En Mikaela varð ekki hress og kát, þegar hún vaknaði aft- ur. Hún varð fárveik, hversu veik vissi hún varla sjálf. Ingigerð- ur fór til Gautaborgar, svo að það var enginn til að annast hana, eng- inn, sem heyrði óráðshjal hennar, pegar hitinn var sem mestur. Oðru hverju bráði þó ögn af henni, svo i. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.