Vikan


Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 6

Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 6
Hundrað krónur breyta^engu en Happdrætti SÍBS getur breytt þeim í milljón Því ekki að nota möguleikana? Einu sinni geturöu fengið heila milljón og einu sinni hálfa. 10 hljóta 300 þúsund og 15 hreppa 100 þúsund, 500 manns fá tiu þúsund og 1400 fimm þúsund. Og 14473 sinnum sjá einhverjir að þeir hafa hlotið tvö þúsund. Aldrei minna en 1000 vinningar á mánuði. Auk þess Jeep Wagoneer Custom — bifreið fyrir byggðir og óbyggðir, vinnuna og fjölskylduna — tveir bílar í einum. Sterk, rúmgóð og kraftmikil bifreið sem kostar venju- lega 570 þúsund, en verðmæti hennar til vinningshafans verður 725 þúsund vegna sérstaks útbún- aðar til öryggis og þæginda. Dregið 11. janúar þaö borgar sig að vera meö ER ÖRYGGI Slysatrygging er frjáls trygging, sem hver einstaklingur á aldrinum 15 til 64 ára getur keypt og fyrirtæki vegna starfsmanna sinna. Hún gildir í vinnu, frítíma og á ferðalögum. Tryggingin er bundin við ákveðið nafn og bætur þær, sem hægt er að fá af völdum slysa, eru þessar: Dánarbætur, örorkubætur og dagpeningagreiðslur. Tryggingaupphæðir geta verið mismunandi háar eftir óskum hvers og eins, en dagpeningagreiðslur ætti að miða við þau laun, sem viðkomandi hefur fyrir vinnu sína, en geta ekki orðið hærri en 1/2% af örorkutryggingarupphæðinni. Slysatrygging er jafn nauðsynleg við öll störf og slysin henda á öllum aldri. Við getum einnig boðið SAMEIGINLEGA SLYSA- OG LÍFTRYGGINGU og SLYSA- TRYGGINGU, sem eingöngu gildir í FRÍTÍMA. Leitið nánari upplýsinga um SLYSATRYGGINGAR hjá Aðalskrifstofunni eða umboðsmönnum. ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500 SAMVINNUTRYGGINGAR dreýmdi Gifting / Með hatursaugnaráði Kæra Vika: Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma. Ég hef áður sent þér draum, en fékk ekki ráðningu þá, svo ég vona að það verði nú. 1) Mér fannst ég vera í eldhús- inu í hóteli sem ég vann á í sum- ar. Vinkona mín stóð í dyrunum og spurði hvað ég væri að gera. Ég sagði henni að ég hefði lofað að sjá um brúðkaup fyrir mann, sem ég ætla að kalla A. Sjálfri fannst mér að ég væri trúlofuð en hann ætlaði að giftast annarri. Þeg- ar vinkona mín vissi það fór hún að staglast á því að það væri ég sem hann ætlaði að giftast. Ég bað hana að hætta að tönnl- ast á þessari vitleysu, en hún hélt áfram að segja: „Það ert þú, það ert þú . . Innst inni í mér varð ég fyrir vonbrigðum með að hann ætlaði ekki að giftast mér. Þessi maður er miklu eldri en ég, ca. 7—9 árum. Þegar mig dreymdi þennan draum hafði ég aðeins talað við hann einu sinni eða tvisvar, en nú þekki ég hann vel. Hinn draumurinn er svona: Mér fannst ég vera að fara inn til mín og stóð í. útidyrunum. Þeg- ar ég leit út á götuna kom strákur sem ég þekki (og vil kalla B) ak- andi að á beinhvítum bíl. Hann benti mér að koma og ég fór, með hálfum huga þó, því mér er ekkert um þennan strák. Við settumst á grasið í garðinum heima hjá mér en þar voru fyrir tvær stelpur, önnur sat við hliðina á mér en hin við hliðina á B. Mér fannst hann ætla að segja mér eitt- hvað sem hinar máttu ekki heyra en ég sagði í sífellu ,,Ha?", þó svo ég heyrði vel hvað hann segði. Ég hallaði mér upp að honum og stelpurnar litu á mig með miklu haturaugnaráði. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Ein sem dreymir sjaldan. Hvorugur þessara drauma boðar nokkuð sérstakt, sem ekki hefur þegar komið fram. Fyrri draumur- inn var þér fyrir nánari kynnum við þennan mann og sá siðari er þér fyrir einhverjum smávægileg- um erfiðleikum, sennilega í sam- bandi við þennan strák. Þó skaltu varast að láta aðra hafa of mikil áhrif á þig i sambandi við hann, því að öllum líkindum er hann ekki eins slæmur og þú heldur. Alhvítur klæönaður Kæri draumráðandi: Mér fannst systir mín og strákur- inn sem hún er hrifin af, vera að gifta sig. Þau voru klædd í hvít leðurföt, hún í þröngri blússu nið- ur í mitti, en fyrir neðan brjóst var blússan fölbleik og þar yfir var kögur. Hún var í midi-pilsi og hvít- um leðurklossum með kögri og var það bleikt. Hann var í hvítum leð- urjakka með kögri, útvíðum bux- um og hvítum skóm. Þá var hann líka með rauða rós í brjóstvasan- um og með bleika slæðu um háls- inn. Hann leit brosandi niður lil hennar og hún brosti á móti. Hann hélt utan um hana. Þín, 505. Ef systir þín hefur ekki þegar náð í þennan strák, þá er ekkert líklegra en að hún geri það fljót- lega. En draumurinn er meira fyrir einhverjum veikindum systur þinn- ar og kemur hann (strákurinn) til með að reynast henni mjög vel — þó ekki sé útilokaður sá möguleiki að hann verði f'/rir einhverjum !ít- ilfjöriegum krankleika sjálfur. Svar til J“ Þessi draumur er þér ábending um að alltaf er hægt að byrja upp á nýtt, og þó illa hafi blásið fyrir þér um stund, þarftu ekkert að gera nema að ákveða við sjálfa þig að nú ætlir þú að stappa í þig stálinu. Okkur finnst á öllu að ef þú getir það ekki þá geti það eng- inn. Svar til MF Þessi draumur þinn er fyrir skammvinnum veikindum, en þó óljóst sé hvers, þá teljum við að fljótlega fáir þú skyndilegar frétt- ir af því að El sé töluvert veikur og strax þar á eftir að honum sé algjörlega batnað.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.