Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 49
Svör við hvar, hvenær og hvernig:
•U0UUV nujgjo
e jppu0 U9jjqjg *j0quj04d0S
J0 jisn9q 9 9SS0Ujssoj>j 'J9>jspu9r
JJ|j-0 J0 p| 9>JS9JBSUJ9UJ0J-| UJ>J9g
•U9|sj>j9d-jn|snv j J9 9DD9Q u;6jog
Grace og Gregory
svífa í dansinn
Nýlega var haldinn dansleikur í
Monaco til styrktar Rauða Krossin-
um, og auðvitað voru furstah|ónin
viðstödd. Ekki er vitað hvar Rainier
hélt sig þegar þessi mynd var tek-
in af Grace furstafrú og Gregory
Peck, en þau skemmta sér greini-
lega prýðilega. Skyldu þau vera að
tala um kvikmyndir og gamla
daga?
Þessi árlegu böll í Monaco eru
mikill viðburður fyrir fólkið í frétt-
unum og haft er fyrir satt að
ómögulegt sé að gizka á verðmæti
skartgripanna, sem þar sjást um
arma og hálsa glæsikvennana.
H .YÍr*»
H 1
lHi
myndasafn vikunnar
Myndir voru fátíðar í íslenzkum
blöðum til skamms tíma. Mest var
lagt upp úr lesmáli, enda mynda-
mót rándýr. í myndasöfnum blað-
anna er þó til talsvert af gömlum
og skemmtilegum Ijósmyndum,
sem eru orðnir sögulegir gripir nú.
Nokkrar slikar er að finna í mynda-
safni Vikunnar, og er ætlunin að
birta sumar þeirra á þessari opnu.
En sá hængur er á, að skýringar
vantar með flestum myndanna og
erfitt getur reynzt að hafa upp á
réttum nöfnum á fólki og stöðum.
Við viljum því beina þeim tilmæl-
um til lesenda, að þeir hjálpi okk-
ur í þessum efnum. Einnig þætti
okkur vænt um, ef þeir sendu
okkur gamlar myndir, sem þeir
kunna að eiga í fórum slnum.
Og hér kemur þá fyrsta myndin,
og er hún eins og sjá má af manni
á hestvagni. Hið eina sem við vit-
um um hana er, að hún er tekin
af bandaríska hernum einhvern
tíma á hernámsárunum og líklega
einhvers staðar nálægt Reykjavík.
Ef einhver lesandi veit nákvæm-
lega hvar myndin er tekin eða
þekkir manninn, sem stendur á
hestvagninum, þá ætti hann að
segja okkur frá því með því að
hringja eða senda okkur línu.
10 ára stúlka ætlar aS verða rithöfundur
Stúlkan heitir Silja Polzin og á
heima í Heidelberg. Móðir hennar
heldur því fram að hún sé yngsta
skáldkona Þýzkalands.
Móðirin, sem hefir svona mikið
álit á dóttur sinni er ættuð frá
Linz, og hún reyndi á sínum yngri
árum að gefa út bækur, sögur og
Ijóð, undir dulnefninu Elisabeth
Alexander. Nýlega las hún upp
sögu eftir sig í almenningsgarði í
Heidelberg, til að auglýsa bækur
sínar.
Silja er í sjötta bekk í barna-
skóla. Hún er glaðlynd telpa, fær
mjög venjulegar einkunnir og hef-
ir eins og aðrir jafnaldrar mikið
dálæti á tyggigúmmíi, dýrum og
sjónvarpi.
Móðir hennar fékk ungan kunn-
ingja sinn, Jochen Sommer, sem
er sölumaður hjá útgáfufyrirtæki,
til að koma Silju á framfæri. Hún
hefir mikla kímnigáfu og kom fram
í útvarpi í Köln, þar sem hún
sagði sögur eftir sjálfa sig.
Sommer sendi handrit hennar
til bókmenntafræðings í Götting-
en, sem fannst handritið athyglis-
vert. Sommer hefir nú gefið út
eina bók eftir Silju. Reyndar er
það ekki algert einsdæmi, að
börn á þessum aldri geti sagt
skemmtilega frá; þess er skemmst
að minnast árið 1956, þegar
franska undrabarnið Minou Drouet,
sem var aðeins ellefu ára, gaf út
bók, sem mikla athygli vakti,
r —\
vísa vikunnar
Anda napurt oft ég finn,
auðnu tapast vegur.
Asnaskapur allur minn
er svo hrapallegur.
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga.
1. tbi. VIKAN 49