Vikan


Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 21

Vikan - 07.01.1971, Blaðsíða 21
Hin ævaforna list Yoga hefur verið stunduð og umtöluð í alda- raðir, og áður og fyrr var venjulega einhver leynd yfir því. En upp á síðkastið hafa indverskir meistarar (guru) og lærisveinar þeirra kennt þessa list og skólar og félög hafa verið stofnuð víða um heim, svo að nú, á tuttugustu öldinni, er þetta orðin „ný“ leið til að æfa, liðka og viðhalda eðlilegri fegurð mannlegs líkama. Þeim konum fjölgar óðum, sem leggja stund á Yoga, og marg- ar æfa hinar mjúku hreyfingar til að öðlast yndisþokka, fagurt hörund og líkamsvöxt. Það er líka athyglisvert að þeir sem iðka Yoga af alvöru, að hugarró fylgir í kjölfar þess að líkaminn losnar úr viðjum. Anne Harris, sýningarstúika í New York, er ein þeirra sem stunda Yoga. Hún fer einu sinni í viku á námskeið í Hatha Yoga. Hún segir: „Undirstaða í Hatha Yoga er að finna samruna hugar og likama. Það er ekkert leyndardómsfullt að æfingarnar beina huganum að því sem líkaminn gerir“. Það eru engin aldurstakmörk sett þeim sem stunda vilja Yoga, en æfingarnar ætti alltaf að gera í einrúmi, á sama tíma dagsins og í hálftíma í einu. Það þarf engan sérstakan útbúnað, aðeins mottu eða teppi og föt, sem ekki hefta hreyfingar líkamans. Auðvitað verður að fara hægt af stað, en með æfingunni verð- ur líkaminn liðugri og fljótlega sýnir það sig líka að skýr hugs- un fylgir frjálsum líkama. Hér fylgja nokkrar myndir af Anne við æfingar sínar: Fyrst sýnir Anne hryggvindu (Spinal Twist), sem styrkir bakið og hryggsúluna. Hún situr flötum beinum (1), leggur hægri fót yfir vinstra hné (2). Styður hægri hand- legg fyrir aftan bak til jafn- vægis, lyftir vinstri handlegg og leggur hann yfir hægri fótlegg (3). Snýr höfðl og búk eins langt til hægri og mögulegt er (4). Snýr við (5). Anne sýnir fiskæfinguna, sem er fyrir þá sem lengra eru komnir. Byrjendur ættu að fara var- lcga við þessa æfingu. Hún situr á gólfinu, mcð krosslagði fætur og þráðbeinan hrygg (1), hallar höfðinu hægt aftur á bak (2—3), setur hendurnar neðarlega á mjaðmirnar og hallar höfðinu hægt aftur á bak, þar til það hvílir á gólfinu (4—5). Spennail á hálsinum linast þegar stríkkar á brjóst- og læravöðvum. „Að einbeita sér við Yogaæfing- ar má likja við það þegar barnið reynir að taka fyrstu skerfin," segir Anne. Fólki er bent á að fara í Iæknisskoðun, áður cn það reynir við Yoga, reyndar gegnir sama máli með aliar líkamsæfing- ar, ef heilsan er ekki góð cða líkaminn nægilega stcrkur. Anne sýnir líkamsteygjur (Pos- terious Strech), sem styrkja bak-, leggja- og magavöðva. — Með hægum, þokkafullum hreyf- ingum rís hún hægt upp, með út- rétta arma, teygir þá upp og haliar sér svo hægt fram, þar til hún snertir tærnar með fingr- unum, beygir sig þvínæst áfram þar til andlitið nemur við hnén. Flestir byrjendur ná aðeins nið- ur fyrir hnén eða að kálfunum, fyrst í stað, en smám saman verður auðvelt að ná til tánna. Aðalatriðiö cr að slaka á vöðv- unum, ekki að strekkja þá. Annc sýnir Lotusæfinguna, sem er hin klassiska hugleið- ingastelling Yoga, scm tekin er í þrem áföngum. Hún sit- ur flötum beinum, leggur hægri fót yfir að vinstri mjöðm (1), síðan vinstri fót að hægri mjöðm (2), með hælana eins fast að búknum og mögu- legt er, þrýstir hnjánum fast aö gólfinu og myndar hægt Lotusstcllinguna (3). Höfuð- staða styrkir bak-, háls- og axlarvöðva. Örvar blóðrásina. Þessi æfing er aðeins fyrir þá scm lengra eru komnir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.