Vikan - 07.01.1971, Side 5
reynsluleysi. Líka er svo að heyra
að hann hafi varla eins sterkan
áhuga á þér og þú á honum. Að
öllu samanlögðu væri líklega rétt-
ast fyrir þig að reyna að hugsa
sem minnst um hann á næstunni,
og ef þú átt kost á að fara að
heiman um skeið, eins og þú talar
um, þá er sjálfsagt að reyna það.
Það er oft hressandi að skipta um
verustað; þá sér maður hlutina
gjarnan í nýju Ijósi og losnar við
gamla drauga.
Því er á hinn bóginn ekki að
neita að stjörnurnar spá vel fyrir
ykkur. Jómfrú og steinbukkur eiga
að jafnaði alveg prýðilega saman.
Sama er raunar að segja um naut
og steinbukk; lífsviðhorf fólks í
þessum merkjum eru að jafnaði
ekki óáþekk.
Skriftin er skýr, en ekki mjög
snotur.
Gummi í Plöntunni
Elsku Póstur!
Við þökkum þér fyrir þær upp-
lýsingar, sem þú hefur gefið okk-
ur. Við erum hér tvær stelpur, sem
erum svolítið forvitnar um hann
Gumma í Plöntunni. Getur þú ekki
sagt okkur svolítið um hann, til
dæmis hvenær hann á afmæli og
hvar hann á heima. ER HANN
GIFTUR???
2 aðdáendur.
Gummi þessi á afmæli fjórtánda
desember, er til heimilis að Heiði
i Blesugróf, hamingjusamlega
kvæntur og á eina dóttur.
Svar til einnar 15 ára
(aS verSa 16) í vanda
Heimilisfang mannsins, sem þú
spyrð um, er Hrauntunga 75, Kópa-
vogi. Skriftin er heldur lagleg,
vantar enn fulla festu að vísu, en
bendir helzt til þess að þú sért
fremur róleg og þrautseig.
, Ég held þetta ekki
út lengur
Kæri Póstur!
Mér hefur fundizt þú vita all-
mikið, svo ég vona að þú getir gef-
ið mér gott svar í þetta sinn.
Þannig er mál með vexti að ég
er á föstu og er ég hrifin af strákn-
um eins og gefur að skilja, en nú
er ég hrifin af öðrum strák og er
hann oft með stráknum sem ég er
með, og hef ég haldið framhjá
með hinum.
Þegar ég er með þeim báðum
úti að keyra þá veit ég ekki hvern-
ig ég á að haga mér. Ég held að
hinn sé líka spenntur fyrir mér, því
hann reynir alltaf að láta strákinn
(sem ég er með) gera eitthvað,
senda hann eða þessháttar og' á
meðan heldur hann í hendina á
mér og horfir á mig (skáldlegt),
en hann forðast að horfa á mig
þegar við erum þrjú, því margt er
hægt að lesa úr augum fólks. Ég
held þetta ekki út lengur. Viltu
nú gefa mér svar, en ekki segja
hættu við báða eða gleymdu ein-
um og vertu með hinum.
Vona ég svo að þú gefir mér
svar fljótt.
Ein í vanda.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Þú vilt hvorugan kavalérann
taka fram yfir annan og ekki held-
ur hætta við báða, svo aS meS
sanni má segja aS góS ráS séu dýr.
Þú segist ekki halda þetta út leng-
ur, iíklega þá af ótta viS aS sá sem
þú hefur á föstu komizt að fram-
hjáhaldinu. Fjölveri (þaS að kon-
ur séu samtimis giftar fleiri mönn-
um en einum) mun bannaS í lögum
hér á landi, og almenningsmórall-
inn tekur sem kunnugt er heldur
illa upp fyrir konum að þær hafi
tvo eða fieiri elskhuga samtimis.
Þannig er þetta í okkar kristna,
vestræna þjóðasamfélagi, en til eru
samfélög þar sem iitiS er nokkuS
öSruvísi á þessi mál. AuSvitað
er ekki hægt að banna þér að vera
með strákunum báSum, ef þú vilt,
en þá verSurðu að vera reiðubúin
aS þola illkvittið umtal og jafnvel
aðkast af hálfu óviðkomandi og
auSvitaS reiði stráksins, sem þú
hefur á föstu, ef hann skyldi um
síðir komast aS hvernig í öllu ligg-
ur. Þvi verSur ekki heldur neitað,
að gagnvart honum sérstaklega er
framkoma þín dálitiS andstyggileg.
Hugsanleg lausn væri aS þú
segSir honum allt af létta, ef vera
kynni aS hann sætti sig viS aS búa
við þig i félagi viS hinn strákinn.
En heldur er ólíklegt að hann geri
það og kemur margt til; ótti viS
hinn almenna móral, svokallað
karlmannlegt stolt og trúlegast lika
siðferSisskilningur hans sjálfs.
Skriftin bendir til að þú eigir
ýmislegt til, sem kemur á óvart
og verSur umdeilt.
Eg er ein
Jjeirra
hamingjusömu húsmæðra, sem eiga
P H I L C O, alsjálfvirka þvottavél
Hér eru fáeinir kostir PHILCO-véla:
Þvottastilling' 14- eða 16-skipt eftir gerð.
Hitastilling 4-skipt eftir þörf og þoli þvottarins.
Sérstök stilling fyrir lifræn þvottaefni.
Sjálfvirk þvottaefnagjöf 3 þvottaefnahólf.
Sterk, hljóðlát, stilhrein.
Stór þvottakarfa úr eðalstáli.
Tekur 5 kg. af þurrum þvotti.
Þér veljið þvottadaginn — vélin sér um afganginn.
Þvottavél er ekki munaður — hún er þörf —
en PHILCO-þvottavél er NAUÐSYN.
A#
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3, SUVII 20455
SÆTÚN 8, SllVII 24000. (g)
— Ég segi það einu sinni ennþá,
ég hefi aldrei verið kvenmaður!
— Haltu áfram að jarma eins og
geit, Karolínal
1. tbl.
VIKAN 5