Vikan


Vikan - 07.01.1971, Qupperneq 12

Vikan - 07.01.1971, Qupperneq 12
Mikaela kveikti á gasinu undir katlinum og tók fram tvo bolla úr skáp. Hún hrökk við, þegar barið var harkalega að dyrum og missti annan bollann í gólfið. Hver gat þetta verið? Hafði ein- hver komiztá snoðir um eitthvað? Og Ingiríður enn sofandi. NÝ OG SPENNANDI FRAMHALDSSAGA EFTIR LENU WINTER FYRSTI HLUTI Gleymdu ef >ú getiir Mikaela sneri sér varfærnislega við í þröngu rúminu. Bara að hún hefði getað sofið ofurlítið lengur, þó ekki væri nema stundarkorn. En það var sunnudagur og klukkna- hringing frá kirkjunni. sem stóð neðar í götunni, hafði vakið hana. Hún vissi, að það borgaði sig ekki að reyna að sofna aftur. Hún lagðist á bakið og starði upp í loftið. Fíngert andlit hennar var fölt og áhyggjufullt. Hún sá ekki rakablettina í loftinu yfir höfði sér. Hún sá allt annað, og þegar hún minntist þess, reis hún eldsnöggt upp . . . Hvað mundu hún og Ingigerður taka til bragðs, ef ein- hver kæmi og spyrði þær um það, sem hafði í raun og veru gerzt? Mundi þeim takast að láta eins og þær vissu ekkert um það? Og ef þeim tókst það ekki, hvað yrði þá um þær? Hún leit yfir herbergið til Ingigerðar, sem svaf í sófanum við hinn vegginn. Ingigerður gat ef til vill sett upp sakleysissvip. En hún sjálf? Mundi hún geta logið, eins og Birgir Rosén hafði sagt, að hún yrði að gera? Stutt og dökkt hár Ingigerðar var allt i óreiðu og hún var eilítið sveitt á enninu. Hún brosti í svefninum. Hvernig gat hún gert það? Hvernig gat hún sofið svona vært, á meðan Mikaela sjálf . . . Hún lagðist niður aftur og dró sængina upp að höku. Hún reyndi að gleyma því, sem hafði gerzt. En hjarta hennar barðist ótt og títt og varir hennar voru svo þurrar af angist. Hvers vegna var þetta alltaf svona? Þær Ingigerður höfðu nú búið saman í hálft ár og skipt öllu bróðurlega á milli sín: litlu íbúðinni, hinum naumu matarpeningum, yfirleitt öllu. Ingigerður naut lífsins í ríkum mæli, en Mikaela hafði ekkert upp úr krafsinu nema eintómar áhyggjur. Stafaði þetta af ólíku skapferli þeirra eða uppeldi? Ingigerði virtist standa á sama um allt. En hún sjálf . . . Mikaela stundi þungan og kastaði sænginni af sér. Hún gat ekki hvílt sig, svo að það var eins gott fyrir hana að fara á fætur. Það var kalt í herberginu, og hún skalf á meðan hún sveipaði um sig dökkbláum morgunslopp og smeygði fótunum í ilskóna. Henni mundi vafalaust hlýna, ef hún fengi sér kaffibolla. Og ef henni tækist að kveikja upp í kamínunni, mundi vissulega verða hlýtt og notalegt í herberginu. En alltof oft brást gamla, græna kamínan, og í gær- kveldi höfðu þær ekki munað eftir að setja í hana þá fáu koksmola, sem þær höfðu ráð á að eyða, til þess að frjósa ekki í hel á næturnar. Þær höfðu aðeins gleypt svefntöflur og skriðið upp í rúmin sín. Birgir hafði sagt þeim að gera það, strax og þær kæmu heim: farið í rúmið eins og venjulega. sofið vel og hugsið ekki meira um það, sem gerðist. Hann ætlaði að sjá um það allt. aga- Ný framhaldssaga • Ný framhaldssagí 12 VIKAN i- tbi.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.