Vikan


Vikan - 07.01.1971, Síða 28

Vikan - 07.01.1971, Síða 28
— Ég sleppi þér aldrei, sagði Will, og ég fann að þessi orð hafði ég þráð að heyra allt mitt líf. En nú, eftir á, hugsa ég mikið um það hvort ég hefði ekki átt að haga mér öðruvísi. Þá hefði ef til vill verið hægt að forðast þennan hryllilega atburð . . . Framhaldssaga eftir Rachel Maddux ÞriSji hluti Það sem á undan er gengið: Roger og Libby Merredith eru miðaldra og búa í vana- hjónabandi. Þegar Roger, sem er prófessor í lögum, ákveður að taka sér frí í eitt ár, flytja þau hjónin út á búgarð, sem kunningjar þeirra eiga. Ná- granni þeirra, Will Workman, hjálpar þeim á alla lund. Hann er sterkur persónuleiki, mann- tegund sem Libby hafði aldrei kynnzt áður. Að sumu leyti er hann mjög frumstæður maður, 28 VIKAN 1- tbi. en um leið hjartahlýr og við- kvæmur. Libby er bæði dálítið hreyk- in og skemmtir sér yfir aðdá- un hans og gullhömrum. Smám saman kemst hún að því að líf Wills er síður en svo ánægju- legt; — konan hans er hörð og vond og fullorðinn sonur hans „Strákurinn", veldur honum miklum áhyggjum. Upphaflega hafa tilfinningarnar, sem Libby hefur gagnvart Will, verið af meðaumkun sprottnar . . . egar hlýna tók í veðri fór Will úr ullarskyrtunni og nú var hann daglega í blárri bómullarskyrtu og bretti ermarnar upp að öxlum. Ég reikna með að þannig eigi arm- leggir karlmanns að líta út, karlmanns, sem alla ævi hefur unnið hörðum höndum, en ég hafði aldrei séð þeirra líka. Ég hitti hann rétt við eld- húsdyrnar um dagmál, eins og venjulega. Við vorum vön að standa þegjandi um stund, eins og til að njóta nærveru hvors annars. í kyrrðinni fundum við þetta forboðna aðdráttarafl og þegar það var að verða óbæri- legt, færði ég mig aftur um nokkur skref, til að setja ket- ilinn á. En þennan morgun var það í fyrsta sinn sem hann var með uppbrettar ermar. Undir brúnu hörundinu sá ég slagæð- ina, kaðalþykka, og allt í einu brann ég af þrá eftir að snerta þessa lífæð með vörum mín- um. — Hvað? sagði ég, algerlega viðutan. — Hvað sagðirðu, Will? — Snertu hana ef þú vilt, sagði hann. — Eg þori það ekki, sagði ég svo lágt að ég varð sjálf undr- andi yfir hvíslinu í mér og yfir orðunum, sem ég lét mér um munn fara. En þetta var satt, mér fannst jörðin hlyti að gleypa mig, ef ég snerti þessa slagæð. Ég hörfaði aftur á bak, en þá var það Will sem hvísl- aði: — Eg elska þig svo óendan- lega heitt, sagði hann. — Nei, Will, þetta máttu ekki segja og þú mátt ekki einu sinni hugsa það. Ég elska Ro- ger. Við höfum verið gift í tuttugu og fimm ár, og mig myndi aldrei dreyma um að gera nokkuð, sem gæti eyði- lagt það sem við eigum saman. — Eg hef aldrei sagt að þú eigir að hætta að elska Roger, sagði hann. Svo hreyfði hann sig til á gólfinu, fullkomlega eðlilega og rólegur, hin mikla spenna var liðin hjá. Hann settist á sinn vanastað og beið eftir að ég hellti kaffi í bollann hans. Svo brosti hann til mín og það geislaði frá svörtum augum hans. — Eg verð svo hamingju- samur við að elska þig. sagði hann. - Það fær mér eitthvað til að hugsa um. Svo leit hann undan og horfði út um glugg- ann, ásjóna hans varð svo und- arleea þreytuleg og gömul. — Það er að minnsta kosti betra en ekkert. Þegar ég sofna á kvöldin, hugsa ég um þig. Það getur ekki skaðað neinn. En hvers vegna ertu ekki komin í kjól, nú er ekki kalt lengur? Svo fór ég að líta í blöðin. Ég hafði engan áhuga á frétt- unum; það eina sem ég leit yfir voru auglýsingarnar. Það gat verið að ég kæmi auga á laglegan bómullarkjól. Jú, það gerði ég reyndar. Um leið og ég sá hann, vissi ég að hann /

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.