Vikan


Vikan - 07.01.1971, Page 30

Vikan - 07.01.1971, Page 30
Frá frægustu hljómleikum sem haldnir hafa verið hér á landi, þegar Ævin- týri hóf sigurgöngu sína. ÞANKABROT um heppilega þróun popptónlistar á íslandi Á nýbyrjuðu ári er gott að líta um öxl og athuga hvað fór helzt úrskeiðis á því gamla. Ár- ið 1970 var á margan hátt skemmtilegt og viðburðarríkt ár fyrir íslenzka poppheiminn, þó ekki hafi verið slegið við árinu 1969 nema að takmörk- Karl Sighvatsson: Megum við búast við eftirtektarverðum tónverkum frá honum? uðu leyti. Það sem einna helzt hefur borið á sl. ár, er hversu mikla áherzlu íslenzkir popp- tónlistarmenn hafa lagt á að flytja eigið efni, og hafa skotið upp kollinum mörg ágætis tón- skáld, s. s. Jóhann G. Jóhanns- son, Ólafur Þórarnsson, Axel Einarsson, Einar Vilberg og margir fleiri, auk þeirra sem áður höfðu haslað sér völl með tónsmíðum sínum. Geysilegur fjöldi hljómplatna kom út á fyrra ári og nær ótrú- legur fjöldi rétt fyrir jólin. Mikið af þessum plötum voru í háum gæðaflokki og aðrar í lakari. Mjög lítið hefur komið út af lélegum plötum og fyrir það skulum við þakka öllum þeim sem hefðu getað gefið út lélegar plötur. Mikið af efni Ómar Valdimarsson þessara hljómplatna hefur ver- ið frumsamið og má búast við að enn meira verði um það á þessu ári, sem er hið 1971. í röðinni, síðan meistarinn fædd- ist — en upp á það var haldið með átveizlum miklum fyrir um það bil tveimur vikum síð- an. Því hefur lengi verið haldið fram að ísland sé mjög úr al- faraleið og hafa sumir talið það okkur til ágóða og aðrir til tjóns. Sjálfsagt hafa báðir að- ilar nokkuð til síris máls, en án þess að ég vilji taka afstöðu til þess í svipinn, langar mig að gera að umtalsefni áhrif er- lendrar popptónlistar á þá ís- lenzku: Þjóðlagatónlist á sífellt meira fylgi að fagna og hafa margir heimsþekktir listamenn, til dæmis Led Zeppelin, orðið fyrir sterkum áhrifum af slíkri tónlist. Við fslendingar eigum mikið af fallegum, stór- brotnum þjóðlögum, þjóðvís- um og vikivakadönsum, sem eru svo rammíslenzk að þau eiga sér enga hliðstæðu í ver- öldinni. Hvers vegna reyna ekki einhverjir góðir laga-- smiðir íslenzkir (popp) að setja saman tónverk, sem bera þennan keim. É'g er ekki meina að þeir eigi að taka þjóð- lög og setja þau í poppútsetn- ingar, heldur að þeir semji upp úr gömlum verkum; svipað og bandaríska hljómsveitin Blood, Sweat & Tears gerði á „BS & T III“. Þar tóku þeir félagar ungverska dansa og sömdu upp úr þeim virkilega skemmtilega þætti (movements). Framsetn- ing BS&T krafðist að vísu þeirrar hljóðfæraskipunar sem þeir hafa upp á að bjóða, en ég efast ekki um að hérlendar hljómsveitir, sem ekki hafa á að skipa neinum blásurum, gætu gert svipaða hluti. Fyrir utan það að þetta gæti orðið stórkostleg skemmtun fyrir okkur (almenning) og hljóðfæraleikarana, myndu báðir aðilar hafa mjög gott af. Að vísu krefðist þetta mikill- ar vinnu af þeim sem út í þetta myndu leggja, en það þarf eng- inn að efast um að almenning- ur myndi fagna þessu framtaki og kunna vel að meta. Nú er að vísu sá möguleiki fyrir hendi að tónskáldum okkar þyki þetta ekki þess virði, þar sem þeir eru flestir í „bransanum" sem atvinnumenn. En þeir verða líka að gera sér grein Popphátíðin 1970 var dæmigerð fyrir lélega hljómleika hér á landi, þó ýmsar hljómsveitir hafi staðið sig sæmilega. Ein þeirra var Fífó & Fófó. 30 VIKAN i. tw.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.