Vikan


Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 6

Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 6
F BUSLOÐ SPIRfl dre'ýmdi svefnbehkurínn hannaður af Þorkeli G. Guðmundssyni i B Ú S L w 0 Ð HÚSGAGNAVERZLUN VIÐ NÓATÚN — SfMI 18520 TEPPAHÚSIÐ er flutt í Ármúla 3, gengið inn frá Hallarmúla Með blys í hríðarveSri Kæri draumráðandi: Mig dreymir ekki oft, en þegar það kemur fyrir ve't ég alltaf að það boðar eitthvað, annaðhvort gott eða slæmt. Ég hef sent þér drauma nokkrum sinnum áður og hafa þínar ráðningar alltaf staðizt. Því vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og þakka þér um leið fyrir góð ráð sem þú hefur látið fylgia ráðningunum. Þá vil ég líka biðja þig að skila þakk- læti til hinna sem vinna á Vikunni fyrir gott efni, en mér finnst blað- ið sífellt vera að batna. En efni þessa bréfs átti ekki eingör.gu að vera hrós um þig, og hina á Vik- unni, heldur ætla ég að biðja þig, enn á ný, að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi i nótt. Aður en ég byrja vil ég þó taka fram að ég er búin að vera með þessum strák, M, í eitt og hálft ár. Mér fannst v:ð tvö vera ásamt fleira fólki, sem ég ekki man eftir, í heilmikilli blysför og bárum við M bæði blys. Héldumst við hönd í hönd, og bárum blysin með hinni hendinni. Ekki höfðum við lengi farið, þegar gerði mikið hríðarveð- ur og urðu margir af hópnum til þar sem þeir voru staddir, en okk- ur sakaði hvergi’ og vorum sem hlut'ausir áhorfendur í glerbúri og fundum nánast ekki fyrir veðrinu utan einu sinni, þegar mikill storm- sveipur skall á okkur, að því er mér virtist á okkur tveim, og var hann rétt búinn að feykja okkúr um koll. Um leið og við vorum bú- in að fóta okkur á nýjan leik, vakn- aði ég. Með fyrirfram þökk fyrir ráðn- inguna og ráðningarnar þar áður. ÁR. Fyrst af öllu vil ég þakka fyrir allar árnaðaróskirnar og á sömu- leiðis að skila þakklæti frá öðrum starfsmönnum blaðsins. Það er fyr- ir dyggan stuðning lesenda eins og þú crt, að hægt er að halda dýru blaði gangandi. En ráðning- una viljum við hafa svona: Þið M eigið eftir að trúlofast innan tíðar og stofna heimili. Ein- hvernveginn tekst ykkur að ráða fram úr öllum afborgunum sem fylgja stofnun heimilis og þið munuð sjá kunningja ykkar og aðra gefast upp á miðri leið, rétt eins og í bylnum. En svo kemur að því að þið fáið ykkar skell og hef ég grun um að þeir erfiðleikar vari meira en í einn eða tvo daga. En þar sem ykkur tókst að fóta ykkur á nýjan leik, ósködduð, þá viljum við spá því að allt fari vel að lokum, þó aldrei sé hægt að ráða drauma 100% rétt. Rúm fyrir barnið tilvonandi Kæri draumráðandi: Mér fannst ég vera á gangi með X og þá sagði hann: „Komdu með mér upp í herbergi, ég þarf að sýna þér svolítið." Ég fór með honum en fannst mjög erfitt að fara upp stigann sem lá upp í herbergið hans, svo X varð að ýta á eftir mér og hjálpa mér þannig. Þegar við komum upp blasti við barnarúm og var allt ! óreiðu í þvf sem og í öllu her- berginu. Þá sagði ég: „Af hverju ert þú með barna- rúm hér?" „Nú, það er handa tilvonandi barni mínu," sagði hann. „Það er ekkert tilvonandi barn," sagði ég. „Þú átt barn." „Já, ég á náttúrlega hann Q, en þetta er fyrir stelpuna sem er á leiðinni." Svo fannst mér ég fara, en ég man næst eftir því að ég var á leið upp með X upp í herbergið aftur og var jafn erfitt að komast upp. Þegar við komum upp, fór hann inn í næsta herbergi og kemur út aftur með rúmlega ársgamla stelpu og segir mér að þetta sé nú hún. Svo sagði hann: „Ég sé þig á eft- ir," og varð draumurinn ekki lengri. Ein berdreymin. Það var tjón að þú skyldir ekki hafa sent okkur nafn X, því nöfn og litir geta oft skipt máli, svo við kcmum því hérmeð á framfæri við fílk að það sendi svoleiðis hluti mcð; við sleppum öllum nöfnum sé þess óskað. En þessi draumur er þér mjög óhagstæður fyrst. Ur honum rætist þó, og viljum við ráða hann eitthvað á þessa leið: Einhver gerir þér tilbcð, X eða einhver annar, og mun þér lítast illa á í byrjun. Þó liggur þú og (rarft ekki að sjá eftir því, því bæði boðar það þér hamingju og ein- læqa vináttu cinhvers, sem okkur tókst því miður ekki að sjá nánar til um hver er. <) VIK'AN 2. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.