Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 37
Vill ekki verða
ekkja...
Framhald af bls. 25.
sem fór með Ethel til réttar-
haldanna, þegar sonur hennar
var kærður fyrir eiturlyfja-
neyzlu, og það er Ted, sem
sinnir börnum Jackie og sér
um skólagöngu þeirra í Banda-
ríkjunum, þegar mamma þeirra
er hjá Onassis í Grikklandi.
Joan hefur séð nóg til þess að
hana langar ekki til að missa
manninn sinn.
Hún vill ekki verða einmana
ekkja, helgimynd, og hún vill
ekki að börnin hennar verði
föðurlaus.
Hún vill ekki að Ted fylgi
erfðavenjum fjölskyldunnar í
stjórnmálabaráttunni. Hún vill
að demokratar velji sér annan
mann í baráttunni gegn Nixon.
En það er þó mjög líklegt að
henni verði ekki að ósk sinni.
☆
Nútímakona í
Afríku
Framhald af bls. 18.
áttu sinni, baráttunni fyrir þeim
hefðbundnu örlögum að lifa lífinu
sem barnamaskínur og vinnuþræl-
ar. Þær hafa hafið baráttu fyrir
réttindum konunnar.
Nokkrar af þessum konum hafa
komizt þó nokkuð til vegs og virð-
inga.
Frú Olyn Williams, fyrsti for-
sætisráðherra Sierre Leone, er mik-
il kvenréttindakona. Hún er ómyrk
í máli þegar hún talar um forrétt-
indi karlmannanna,- segir að þeir
eyði mestum tíma sínum í mas.
Þessvegna sé ekkert gert.
Jacqueline Ki Zerbo er lektor
við kennaraháskóla í Efri Volta.
Þar hallast menn yfirleitt að Mú-
hameðstrú, sem breiðist mikið út
frá Egyptalandi, Túnis og Marokkó,
og hefir í för með sér fyrirltningu
á réttindum konunnar. Frú Ki Zerbo
segir: — Hér heimta karlmennirnir
að kona skilji sfna stöðu. Nokkrir
eru á sama máli og ég, en þeir eru
bara ekki margir. Mér finnst þeir
hlægilegir, þeir ættu frekar að
stefna að því að eignast frjáls-
bornar konur . . .
Reyndar eru margir Afríkumenn
sem skilja þetta og haga sér eftir
þvf. Nyere, forseti Tanzaniu er
einn af þeim. Þegar málefni
kvenna, sem búa í borgum Afríku,
bar á góma, sagði hann einu sinni:
LIQUI - MOLY
AFTUR FYRIRLIGGJANDI
HVAÐA ÞÝÐINGU HEFUR LIQUI
FYRIR BIFREIÐAEIGANDANN?
MOLY SMURHÚÐIN
Ein dós af LIQUI MOLY sem kostar
rúmar kr. 150,00 myndar slitlag á núnings-
fleti vélarinnar sem endist 4800 kílómetra.
Á þessu tímabili er rétt að skipta um olíu
eins og venjulega, en eiginleikar LIQUI
MOLY slitlagsins breytast ekki við það.
Þetta gífurlega sterka slitlag, sem er 50—
60% hálla en olía, smyr þvi betur sem
leguþrýstingurinn er meiri og engin hætta
er á að það þrýstist burt úr legunum eða
renni af og niður í pönnuna eins og olía
þó vélin kólni að næturlagi eða í löng-
um kyrrstöðum og útilokar því þurra
(ósmurða) gangsetningu sem talin er valda 90% af öllu vélasliti. LIQUI MOLY auðveldar
gangsetningu og eykur endingu rafgeymisins, jafnvel í 20° frosti snýst vélin liðugt.
LIQUI MOLY slitlagið minnkar núningsmótstöðuna, við, það eykst snúningshraðinn og vélin
gengui kaldari, afleiðing verður bensín- og olíusparnaður.
• Minnkar sótun vélarinnar.
• Veitir öryggi gegn úrbræðslu.
• Eykur tvímælalaust endingu vélarinnar.
• LIQUI-MOLY fæst í bensínafgreiðslum og smurstöðvum.
Nánari upplýsingar veittar hjá LIQUI MOLY-umboðinu á íslandi.
ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ HF.
Laugavegi 23 — Sími 19943
— Sannleikurinn er sá, að í
borgunum eru það konurnar sem
vinna mest, afkasta mestu. Stund-
um vinna þær 12 til 14 klukku-
tíma á dag og jafnvel á sunnu-
dögum og öðrum helgidögum.
Konurnar í borgum Tanzaniu
leggja sig allar fram, en karlmenn-
irnir taka sér frí hálft árið . . .
Þó nokkur árangur af baráttu
kvennanna fyrir bættum Iffskjör-
um, er farinn að koma í Ijós. _Þeim
eru nú ,,leyft" að stunda ýmiskon-
ar störf. f Monroviu og Liberiu
sjást konur aka leigubílum og
flugfélögin þjálfa og veita atvinnu
flugfreyjum. f Kongo eru konur
þjálfaðar sem fallhlífarhermenn. f
Nigeriu er þó nokkuð um að kon-
ur gegni lögreglustörfum, og
stöðugt bætast í hópinn skrifstofu-
stúlkur og stúlkur við alls konar
þjónustustörf.
Konurnar í Afríku eru ekki enn-
þá farnar að fara f kröfugöngur
til að berjast fyrir réttindum sín-
um, en þær eru sannarlega farnar
að láta til sín heyra.
NauSsynlegt að koma
hér upp stúdíói
Framhald af bls. 32.
að það verður að skipuleggja
svona túra óskaplega vel, en það
hefur alls ekki verið gert hjá okk-
ur, sérstaklega þegar við fórum nú
f haust."
Sennilega verður það landslýð
Ijóst, þegar þessar línur koma fyr-
ir almenningssjónir, að Verzlunar-
skólakórinn ætlar að taka fyrir ein-
göngu lög eftir Gunnar Þórðarson
á nemandamóti skólans, sem hald-
ið verður innan tíðar. Hefur Magn-
ús Ingimarsson verið fenginn til
að æfa upp lögin og til tals hefur
komið að fá Gunnar sjálfan til að
taka einhvern þátt í undirleiknum,
en ef mér leyfist að láta f Ijós
mína persónulegu skoðun, þá
þætti mér það heldur óviðeigandi
og mun meiri reisn yfir því að
Gunnar kæmi þarna aðeins fram í
eitt skipti — sem heiðursgestur.
Sjálfur sagðist hann ekki hafa
gert upp við sig hvað verð-
ur, þó sjálfsagt sé búið að
ganga frá öllu endanlega núna.
„Það á illa við mig að binda mig
svona yfir einhverju verkefni sem
tekur svo mikinn tíma sem þetta
gerir. Mér hefur skilist að það
verði æft að minnsta kosti tvisvar
í viku og ég á hreint ekki svo gott
með það. En ég verð að viður-
kenna að mér finnst óskaplega
gaman að því að þetta standi
til og ég hef leyft mér að vera
svolítið montinn yfir því. Mér
finnst mér með þessu mikill heið-
ur sýndur."
Meðal þeirra laga sem Verzlun-
arskólakórinn er að æfa eftir
Gunnar eru: Bláu augun þín; Fyrsti
kossinn; Þú og ég; Starlight;
Heyrðu mig góða,- Ég sé það; Ást-
arsæla,- Þú varst mín,- Við; Syngdu
og fleiri.
„Ef viS snúum okkur þá aSeins
aftur aS hljómsveitinni eins og hún
er i dag; ertu ánægSur meS hana?"
„Ég er aldrei ánægSur. En mér
finnst gaman að vera f Trúbrot
2. tbi. VIKAN 37