Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 24
/
Nokkrum sinnum hefur Joan Ken-
nedy haldið píanótónleika, til dæm-
is í sambandi við kosningabaráttu
manns síns.
Ethel Kennedy varð ekkja með ell-
efu börn árið 1968.
Joan Kennedy kemur til Hvíta
hússins klædd gagnsærri blússu og
dökku midi-pilsi.
— Stundum óska ég
þess heitt og inni-
lega að ég hefði gifzt
öSruvísi manni
en Ted er. Nú er
honum aftur ýtt
áfram á móti Nixon,
en mig langar
ekki í Hvíta húsiS og
hætta á, aS Ted
verði myrtur...
í þrettán ár hefur Joan Benn-
et verið gift Edward Kennedy,
þeim yngsta af bræðrunum og
þeim eina sem ennþá er á lífi.
Eftir slysið við Chappaqui-
dick, þar sem ung stúlka
drukknaði, þegar bíll Edwards
Kennedys ók í vatnið, leit út
fyrir að stjórnmálaferli hans
væri lokið. Þetta var mikið
reiðarslag fyrir Kennedyfjöl-
skylduna, sem um áraraðir
hefur verið eins konar „kon-
ungsfjölskylda" í Bandaríkjun-
um. Rose Kennedy, móðir Ed-
wards, reyndi að stappa í hann
stálinu og fá hann til að lofa
sér því að bjóða sig fram í
forsetakosningunum og fá fólk
til að gleyma þessum óförum.
Það er aðeins ein manneskja,
sem finnst að slysið, þrátt fyr-
ir allt, hafi verið til hins betra,
- og það er Joan, kona hans.
- Ég hef aldrei átt neitt
fjölskyldulíf í hjónabandinu.
Ted er sjaldan heima og börn-
i