Vikan


Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 43

Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 43
Fjölbreytt úrval af kápum og kjólum stærðir 34 ■ 52 Fástsendum um land allt v/Laulgalæk, sími 33755. Laugavegi 116, sími 83755. Úðmenn . . . Framhald af bls. 33. þátt í gerð þessara plötu þó svo lögin séu flest eftir Jóhann. Finnur á líka nokkur lög, og finnst mér „Er mengun hverfur“ afspyrnu gott. Mikið væri nú annars gaman að lifa ef textinn væri sannur. Reynir á líka lag, sem mér finnst mjög gott, „It takes love“, og hann á að gera meira af því að syngja. Hljóðfæraleikur þeirra er góður, og það er sérlega áberandi hversu vel þeir þekkjast allir persónulega. Þeir virðast þekkja inn á hven annan full- komlega og vita alltaf hvað hinn er að hugsa, eins og er svo áberandi í „Frelsi“. Finnur gerir marga góða hluti í gítarleik sínum og sumt sem hann gerir GETUR EKKI VERIÐ Á NEINN ANNAN HÁTT, eins og til dæmis gítarsólóið í „Kærleik“. Þessar plötur eru fyrst og fremst MÚSÍK og Óðmenn hafa lagt í hana mikla vinnu. Mér hefur til dæmis skilizt að það séu aðeins hörðustu jazz- leikarar sem reyna við 15/8 takta, en í flutningi Óðmanna eru hvergi hnökr- ar. Og til að segja alveg eins og er þá hef ég ekki í lengri tíma hlustað á skemmtilegri og innihaldsmeiri hljómplötur. Héðan í frá hætti ég að að- skilja íslenzkan og erlendan „standard“. Textarnir eru flestir eftir Jóhann, og lýsa leitandi huga hans. I»að er líka mikill kostur við Óðmenn að þeir tóku afstöðu til umhverfisins, og megum við væntanlega búast við meiru af því frá þeim, þegar þeir hafa komið sér fyrir á nýjum vígstöðvum. En Jóhann getur líka slegið á léttari strengi. í „Þær sviku“ gerir hann tilraun til gamanvísnagerðar, tekst upp nokk sæmilega, og mér þætti garnan að sjá hvers konar viðrinni bað er af karl- kyni sem ekki þekkir sjálfan sig í „Ég vil þig“. Allir sem að þessum plötum hafa staðið eiga bakkir og mikið hrós skilið, Óðmenn, danskir upptökumenn, Jón Þórisson, sem gerði umslag og Egili Sigurðsson ljósmyndari, sem sannaði ágæta hæfileika sína. ★ Akur almennings... Framhald af bls. 13. gleymið hvers hún þarfnast, dregst hún upp og gefur enga uppskeru. Sáðkorninu verður að halda hreinu og óblönduðu. Hvert fylki hefur sína tegund. Aldrei að blanda sáðkorni sam- an.“ Þegar Wang San minntist þessara orða föður síns, lá við að hann ræki þau framan í fé- laga Lí. Líklega hefði hann gert það, ef þorpsbúar hefðu ekki tekið að gerast smeykir. Þeir hópuðust umhverfis hann, þögguðu niður í honum og hrópuðu margraddað, án þess nokkur segði til nafns síns, að Wang San myndi hlýða og þeir myndu allir hlýða. Látum bara íélaga Lí halda áfram með fyr- irskipanir sínar og það verður nákvæmlega farið eftir þeim. Og félagi Lí hóf mál sitt á ný. „Nýju plógarnir verða sendir hingað bráðlega. Með þeim koma kunnáttumenn til að kenna ykkur að fara með þá. Þangað til eigið þið að grafa upp göturnar milli akur- blettanna, og gera alla þessa smáskika að einu stóru akur- lendi, tilbúið undir plægingu. Þið munið fá meiri uppskeru en nokkru sinni hefur sézt hér.“ Wang San var nú kominn út í jaðar mannþröngvarinnar og enn var stjakað við honum. Hann gerði lokatilraun til að berjast fyrir sinni landareign. „Sáðkornið,“ hrópaði hann yf- ir þyrpinguna. „Hvar eigum við að fá útsæði?" „Ykkur verður séð fyrir sáð- 2. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.