Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 15
Dröfn H.
Farestveit
Pizza meS
pylsufyllingu
. 25 gr ger
1 V2 dl vatn
1 V2 msk olía
V2 tsk. salt
4V2 dl hveiti
Gerið hrært út í volgu vatninu.
Olíu bætt í, salti og hveiti. Hnoð-
að. Látið hefast í 30 mínútur. Fletj-
ið út. Ca. 30 cm í þvermál, og
setjið á smurða bökunarplötu. Skilj-
ið eftir ca. 2 cm brún á kökunni
þegar fyllingin er sett á. Brettið
síðan þennan kant yfir á fylling-
una. Látið hefast í 20 mínútur og
bakið við 225° I ca. 20 mínútur.
Pylsufylling:
Steikið í smjöri á pönnu 1
púrru skorna í hringi, 2 vínarpyls-
ur, og 4 frekar þykkar sneiðar af
spægipylsu skorinni i ræmur. 2—3
msk. af tómatkrafti settar á og 1
lítil paprika skorin í hringi. Breið-
ið fyllinguna yfir deigið og stráið
Italian Seasoning yfir og ca. 2 dl
af rifnum osti.
Sardínufylling:
2 laukar skornir í hringi. Steikt-
ir linir ( smjöri. Settir á deigið,
4—5 tómatar skornir í sneiðár og
ca. 20 fylltar olívur, 1 dós sardín-
ur, oregano og 150—200 gr af
osti skornum í teninga.
eldhús
vikunnar
Pizza er ítalskur þjóðarréttur,
sem lítið hefur verið kynntur hér-
lendis. Hann samanstendur af
brauðbotni, sem ýmist er pressu-
gersbotn eða mördeigsbotn. Fyllt-
ur með sardínum, tómötum og
og osti. Þegar tómatar eru ekki á
boðstólum má nota tómatkraft og
tómatsósu og niðursoðna tómata.
Hve sterkan ost við notum í þenn-
an rétt fer eftir smekk hvers og
eins. Þetta er Ijúffengur og fljót-
legur réttur, sem skemmtilegt er að
bera fram, t.d. eftir leikhús- eða
bíóferð með glasi af öli eða rauð-
víni. Auðvelt er að geyma pizza
djúpfyrsta eða án fyllingar. Hér á
eftir fara nokkrar uppskriftir af
botnum og fyllingum, sem hver cg
ein húsmóðir getur valið úr.
ítölsk pizza
V2 dl volgt vatn
2 msk. olívuolía
ca. 400 gr hveiti
25 gr ger
Gerið leyst upp í volgu vatninu.
Olívuolíunni bætt í. Hveitinu sáldr-
að saman við og hnoðað. Það sem
ekki gengur í deigið þegar hnoðað
er, er geymt þar til deigið er flatt
út. Deigið látið bíða og hefast.
Fletjið út í tæplega V2 cm þykka
köku og setjið í mót. Einnig má
setja deigið á bökunarplötu. Látið
hefast aftur.
Fylling:
100 gr sardínur
200 gr smurostur
6 tómatar
2 msk. olívuolía
dál. salt, timian
Osturinn smurður út yfir dsigið.
Tómatarnir skornir í sneiðar og
settir á ostinn. Sardínurrar settar
þar á ofan. Salti stráð yfir og t'm-
ian. Nokkrirdropar af olívuolíu
settir yfir. Bakið í vel heitum ofni.
14 VIKAN 2 tbi.
Pizza í formi
100 gr hveiti
60 gr smjör eða smjörlíki
20 gr ger
2—3 msk. vatn
V2 tsk. salt
4 tómatar
2 msk. saxaður laukur
litlar pylsur
Lagið venjulegt gerdeig. Fletjið
% af deiginu í smurt form. Þekið
með tómatsneiðum lauk og pylsum
og stráið salti yfir. Bakið við 220°
í 20—30 mínútur. Gott er að bera
grænmetissalat með.
í DAG BJÓBUM VIÐ
Pizza
150 gr hveiti
2 msk. smjör
V2 dl vatn
'/2 dl mjólk
35 gr ger
4—5 tómatar
sardínur
200 gr ostur
olívur (má sleppa)
salt, pipar
Gerið hrært útí volgu vatni.
Smjörið mulið í hveitið. Hnoðið
saman með uppleystu gerinu og
mjólkinni. Látið hefast í 20 mínút-
ur. Flatt út I stóra köku og látið
hefast í forminu í 10 mínútur. Tóm-
atsneiðar, saxaðar sardínur, rifinn
ostur og olívur settar á botninn.
Salti og pipar stráð yfir. Bakið
við 200° í ca. 20—30 mlnútur.
Ekta pizza
3 dl hveiti
1 dl volgt vatn
15 gr ger
1 msk. olía
Fylling:
200 gr ostur
1 dós sardínur I tómat
10 olívur
4 tómatar
2 msk. tómatkraftur
3 msk. rifinn ostur
V2 tsk. timian, rosmarin og
salvía eða basilkum og
oregano
Deigið búið til á venjulegan
hátt. Flatt út og þakið með helm-
ingnum af ostinum, skornum í
þunnar sneiðar. Sardínunum skipt
í bita og dreift yfir kökubotninn
ásamt olívunum og tómötunum í
sneiðum. Þekið að síðustu með
ostasneiðum og rifna ostinum.
Penslið með olíu og dreifið tómat-
krafti yfir og stráið kryddinu yfir.
Látið hefast í ca. 20 mín. og bakið
við 225° I ca. 20 mínútur.
Pizza er ítalskur
þjóSarréttur, sem
nýtur mikilla
vinsælda um þessar
mundir víða um heim.
2. tbi. VIKAN 15