Vikan - 14.01.1971, Blaðsíða 50
í NÆSTU VIKU
i___________
Umhverfis ísland á skútu
Bandarísku hjónin Pat og Wright Britton sigldu
umhverfis ísland á lítilli skútu í fyrrasumar.
Margt gerðist í þeirri ferð, og oft voru þau
hjónin hætt komin á skútunni sinni. í næstu
Viku segir frá hinni ævintýralegu ferð þeirra.
Smásaga
eftir Sigrid
Undset
Við höldum áfram
að birta smásögur
eftir Nóbelsskáld-
konur. Að þessu
sinni er röðin kom-
in að norsku skáld-
konunni Sigrid Und-
set. Sagan hennar
heitir „Hallvarður
helgi".
Byltingin
í fullum
gangi
í fyrsta blaði þessa
árs brugðum við á
leik og birtum of-
urlítið ævintýri um
byltingu, sem gerð
var í Reykjavík. I
næsta blaði segir
frá fyrsta morgni
hins nýja Byltingar-
íslands.
Ný framhaldssaga hefst
Gullni pardusinn nefnist ný framhaldssaga,
sem hefst í næsta blaði. Hún gerist i Englandi
á dögum Cromwells og segir frá sjóræningjum
í Karabíuhafinu. Þetta er spennandi ástar- og
ævintýrasaga, sem við ráðleggjum lesendum
að fylgjast með frá upphafi.
Hvers vegna er Kalli öðruvísi?
Börn taka fljótlega eftir því, að hitt kynið
er öðruvísi skapað. Þetta getur stundum haft
vandamál í för með sér. Hvernig eiga for-
eldrar að bregðast við vandanum? Það segir
frá því í næsta þætti greinaflokksins Við og
börnin okkar.
Klæðnaður
vetrarins
á Tslandi
Skömmu fyrir ára-
mót stóðu Módel-
samtökin fyrir mik-
illi tízkusýningu á
Hótel Sögu, og í
næstu Viku getur að
líta margar myndir
frá henni. Sýningar-
stúlkur voru marg-
ar kunnar, meðal
annars Henny Her-
manns.
HITTUMST AFTUR - í NÆSTU VIKU
breiddi úr bréfinu og las það frá.
orði til orðs, eins og hún vildi læra
það utanbókar. Hér hlaut að vera
um arf að ræða. Hvers vegna
hefðu þeir annars farið að skrifa
henni? Að hugsa sér, ef hann hefði
nú skilið eftir sig svolitla peninga-
upphæð, kannski nokkur hundruð
krónur, kannski vexti af þúsund
krónum! Ó, hún skyldi þiggja þá
með glöðu geði, hverfa frá Stokk-
hólmi að fullu og öllu, setjast að
einhvers staðar úti á landi, þar
sem enginn þekkti hana. Ef til vill
gæti hún fengið þar góða atvinnu,
svo að hún losnaði við tónlistar-
kennsluna, sem hún gat engan
veginn lifað af. Og heldur mundi
hún gerast vinnukona en fara með
Ingigerði aftur í þessa svokölluðu
kvöldverði hennar.
Mikaela hélt áfram að lesa bréf-
ið: Umboðsmenn okkar í Stokk-
hólmi . . . lögfræðingarnir Pohl-
man og Gren, Kunghólmsgatan . . .
veita allar upplýsingar .... eins
fljótt og mögulegt er . . .
Hún þauf fram í skonsuna og
tók að bursta Ijóst og mikið hár
sitt og reyna að hylja afleiðingar
veikindanna, sem óneitanlega settu
mark sitt á andlit hennar. Hún
varð að hafa hraðan á. Hún klæddi
sig í snatri og var ánægð með
dragtina, sem hún fór í, þótt hún
væri raunar orðin þriggja ára göm-
ul, og farin að láta talsvert mikið
á sjá. Móðir hennar hafði saumað
hana. Hún ætlaði að taka spor-
vagninn. Hún treysti sér ekki til
að ganga alla leið að Kungsholm-
en. Hún var enn mjög máttfarin
eftir veikindin. En hún hafði enga
ró í sínum beinum. Hún varð að
komast af stað strax.
Tveimur tímum síðar steig Mika-
ela út úr lögfræðiskrifstofunni.
Aftur og aftur hafði Pohlman þurft
að fullvissa hana um, að hér væri
ekki um neinn misskilning að
ræða. Ef hún væri Mikaela Linder,
dóttir Elisabeth Linder og systur-
dóttir Per Uno Melander, þá væri
hún eini erfingi eigna hans, sem
væru síður en svo litlar.
Henni hafði tekizt að færa sönn-
ur á, hver hún væri. A síðustu
stundu hafði hún munað eftir að
taka með sér skilríki s(n og móður
sinnar. Það var ekki neinum vafa
bundið hver hún var. Pohlman lög-
fræðingur hallaði sér aftur á bak í
stólnum og sagði:
— Ungfrúin fer að sjálfsögðu
brátt til Jönköping og tekur við
arfinum. En ef til vill þurfið þér
að kaupa yður sitt af hverju, áður
en þér le^qið upp ( þá ferð . . .
Hann horfði snöggt á slitnar lín-
ingarnar á dragtinni hennar, en
tók síðan fram ávísanahefti og út-
fyllti ávísun og fékk henni . . .
Framhald í næsta blaði.
50 VIK'AN 2- tw.