Vikan - 08.07.1971, Síða 25
Vegavinna árið 1904.
Aftari röð frá vinstri: Pétur Eiríksson skósmiður; Björn Magnús-
son, siðar símstjóri; Gunnar Jónasson frá Hólakoti á Reykja-
strönd; óvíst um nafnið. Fremri röð frá vinstri: Steindór Jóns-
son smiður; Jóhann Jóhannesson skósmiður; Þorsteinn Sigur-
geirsson verzlunarmaður hjá ,/K.G."; Daníel Davíðsson Ijós-
myndari. Myndin er tekin laust eftir aldamót.
þeirra 03 siðum og létu sig litlu skipta afkomu þeirra. Sauð-
árkrókur varð bær hins nýja tíma, var í reifum, þegar
þjóðfrelsisöldurnar bar hæst með þjóðinni.
Danir þeir, sem heima áttu á Sauðárkróki fyrsta áratug-
inn og síðar, sömdu sig mjög að háttum annarra þorpsbúa,
Útreiðar. Claessensfólkið fyrir framan hús Kristjáns skipasmiðs.
Myndin er tekin árið 1900.
gerðu sér far um að nema íslenzku, kynnast íslenzkum
háttum og litu á sig sem hálfgildings íslendinga. Flest eða
allt, sem til framfara horfði í þorpinu, má beint eða óbeint
rekja til þeirra . . . Einkum gat Valgarð Claessen sér gott
orð. Þótt ungur væri, er hann kom til Sauðárkróks, var
hann orðinn gagnkunnugur íslenzkum háttum og talaði og
ritaði íslenzku. Kristín kona hans gat sér á unga aldri
mikið orð fyrir góðar gáfur og áhuga á þjóðræknis- og
menningarmálum. Rómað var, hve þau hjón voru hlý í
viðmóti og alþjóðleg í framgöngu.
Aldurinn var ekki heimilisfeðrum á Sauðárkróki að
meini, meðan bærinn var í reifum . . . Meir en helmingur
húsráðenda er innan við 35 ára aldur, aðeins þrír komnir
yfir fertugt. Þeir, sem mestu ábyrgðarstöðunum gegna,
Fyrsti hjólhesturinn á Sauðárkróki. Jóhannes NorðfjörS, Ól.
Blöndal og Arent Claessen.
faktorarnir, eru báðir innan þrítugs. Er ekki að efa, að
slíkt hefur haft heillavænleg áhrif á bæjarlífið, örvað til
félagsstarfs. Það var líka skjótt rómað, hve Sauðkrækingar
voru félagssinnaðir.
Lítið bar á innbyrðis deilum í þorpinu fyrstu árin. Að
vísu kastaðist í kekki milli manna, en slíkt markaði yfir-
leitt ekki djúp spor. Fyrsta málið, sem höfðað er gegn
Sauðkrækingi, er meiðyrðamál. Menn voru hörundsárir í
þá daga.
Því hafði verið spáð fyrir löngu, að Sauðárkrókur mundi
Jk
27. TBL. VIKAN 25