Vikan - 09.09.1971, Side 16
ORN EIÐSSON
SKRIFAR UM
HEIMSFRÆGA
IÞROTTAMENN
MAÐURINN SEM SETTIHEIMSM
Arne Borg vann fyrsta sigur sinn
í Strömsbadet í Stokkhólmi.
Árið 1946 íór fram, at-
kvæðagreiðsla í félagi íþrótta-
manna í Stokkhólmi um það,
hver væri mesti afreksmaður
sænskra íþrótta frá upphafi.
Sigurvegari í þeirri atkvæða-
greiðslu var sundkappinn
heimskunni, Arne Borg. Arne
var einstakur afreksmaður,
hann setti alls 31 heimsmet,
40 sinnum varð hann sænsk-
ur meistari og ógerlegt er að
slá tölu á alla hans heiðurs-
titla og sigra í einstökum
löndum, en hann fór sem
svarar tvívegis umhverfis
jörðina á keppnisferðum sín-
um.
Hið frábæra keppnisskap
Arne Borg náði hámarki, er
hann bætti heimsmetið í 1500
m skriðsundi á móti í Bologna
1927 um eina mínútu, að
marga áliti eitthvert mesta
íþróttaafrek, sem unnið hef-
ur verið. En nú skulum við
kynnast þessum sérstæða af-
reksmanni lítillega.
„Það er ekki vegna þess að
þú ert óhlýðinn strákhvolpur
— marga slíka hef ég tamið
áður, að ég gef þig upp á
bátinn. Heldur og fyrst og
fremst vegna þess, að þú ert
algerlega hjálparlaus. Þú
munt aldrei Iæra að synda
rétt.“ Þennan harða dóm
felldi einn kunnasti sundþjálf-
ari Svía, Sixtus Johansson,
haustkvöld eitt árið 1908 og
sá sem dóminn hlaut var sjö
ára snáði, ARNE BORG. Þetta
var á æfingu hjá Sundfélagi
Stokkhólmsborgar og þangað
var aðeins hleypt inn efni-
legustu sundmönnum eða
drengjum borgarinnar. Sixtus
afsakaði sig fyrir öðrum með
því að segja, að Arne Borg
hefði eiginlega stolizt á æf-
ingar hjá félaginu. Hann hélt
því fram, að hann hefði gert
sitt ítrasta til að kenna þess-
um ónytjungi réttu sundtök-
in, en án árangurs. Þeir Arne
og Sixtus voru báðir ánægðir
með aðskilnaðinn. Þetta gerð-
ist 1908, en Arne fæddist í
Stokkhólmi 18. ágúst 1901.
Ellefu árum síðar, árið 1919
kemur þessi byltingarkenndi
sundmaður aftur við sögu, það
gerðist í Strömsbadet í Stokk-
hólmi á unglingameistaramóti
borgarinnar. Arne Borg lét
skrá sig í mótið, þrátt fyrir
hinn harða dóm, sem sund-
kunnátta hans hlaut hjá hin-
um fræga sundþjálfara, sem
Þessi mynd var tekin á Olympíuleikunum í Amsterdam 1928, en þar
sigraði Arne Borg í 1500 m skriðsundi. Einn helzti keppinautur hans
var Ástralíumaðurinn Boy Charjton, en það sést einmitt í kollinn á
honum á myndinni.
áður er getið. Við skulum
heyra hvað sænska íþrótta-
blaðið sagði um mót þetta í
ágúst árið 1919:
„Ekkert sérstakt hafði gerzt
á mótinu, þegar 500 m skrið-
sundið hófst. Martin Norberg
var talinn hinn öruggi sigur-
vegari. Meðal keppenda var
óþekktur ungur maður, Arne
Borg. Hann hóf sundið með
miklum hraða og varð fljót-