Vikan


Vikan - 16.09.1971, Side 24

Vikan - 16.09.1971, Side 24
BORÐBÚNAÐUR SEM FÆST í REYKJAVÍK TEXTI: SIGRÍÐUR HARALDSDÓTTIR OG VALGERÐUR HANNESDÓTTIR MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON í tilefni af landsþingi Kvenfélagasambands fslands var haldin sýning á dúkuðum borðum til þess að gefa konum utan af landi kost á að sjá nokkrar tegundir af þeim borð- búnaði sem á boðstólum er. Voru félagsmenn í félagi búsáhalda- og járnvörukaup- manna beðnir að lána borðbúnað og urðu verzlanir Bierings og Hamborgar við þeim tilmælum K. f. Konurnar gerðu góðan róm að sýningunni og væri ekki úr vegi, að búsáhaldakaupmenn efndu öðru hverju til slíkra sýninga fyrir húsmæður. — Flestar búsáhaldaverzlanir í Reykjavík eru í þröngum húsakynnum og þar vill oft ægja öllu saman, svo að erfitt er að átta sig á, hvað raunverulega er á boðstólum. Það er undantekning, ef sést dúkað borð í nokkurri bús- áhaldaverzlun. Það liggur þó í augum uppi, að slíkt mundi auka fegurðarskyn neytenda. Neytendur mundu einnig bet- ur geta áttað sig á notkunargildi fallegra hluta við að sjá þeim smekklega raðað upp í réttu umhverfi. Aldrei höfum við átt kost á jafnmiklu af fallegum hlutum til að setja á borðið og nú, en jafnframt er orðið æ algeng- ara, að við gefum okkur minni tíma til þess að njóta þeirra og til þess að halda við þeirri borðmenningu sem tíðkazt hefur um aldaraðir. Engin skemmtun jafnast á við það að setjast að fallega dúkuðu borði og snæða „í rólegheitum" með fjölskyldunni eða í kunningjahópi. Hitt er annað mál, að í ysi og þysi dagsins vill oft brenna við, að húsmæður skeyta ekki um borðmenninguna og gefa sér ekki tíma til að leggja snyrtilega á borðið, og þar með eru borðsiðirnir roknir út í veður og vind. Ljósmyndari Vikunnar leit inn á sýningu K. í. og birtast hér nokkrar myndir frá henni. ☆ 24 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.