Vikan - 09.11.1972, Page 5
að gleyma öðru n-inu í skrift-
inni. Vog og fiskur geta orðið
mjög hrifin hvort af öðru, en
gengur stundum sarnan að ná
saman andlega.
Enn um Clark
Gable
Aðdáanda Clark Gables hafði
ekki fyrr verið svarað, er við
mundum eftir öðru blaði, sem
fengur geeti verið í. Clark
finnst nefnilega einnig í 7. tbl.
34. árgangs Vikunnar, sem út
kom 17. febrúar 1972, og þar
prýðir hann 3 síður bæði í lit-
um og svart/hvítu. Og ætti þá
aðdáendum Gables að vera
borgið, þar sem þeir fá hann
nú líka í skömmtum í sjónvarp-
inu.
Halló Færeyjar!
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur, og
okkur langar til að biðja þig að
gefa okkur upp nafn á algengu
kvennablaði, tímariti eða dag-
blaði í Færeyjum, þar sem við
getum fengið birt nöfnin okk-
ar. Við vonum, að þú getir sagt
okkur þetta og þökkum fyrir
allt gott, sem þú hefur birt. —
Hvernig er skriftin, og hvað
lestu úr henni, og hvernig fara
vatnsberinn og tvíburinn sam-
Dimmalætting heitir aðalblaðið
í Færeyjum, og okkur er sagt,
að það sé útbreiddasta blað í
heiminum, miðað við fólks-
fjölda, svo að ykkur ætti að
vera borgið, ef þið skrifið því.
Skriftin er ekki glæsileg, hvor
ykkar sem á hana, en liklega
er hún ekki fullmótuð ennþá, og
þess vegna treystum við okkur
ekki til að lesa mikið út úr
henni. Vatnsberi og tvíburi geta
óhrædd krækt höndum saman.
Dýralæknir
Kæra Vika!
Þannig er mál með vexti, að
mig langar að biðja ykkur að
hjálpa mér. Ég er 18 ára og mig
langar til þess að verða dýra-
læknir. Er hægt að læra það
hér á landi? Hvaða menntun
þarf til þess að komast í þetta
nám? Ég vonast eftir svari
fljótt. Kær kveðja.
D.Þ.
Dýralækningar eru ekki kennd-
ar hér á landi, og það þarf
stúdentsmenntun til þess að
geta lagt stund á þær. íslenzk-
ir dýralæknar munu flestir hafa
numið sín fræði á Norðurlönd-
unum.
Krydd lífsins
Sæll, elsku Póstur!
Þannig er mál með vexti, að
ég er hrifin af strák, eins og
aðrar. Við vorum saman um
tíma í fyrra. En ég er hrifin af
honum ennþá, og hann veit
það. Hann er búinn að vera
með stelpu nú um tíma. Hvernig
get ég náð í hann? Ég er
alls ekki feimin. Hvernig eiga
tvíburi og vatnsberi saman? —
Hvað lestu úr skriftinni?
Ein 14 ára.
Úr skriftinni má sannarlega
lesa, að þú ert bara 14 ára
skólastúlka, sem virðist hafa
slegið slöku við námið, a. m. k.
hefurðu ekki tileinkað þér ein-
földustu stafsetningarreglur. —
Líklega hefur strákastússið tek-
ið fullmikið frá náminum ætlum
við. — Láttu strákinn alveg
eiga sig, hann er hvort eð
er ábyggilega ekki að hugsa
um þig, fyrst hann veit, að þú
ert hrifin af honum, en er samt
með annarri. Strákar eiga bara
að vera krydd lífsins á þessum
árum, en hreint ekki aðalfæð-
an. Stundaðu námið og bland-
aðu geði við sem flesta jafn-
aldra þína af báðum kynjum.
Tviburi og vatnsberi geta átt
vel saman, og það máttu muna
eftir 4—8 ár, þegar þú getur
farið að hugleiða þessi mál i
alvöru.
SAMKVÆMISSPIL FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
6 spil í einum kassa
•
DAM - DERBY - HALMA - GÆSASPIL
LUDO - MYLLA
•
Spilareglur á íslenzku
Heildsölubirgöir:
Páll SænmdssiM
Laugavegi 18A - Símar 14202 - 14280
45. TBL. VIKAN 5