Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 11
einkenni eins og auknar reykingar
og drykkjuskapur.
Þegar líkaminn hefur þannig
sent skilaboð um hættuástand, er
uni að gera að snúast strax til varn-
ar. Eftirfarandi ráð liefur reynzt
mjög vel: Taka skal daglega lausa
stund í einrúmi, jafnvel þótt ekki
séu nema 10 mínútur til umráða.
Eeggjast skal fyrir á þann hátt, sem
manni liður bezt, og huganum beint
að því einu að gera líkamann eins
slakan og þungan og framast er
unnt. Bvrjað er á þvi að segja tán-
um að slaka á og þyngjast og farið
þannig hægt og rólega upp eftir
öllum líkamanum og hverjunr lík-
amshluta fyrir sig sagt að slaka á
og þyngjast. Þegar líkami'nn er orð-
inn þungur eins og kartöflupoki, er
spennan horfin úr honum, og hug-
urinn getur hvílt sig við ímyndað-
an lækjarnið og grænt gras og blá-
an sumarhimin. Síðan þarf að
vekja hvern líkamshluta fyrir sig,
og það getur kostað talsvert átak
að hverfa aftur til raunveruleik-
ans. En þegar náðst hefur gott vald
á þessari æfingu, heiur hún undra-
verð áhrif á líðan manna, Hún er
t. d. mjög góð fyrir fólk, sem þjáist
af svefnleysi.
Þunglyndi er eitt af þeim ein-
kennum, sem of mikið stressy leiðir
í ljós. Það er um að gera að rífa
sig strax upp úr þunglyndisköstum
og má nota ýmsar aðferðir til þess
að dreifa huganum. Það er hægt að
bregða sér í leikhús, kvikmynda-
hús eða út að borða, jafnvel smá-
ferðalág, ef aðstæður eru til. Mörg-
um konum er einfaldlega nóg að fá
sér nýjan kjól eða skreppa á hár-
greiðslustofu. Mjög margar konur
Framhald á bls. 43.
i
i
i
<
ATBURÐIR STIG
1 Giftinq. (5»
2 Makamissir 45
3 Barnsfæðing/ ungbarnsumönnun 100
4 Uppsögn í starfi (eigin eða maka) 45
5 Hjónaskilnaður 75
S Aðskilnaður hjóna B
7 Óvelkomin þungun •0
8 Óregla á tíðum 15
9 Fyrsta kynlífsreynsla »
10 Kynlífsvandamál 25
11 Ósamkomulag við maka 25
12 Lát fjölskyldumeðlims (annars en maka) •0
13 Lát náins vinar 40
14 Heilsufarsbreyting einhvers í fjölskyldunni 30
15 Hjónasátt (eftir meiriháttar misklíð) 40
16 Starfi hætt vegna aldurs 00
17 Eigin meiðsli eða veikindi 35
18 Niðurlæging i starfi eða félag'Slífi 35
19 Breytingatímabil kvenna 40
20 Ósamkomulag við yfirmann 25
Þennan lista getur hver og einn notað sem hjálpartæki til að lifa heil-
brigðara og hamingjusamara lífi. Ágætt er að byrja á því að fara yfir
atburði síðustu tólf mánaða og gefa þeim atburðum stig, og útkoman
úr þeirri athugun getur hjálpað til við að gera áætlanir til næsta árs.
Mikilvægt er að muna alltaf, að þetta er mjög persónuleg athugun.
Stigin, sem gefin eru á meðfylgjandi töflu, eru aðeins til viðmiðumar,
og pað er ekkert undarlegt, þótt þau sýni e. t. v. allt aðra útkomu en
manni sjálfum kann að virðast eðlileg. Tökum nr. 40 sem dæmi. Þeim,
ATBURÐIR STIG
21 Lántaka innan við 200 þúsund 20
22 Skortur á greiðslugetu fyrir áfallinni skuld 40
23 Lántaka yfir 200 þúsund 30
24 Sonur eða dóttir fer að heiman 30
25 Hætt að reykja eða drekka 25
26 Dauði heimilisdýrs 15
27 Fæðubreyting (megrun eða sjúkrafæði) 25
28 Breytingar á kunningjahópi 20
29 Ósamkomulag við foreldra 30
30 Börn byrja eða hætta í skóla 15
31 ÓsamkomOlag við tengdafóik 20
32 Breyting á efnahag (á annan hvorn veginn) 15
33 Skipt um starf 30
34 Afreksverk/persónulegur sigur á einhverju sviði 35
35 Bústaðaskipti 35
36 Skipt um áhugamál 15
37 Frí 15
38 Ósamkomulag við nána vini eða ættingja 20
39 Árekstur við lögin 35
40 Sambúð við eldri ættingja 50
sem gengur illa að þola tengdamóður sína, kann vera hennar á heim-
ilinu að valda sltku stressi, að stigatalan 100 væri ekki óeðlileg. Sé
um gagnkvæma velvild að ræða og sambúðin snurðulaus, gæti stiga-
talan 5 verið nær lagi. Eins er með t. d. 37. Ef um hóteldvöl er að
ræða, þarf undirbúningurinn ekki að kosta mikið erfiði, en eigi að
fara í útilegu eða óbyggðaferð, getur undirbúningurinn orðið talsvert
álag á starfsþrekið. Þetta verður hver og einn að meta algjörlega frá
eigin sjónarhóli.
45. TBU VIKAN 11