Vikan


Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 22

Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 22
— Já. —- Og þetta? — Það er eins. Ég sneri mér við og opnaði augun. Lögregluforinginn sagði: — Annað var þegar dyrnar lokuðust, svona. Hitt hljóðið var í lásnum. Eruð þér alveg viss um að þér hafið ekki heyrt þetta tvisvar? — Ég heyrði þetta aðeins einu sinni . . . og þó . . . — Og þó hvað? — Þegar hundarnir komu nær voru þeir geltandi, það hefði getað heyrzt í lásnum þá, án þess ég heyrði það. — Malin! Klemens gekk eitt skref í áttina til mín. — Þetta er ósanngjarnt, lögreglufor- ingi! Lásinn Wlýtur að hafa skroppið í, þegar hún fór út. Þá fyrst varð mér ljóst hvað orð mín giltu. Ef dyrunum hefði verið læst með vilja að baki hennar, þá var þetta morð. Án þess að nokkur maður hefði snert hana með einum fingri. — Nei — það er ómögulegt . . . lásin getur ekki hafa skroppið í af sjálfu sér. Hann leyfði okkur að fara. Klemens settist aftur við hlið mér og nær í þetta skipti, svo að ég fann fyrir handlegg hans. Claes þrýsti sér upp að mér hinum megin. Eftir stundarkorn kom Lemming aftur og tók til að yfirheyra fólkið. Sumar spurn- ingarnar endurtók hann æ of- an í æ. Hvar við hefðum ver- ið, þegar hún fór að hljóða? Það voru aðeins við Klemens, sem höfðum verið á fótum, hann í steypibaðinu og ég við gluggann. Allt hitt fólkið hafði verið sofandi í rúmum sínum. Hver í sínu rúmi. Enginn heyrði neitt, fyrr en hávaðinn jókst. Og hundarnir. Jú, fólk- ið hafði heyrt í þeim, eftir að hún tók að hljóða. Allir voru svo vanir við gelt hundanna að þeir voru hættir að heyra þegar þeir fóru að gelta. Síðan spurði hann að því hvort það hefði verið venju- legt að ungfrú Dickman færi út í garðinn á kvöldin. Flestir viðurkenndu að vita um það. Svo kom garðyrkjumaðurinn, Lemming hafði látið gera boð eftir honum. Hann var náföl- ur og skjálfandi af hræðslu. Jú, hann viðurkenndi að hafa verið að vinna í garðinum all- an seinni part dagsins. — Skilduð þér hliðið eftir opið, þegar þér fóruð inn? Maðurinn varð ennþá bræðslulegri. — Það held ég ekki. Ég er alltaf vanur að læsa því — það hefur aldrei hent mig. — En munið þér ekki ná- kvæmlega hvort þér læstuð í þetta sinn? Vesalings maðurinn var þá að því komin að líða útaf. — N-ei. Maður gerir þetta ósjálf- rátt, en ég hlýt að hafa gert það. — Það var samt opið, sagði Lemming. — Renfeldt sendi- herra man eftir að hafa tekið eftir því að hliðið var opið um áttaleytið. Axel greip fram í með sinni rólegu og valdmannslegu rödd. - É'g hefði átt að sjá til að því væri lokað, það var yfir- sjón, sem ég fyrirgef aldrei sjálfum mér. Lö"reí?iuforinginn spurði hvort nokkur annar hefði tek- ið eftir að hliðið var opið, en allir hristu höfuðin. Claes lá á öxlinni á mér og var svo þreytulegur að ég tók á mig rögg, stóð upp og spurði: - Má ég ekki fara upp með drenginn. Hann verður að kom- ast í rúmið, hann er alveg upp- gefinn. Lögregluforinginn kinkaði kolli, en við höfðum aðeins gengið nokkur skref, þegar einn af lögregluþjónunum kom inn í forsalinn með einhvern hlut, vafinn í plast. — Við fundum þetta í garðinum. herra lögregluforingi, og við héldum að þetta gæti kannski verið mikilvægt. Lemming skoðaði þetta vand- lega, án þess að snerta á því. —• Hvar funduð þið þetta? — í runna vinstra megin við dyrnar, fjórum metrum frá þeim. —- Hafið þið séð þetta áður? spurði Lemming og hélt hlutn- um á lofti. Þetta var hvítt, af- langt málmstykki, sjö, átta sentimetrar á lengd og ég gat ekki séð það fyrr en ég gekk nær. —■ Þetta er flauta, sagði Klemens, flauta til að kalla hundana inn á morgnana, þeg- ar á að — þegar átti að læsa þá inni. Lemming leit á mig. — Heyrðuð þér blísturshljóð, ung- frú Bergström? — Nei, ég heyrði ekki blíst- urshljóð. — Það heyrist ekki í henni, sagði skær barnsrödd við hlið mér. — Það eru aðeins hund- arnir sem heyra það. Góði guð, nei, bað gat ekki verið! hugsaði ég alveg viðut- an. Enginn gat hafa gert slíkt: Blístrað á hundana, þegar það var ljóst að Vera var í garð- inum og hliðið ólæst . . . Ég veit ekki hve mörg okk- ar hafa hugsað þetta sama. Ég trúði ekki að Claes hefði dott- ið það í hug og ég vildi fá hann í burtu, áður en honum kæmi slíkt í hug É'g flýtti mér með hann að stiganum og lög- regluþjónarnir höfðu ekkert við það að athuga. Ég kveikti ljós í herberginu hans, en hann stanzaði við dyrnar. — Eg vil ekki vera einn, Malin. Hann var of stór til að skríða upp í rúmið mitt, en mér var alveg sama. Hg þurfti sjálf á félagsskap að halda, þessa hræðilegu nótt. Ég lokaði glugganum og hugsaði með mér að framveg- is myndi ég ekki geta notið ilmsins frá blómagarðinum. Okkur var báðum kalt, þar sem við lágum í stóra rúminu. Claes skreið nær mér og smám saman hlýnaði honum. Hann sofnaði og ég varð líka rólegri við að hlusta á rólegan andar- drátt drengsins. Sjálf hef ég líklega blundað við og við, en ég glaðvaknaði eftir nokkra klukkutíma. Og þá komu hin- ar hræðilegu minningar yfir mig, eins og holskefla. Ég renndi mér fram úr rúm- inu og skokkaði að gluggan- um. Þeir voru ennþá í garðin- um og mér fannst að þeir myndu finna ef eitt strá hall- aði í aðra átt en eðlilegt var. Ég sá einn þeirra beygja sig niður og taka eitthvað upp, veifa síðan til félaga síns. En ég heyrði ekki hvað þeir sögðu og vildi ekki opna gluggann. Hvers vegna vildi einhver ryðja Veru Dickman úr vegi? Ég gat ekki trúað því, hún hlaut sjálf að hafa skellt óvart í lás. Flautan . . . Lögregluforing- inn hafði ábyggilega spurt hitt fólkið, þegar við Claes vorum farin og ég hafði ekki heyrt svörin, en ég hefði ekki orð- ið hissa þótt ég hefði heyrt að einhver hefði týnt henni fyrir löngu síðan. Að minnsta kosti gat eng- inn framið slíkan glæp, nema alvarlegar ástæður væru fyrir því, einhver sem hataði hana svona æðislega. Claes var að vísu illa við hana, en þetta illvirki gat ekkert barn fram- ið. Ef þér snertið mig, þá drep ég yður. Hún hafði slegið hann utan undir, en öll börn geta sagt sitt af hverju í reiði, án þess að leggja nokkra mein- Framhald á bls. 43. 22 VIKAN 45. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.