Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 30
Hvorki þér né Ajax
þurfið sjálfvirka þvottavél
til að fá gegnhreinan, hvítan þvott
því Ajax er sjálft sjálfvirkt
Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla
/•
Ajax er gætt sjálfvirkri
Þvottaorku og hreinsimætti,
sem óhreinindin fá ekki staöizt.
Ajax er kjörefnið í stórÞvottinn - gerir
hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er
lika tilvalið í fínni Þvotta, t. d. orlon og
nælon, sem gulna Þá ekki. Ajax
er rétta efnið, ef leggja
Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið
Þá Ajax og horfið á
/ óhreinindin hverfa.
Meö Ajax - efnakljúfum
verður Þvotturinn
gegnhreinn og
blæfallegur.
ALLIR ERU
HRÆDDIR VIÐ DADA
Framhald af bls. 19.
erlendis frá, þar á meðal
skriðdreka og flugvélar. Oganda,
sem er sárlega vanþróað og
hjarir af þvi að selja kaffi og
banana, var i botnlausum
skuldum fyrir, og viö»-þessi
vopnakaup margfölduðust þær.
Úgandabúar, tiu milljónir
talsins, hlutu að verða vaxandi
erfiöleika i efnahagslifinu varir,
og Amin fór að svipast um eftir
einhverjum til að skella skulijinni
á, bæöi utan lands og innan. Fyrst
hótaöi hann striði á hendur
Tansaniu, vegna þess aö þetta
riki væri I árásarhug gagnvart
Úganda. Siöan ásakaöi hann Kina
fyrir aö standa að baki Tansana i
illum ásetningi þeirra gegn
Úganda. Næst rak hann úr landi
sjö hundruö israelska þróunar-
starfsmenn, herráðgjafa og
kaupsýslumenn. og höfðu
lsraelsmenn þó til þessa veriö
vinir hans mestir. Af þessum
sökum vingaðist Libia, sem hatar
Israel af miklum móði, við
Úganda og veitti þvi lán af
oliuauðlegð sinni.
Og þá var röðin komin að
Aslumönnunum. Að venjulegum
hætti duglegra kaupsýslumanna
höfðu þeir plokkaö viðskiptavini
sina eftir beztu getu, og voru af
þeim sökum litt elskaðir af
sauðsvörtum (i þessu tilfelli i
bókstaf legri, merkingu)
almúganum. Niunda ágúst
siöastliöinn lýsti Amin yfir „efna-
hagslegu striöi.” Hann þrumaði:
„Asiumennirnir hafa arðrænt
okkur efnahagslega, þeir hafa
þurrnytlaö landiö, smyglað úr
landi miklu vörumagni og neitað
að blandast afriskum íbúum
landsins. Þeir hafa nákvæmlega
nlutfu daga fyrir sér að yfirgefa
Úganda. Rlkið kaupir hús þeirra
og fyrirtæki, og þá loksins rennur
upp sá dagur að Úgandamenn
stjórna sjálfir efnahagsmálum
slnum.”
Þessari þrumuræðu fylgdi runa
af m ó t s a g n a k e n n d u m
yfirlýsjngum. Fyrst var þvi
fastlega haldið fram að aliir
Aslumenn búsettir i Úganda,
alls um áttatlu þúsund talsins,
skyldu hypja sig, en slöan var
dregið i land og sagt aö aðeins
þeir Indverjar og Pakar, eitthvaö
um þrjátlu þúsund að tölu, sem
ákveöið höföu aö vera framvegis
brezkir borgarar er Úganda varö
sjáífstætt 1962, þyrftu að fara. 1
þriöja lagi yfirlýsti Amin að allir
sérmenntaöir menn, kennarar,
læknar, lögmenn, verkfræðingar
svo framvegis, skyldu verða
kyrrir, hvað sem liði rikisfangi
Framhald á bls. 35.
30 VIKAN 45. TBL.