Vikan - 09.11.1972, Page 33
edvard sverrisson
3m
músik með meiru
sagði, hefur hún verið hluti af
hljómsveitinni síðan.
Hawkwind hefur sent frá sér
tvær L.P. plötur, Hawkwind og
In Search Of Space, og eina
litla plötu, Silver Machine. —
Myndir af hljómsveitarmeðlim-
um birtast svo hér á síðunni,
en mynd af hinni margrómuðu
Staciu átti ég því miður ekki
til. ☆
Lemmy
29 ára. Lemmy er bassaleikari
Hawkwind. Hann kom í hljóm-
sveitina 1971.
Del Dettmar
30 ára. Hann er fyrrverandi kenn-
ari frá London. Hann sér nú um
hinn svokallaða Moog
Synthesizer.
Dik Mik
30 ára. Hann leikur einnig á
Moog og er jafnframt sérfræðing-
ur í transistorum og transistor-
tækni.
CARRY CLITTER
Garry Glitter kannast eflaust sumir við, en sumir ekki.
Garry er hin nýja stjarna brezka poppheimsins, 26 ára gam-
all og hefur verið syngjandi síðan hann var 16 ára. Hann hóf
feril sinn í Þýzkalandi eins og Bítlarnir, nánar tiltekið í Ham-
borg. Á árinu 1964 spilaði hann í klúbb í Hamborg sem hét
Star Club eða Stjörnuklúbburinn. Hann dáði mjög Little
Richard og vildi verða stórstjarna eins og hann. Það var hans
stóra takmark. —
Raunverulegt nafns hans er Paul Gadd og það þótti ekki
nógu gott til þess að vera nafn á stórstjörnu, svo hann breytti
því í Garry Glitter, sem hljómar óneitanlega skemmtilegar.
Það er samt ekki fyrr en nú í ár, sem Garry hefur hlotið vin-
sældir. Það er sama gamla sagan, að þegar einhver er reiðu-
búinn að gefa sig heiminum á vald, þá er heimurinn ekki til-
búinn. Með öðrum orðum, hver maður verður að bíða síns
tíma.
Fyrsta plata Garry Glitter, til þess að komast á vinsælda-
lista var Rock‘n Roll. Platan var gefin út í janúar á þessu
ári, en sást hins vegar ekki á listum fyrr en í júní. Þá stóð
hún hins vegar stutt við í hverju sæti, og hefur verið í efstu
sætum listans um langt skeið. Garry Glitter segir sjálfur að
hann hafi lært að rokka í Hamborg en ekki í Englandi, svo
ef til mætti spyrja, hvað lærðu Bítlarnir í Hamborg? Alla
vega urðu þeir vinsælir eftir að þeir komu þaðan.
Nýlega voru haldnir hljómleikar á Wembley leikvanginum
og komu þangað 50 þúsund manns. Myndin hér að neðan er
tekin á þeim hljómleikum og er ekki annað að sjá en að hann
beri Glitter nafnið með rentum.