Vikan


Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 48

Vikan - 09.11.1972, Blaðsíða 48
Er það Steve McQueen að kenna að kvikmyndastjarnan McGraw er nú að skilja við eiginmann sinn? Ali McGraw kom út tárun- um á gestum kvikmyndahúsa um allan heim, þegar hún lék hina hughraustu Jenny, há- skólastúlkuna, sem barðist við dauðann í stuttu hjónabandi, í kvikmyndinni „Love Story“, sem var eiginlega tákn nýrrar rómantískrar stefnu. En því miður fara líf og leikur ekki alltaf saman. Nú stendur þessi hugljúfa stúlka frá kvikmyndatjaldinu sjálf í skilnaðarmálum. flún hefur búið í hamingjusömu hjóna- bandi, eftir því sem ætla mátti af myndum og yfirlýsingum, með manni sínum, kvikmynda- framleiðandum Bob Evans, sem er einn af framkvæmdastjór- um Paramount. Þau eiga 19 mánaða gamla dóttur og í sum- ar var ekki annað að sjá en að þetta væri hamingjusöm fjöl- skylda í sumarleyfi á Rivier- unni. Þá lýsti hún hamingju sinni með mörgum fögrum orðum. En nú vill hún fá skilnað fá Bob, sem er annar eigin- maður hennar og almennt er álitið að það sé kvennagullið Steve McQueen, sem sé ástæð- an fyrir því. Þau Ali og Steve leika saman í kvikmynd, leika bankaræningja, sem eru mjög ástfangin og það er sagt að þau leiki vel, bæði í kvik- myndinni og í einkalífinu. Steve McQueen skildi við konu sína, dansmærina Neil Adams, í maí síðastliðnum, en þau höfðu þá verið gift í sextán ár og eiga tvo syni. Ali McGraw og eiginmaður hennar Bob Evans, í sumarleyfi á Rivierunni. Nú er öldin önnur, þau eru að skilja.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.