Vikan


Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 5

Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 5
Vill þjóna Jesú Kæri Póstur! Ég þarfnast aðstoðar þinnar, — svo blessaður leggðu nú höfuð- ið í bleyti. Ég hef verið að hugsa um, hvað mig langi til að verða. Og ég held ég sé komin að niður- stöðu: Mig langar til að gera eitthvað nytsamlegt, ekki sitja á skrifstofu og vélrita alla ævi eða vinna við að búa til einhverja tilgangslausa hluti, eins og skartgripi, sælgæti eða annan hégóma, sem er nothæfur þessa stundina, en ómögulegur hina stundina. Sjáðu til, mig langar til þess að þjóna Jesú, ekki með því að gerast nunna eða prestur eða biðja bænir áður en ég fer að sofa, heldur sýna það í verki. Jæja, Póstur minn, nú ertu bú- inn að heyra úrdrátt úr því, sem ég er að velta fyrir mér, og nú kemur það stóra: Heldurðu, að þú getir hjálpað mér að hafa upp á kristinni kommúnu utan eða innan lands, eða til hverra get ég leitað? Sóló. Með fyrirfram þakklæti. P.S. Hvað lestu úr skriftinni, og hvernig er hún? Heldur er það nú slæmt vegar- nesti út í lífið aS hugsa sem svo: GóSi guS, ég þakka þér, aS ég er ekki eins og aSrir menn! ESa heldurSu, aS þaS sé í anda Jesú aS lítilsvirSa störf annarra? ViS lítum svo á, aS öll störf séu jafnrétthá í þjóSfélaginu svo framarlega sem þau þjóna engu illu. Og þaS er hægt aS þjóna Jesú meS því einu aS vera trúr yfir því litla, sem maSur er settur yfir. Mundu, aS illa leikiS aukahlutverk getur eySilagt annars góSa leiksýn- ingu. Þó eru vissulega mörg störf, sem öSrum fremur fullnægja þeim, sem sýna vilja hjálpsemi og náungakærleika í starfi. Þú nefndir prest og nunnu, viS þaS má bæta lækni, hjúkrunarkonu, IjósmóSur, kennara, lögreglu og ótal mörgum öSrum störfum, sem krefjast sérstakrar þjón- ustu viS annaS fólk. Þetta virS- ist þó ekki vera þaS, sem þú leitar aS, þó okkur sé ekki Ijóst, hvers vegna þú telur ekki presta og nunnur sýna þjónustu viS Jesú í verki. Hér á landi sem annars staSar eru starfandi ýmsir kristnir hóp- ar, sem þú gætir leitaS til, t. d. Hjálpræðisherinn, Sjöunda dags aSventistar, Vottar Jehova og FíladelfíusöfnuSurinn, sem þú finnur alla í símaskránni. ViS vonum, aS þetta svar nægi þér. Þú ert greinilega hugsandi manneskja og vilt láta gott af þér leiSa í lífinu, sem er ein- mift þaS, sem viS lesum út úr sérstæSri og skemmtilegri skrift þinni. En eitt þarftu að hafa í huga: „DæmiS ekki, þá munuS þér ekki heldur verSa dæmd- ir". Því í andsk... ? Jæja vinurinn, þetta er í alvöru. Við komum okkur strax að efn- inu. Hvernig í andsk . . . stend- ur á því, að við megum giftast og stofna heimili, þegar við höfum náð 18 ára aldri, en megum ekki fara inn á vínveit- ingastaði um helgar? Við erum hérna þrjár 18 ára vinkonur, sem höfum velt þessu fyrir okkur og viljum fá svar! Því við erum í vígahug og látum ekki bugast. Þær stúlkur, sem eru sammála, láti til sín heyra. Þökk- um birtinguna, ef af verður. þrjár vinkonur. ViS erum ykkur alveg sammála um, aS þarna gætir ósamræmis í hlutunum og væri eiginlega nær aS snúa þessu viS. Flestir 18 ára ættu aS vera orSnir nægi- lega þroskaSir til þess aS kunna aS umgangast vín, en dæmin sanna, aS flestum er hollast aS geyma hjúskaparhugleiSingarnar fram yfir tvítugsaldurinn. Sjálf- sagt kemur aS því, aS fært verS- ur niður aldurstakmark þeirra, sem sækja mega vínveitinga- hús, hvort sem þaS kemur ykk- ur nú aS góSu. 46. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.