Vikan


Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 25

Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 25
o Maður sem orðið hafði fyrir áhrifum frá kristni- boðum gróðursetti jams—ávexti á álagabletti. Fáum mánuðum siðar gekk hann af vitinu og fyrirfór sér. — Frásögn af lifi melanesiskra ættbálka á Nýju — Suðureyjum, þar sem mannát var iðkað fyrir fáum áratugum. Þótt komið væri framyfir miðnætti, glaðvaknaói ljósmyndarinn og áhugaþjóð- fræðingurinn Kal Muller á sámri stund er hann heyrði orðið „tabú”. Við rekkju hans úr bananablöðum stóðu þrir húðdökkir menn, sem gáfu honum til kynna á sinni bjöguðu ensku að hann skyldi fylgja þeim. Þeir sögðust ætla að sýna honum nokkuð, sem væri „svolitið” tabú. Og Muller spratt á fætur, þreif myndavélarnar sinar og fygldi þeim innbornu eftir út I myrkriö. Kal Muller er fæddur Ungverji, en bandariskur borgari og hefur nú um skeið dvalið á Nýju — Suðureyjum, eyjaklasa á Kyrrahafi sem byggður er fólki af stofni Melanesa. Nú var hann staddur i þorpinu Lendomdwey langt inni á eynni Malekula. Allt félagslif ættbálksins, sem þar býr, er markað tat>úum, sem og samskipti hans við utanaðkomandi. Og þar eð Muller var fyrsti hviti maðurinn, sem komið hafði til þorpsins i æðitima, giltu sérstaklega mörg tabú varðandi samskiptin við hann. Til dæmis var kvenfólkinu lengi vel bannaö aö koma horlum i augsýn. Langur timi leið unz Muller vann traust höfðingjans i þorpinu að þvi marki að hann fékk að ljós — og kvikmynda konurnar. Margskonar matur er lika tabú. öfriskum konum er til dæmis stranglega bannað að boröa kjöt af skjaldbökum, þar að óttast er að börnin fæðist þá með skjaldbökuhreifa. Litlum stúlkum er bannað að borða krabba, af ótta við að i stað brj- ósta vaxi á þær krabbaklær. Framhald á bls. 28.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.