Vikan


Vikan - 16.11.1972, Side 19

Vikan - 16.11.1972, Side 19
GRAKLÆDDIMADDRINN Læknirinn hellti í portvíns- glasið sitt og rétti svo flöskuna áfram. Hann hafði nýlega tek- ið við mikilvægu embætti sem sjúkdómafræðingur, og spurn- ingin, sem hafði verið lögð fyr- ir hann rétt áður, þarna við borðið, virtist eitthvað erfið viðfangs. Hann hugsaði sig um stundarkorn. — Klóklegasti glæpurinn, sem hefur komið til minna kasta? Það er nú erfið spurn- ing. Eg veit það ekki . . . Það er erfitt að segja . . . Hann hugsaði sig enn um. — Jú, ég hugsa, að það sé gráklæddi maðurinn . . . Já, alveg áreið- anlega. — Þetta gerðist í smáborg í Sussex, sagði læknirinn. — Ég var að 'gegna þar störfum fyrir kunningja minn, sem hafði ver- ið kallaður utan. Þarna var Ijómandi fallegt landslag, með nokkrum stórbýlum í nágrenn- inu og ég hafði eignazt við- kunnanlega kunningja. Meðal þeirra voru ein hjón, sem ég ætla að kalla Hervey. Ég dróst strax að þeim. Þau áttu heima í skemmtilegu gömlu húsi, með fallegum garði. John Hervey var eitthvað hálffertugur að aldri. Hann hafði grætt talsvert fé á ein- hverri verzlun, sem ég man nú ekki, hvað var, og svo keypt húsið. Konan hans var sú fal- legasta, sem ég hafði nokkurn tíma séð. Hún hefur víst verið eitthváð um þrítugt — fráleitt eldri — með dásamlegt eirrautt hár og þennan fallega rjóma- gula hörundslit. Hún var mjög alúðleg og sérstaklega góð við börn og dýr. Ég borðaði oft kvöldverð hjá þeim og var þá alltaf fyrirfram viss um skemmtilegt kvöld. En nú höfðu þau lent í vandræðum með þjónustufólk og gátu ekki feng- ið neitt í stað þess sem fór. Eitthvað mánuði seinna — eitt júníkvöld — kom Gault. Hervey sagði mér, að þetta væri maður, sem hann hefði einu sinni átt viðskipti við, og mundi nú verða þarna í nokkr- ar vikur. Þegar ég svo hitti hann, nokkrum dögum seinna, í húsinu, fékk ég samstundis óbeit á honum. Það hefðu líka níu menn af hverjum tíu feng- ið — hann var þannig mann- SMÁSAGA EFTIR BRANDON FLEMING - HANN VIRTIST VERÐA HRÆDDUR, ÞEGAR ÉG SAGÐI HONUM FRÁ GRÁKLÆDDA MANNINUM. £G HEFÐI BETUR EKKI NEFNT HANN Á NAFN. ÞETTA HEFUR LÍKA GERT MIG TAUGAÖSTYRKA . . . tegund. Hann var meðalmaður á allan vöxt, með svart yfir- skegg og þétt, dökkt höku- skegg. Það var ekki svo auð- velt að segja, að hvaða leyti hann var óviðkunnanlegur — kannski var það fyrst og fremst málrómurinn, sem var ein- hvern veginn hörkulegur og hæðnislegur í senn, eða þá kippirnir í öllum hreyfingum hans. Hann var sú manntegund, sem maður mundi sízt búast við að hitta á heimili eins og þeirra Herveyhjóna. Hann virt- ist ekkert hrifinn af að kynn- ast mér — sannast að segja var hann næstum ruddalegur við mig. Hervey afsakaði þetta við mig næst þegar við hittumst og sagði að Gault væri eitthvað bilaður á taugum, og langaði ekkert til að hitta ókunnuga fyrr en honum væri batnað. Eftir þetta forðuðumst við Gault hvor annan eftir föngum og ég leit aldrei inn hjá Her- vey. Gault var búinn að vera þarna eitthvað tíu daga, þegar Herveyhjónin komu heim til mín einn daginn og buðu mér til kvöldverðar næsta dag. Ég reyndi að afsaka mig, þar eð ég vissi, að þau höfðu enn ekki fengið neina húshjálp, og auk þess langaði mig ekkert til að taka upp aftur kynnin við Gault, en þau lögðu svo fast að mér, að loks þá ég boðið. Þeg- ar ég kom þangað, hitti ég frú Hervey eina síns liðs í setustof- unni. Ég sá strax, að hún var óvenju föl og virtist eiga bágt með að vera jafnkát og endra- nær. En þá kom Gault inn. Hann var í frekar ræfilslegum smókingfötum, en reyndi að vera altilegur, rétt eins og til að bæta fyrir fyrri ókurteisi sína. Kokteilglösin stóðu til reiðu, og frú Hervey rétti mér eitt þeirra. — Hann John kemur eftir andartak, dr. Redman, sagði hún. — Hann tafðist eitthvað í Hailsham. Hún sneri sér að Gault, hálf- hikandi. — Hr. Gault, það hefur tvisvar komið hingað maður í dag og spurt um yður. Ég gat ekki sagt yður af því fyrr. Framhald á bls. 44. 46. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.