Vikan


Vikan - 16.11.1972, Síða 23

Vikan - 16.11.1972, Síða 23
3M - SKUGGA MARVIN Framhald af bls. 11. Hljómleikar Marvin, Wells og Farrar eru illa sóttir. beir eru aö hluta gleymdir, eins og áður sagði, en það eru margir sem ekki vilja þekkja þá. Þeir spila i dag eingöngu frumsamda tónlist, eitt- hvað sem enginn hefur heyrt áður. bað finnst sumum gömlum áhangendum The Shadows vera svik og koma þess vegna ekki á hljómleika þeirra. Stundum hafa ekki komið nema 100 manns, en þaö virðist engin áhrif hafa á þá félaga. Þeir eru löngu orðnir þreyttir á tali um að fylla hina og þessa hljómleikahöll ina. Slikt tilheyrir dögum The Shadows. Þeir sem að fylgdust með upp- vaxtarárum Skugganna á slnum unglingsárum eru nú komnir um þritugt. The Shadows voru stofnaðir á árinu 1958, sem aðstoðarhljómsveit Cliff Richard. Það liðu tvö ár, og alltaf var það Cliff sem var i sviðsljósinu. En þar kom að þvi, að The Shadows gáfu sjálfir út litla plötu. Lagið var Apache og það komst á vinsældglista i júli 1960. Fyrir þaö fengu þeir gullplötu i april á næsta ári. The Shadows spiluðu svo sinn fyrsta konsert án Cliff i september 1961, og voru I október kosnir vinsælasta hljómsveitin 1 kosningu sem New Musical Express efndi til. beir urðu vinsælli og vinsælli og áttu m.a. 26 piötur meöal 20 vinsælustu á árunum 1960-1967. Það voru fleiri en sjálfir Bitlarnir áttu. En þegar veldi Bitlanna var sem mest, fór aö halla undan fæti fyrir The Shadows. Hánk Marvin var eitt spurður aö þvi, hvers vegna The Shadows hættu. „The Shadows urðu smátt og smátt hluti af einhverri heild, sem tilheyrði skemmtana- bransanum. Hljómleikarnir okkar voru vel sóttir, L.P. plöturnar okkar seldust vel. Og viö létum allt rúlla. En einn góðan veðurdag vöknuðum við upp við vondan draum. Við gerðum okkur skyndilega grein fyrir þvi, að það voru stórkostlegir hlutir að gerast i kringum okkur i poppinu. Við vórum orðnir eins og einhverjir aðskotahlutir I stóruhi straumi, sem við gerðum okkur ekki grein fyrir hvernig var. Viö gerðum okkur grein fyrir |5vl, að við höfðum ekki gert neitt nýtt um langan tima. Við spiluöum alltaf gömiu vinsælu lögin, og það var það sem fólkið vildi heyra hvort eð var. Það var svipað með Judy Garland. Hana langaði til að fara inn á sviðið og syngja eitthvað annað en hún hafði alltaf sungiö. En áheyrendur vildu ekki leyfa Framhald á bls. 28. Hvorki þér né Ajax þurfið sjálfvirka þvottavél til að fa gegnhreinan, hvítan þvott því Ajax er sjálft sjálfvirkt Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla Með Ajax - efnakljúfum verðúr Þvotturinn gegnhreinn og blæfallegur. Ajax er gætt sjálfvirkri Þvottaorku og hreinsimætti, sem óhreinindin fá ekki staðizt. Ajax er kjörefnið i stórÞvottinn - gerir hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er lika tilvalið í fínni Þvotta, t.d. orlon og nælon, sem gulna Þá ekki. Ajax er rétta efnið, ef leggja Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið Þá Ajax og horfið á óhreinindin hverfa. 45.TBL. VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.