Vikan


Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 44

Vikan - 16.11.1972, Blaðsíða 44
VELKOMIN í NUDDSTOFUNA iMSIkBMl. hwR.leaii6MlltaiáiBgL SAUNA \ J|\ STOFNUÐ 17-11-1962 10 ÁRA NUDDSTOFAN ER OPIN: Nuddstofan FYRIR KONUR SAUNA fj þriðjudaga kl. 13.00-20.00 HátúniS miðvikudaga kl. 12.00-17.00 simi 24077 fimmtudaga kl. 13.00-20.00 'WSIH!!! föstudaga kl. 9.00-15.00 AMERÍSKT NUDD FYRIR KARLA: ÞÝZKT VATNSNUDD mánudaga kl. 8.00-20.00 HANDNUDD þriðjudaga kl. 8.00-12.00 MARGAR TEGUNDIR miðvikudaga kl. 8.00-12.00 LJÓSLAMPA miðvikudaga kl. 18.00-21.00 fimmtudaga kl. 8.00-12.00 MARGAR TEGUNDIR föstudaga kl. 16.00-20.00 RAFMAGNSNUDD laugardaga kl. 8.00-17.00 RIMLAÆFINGAR sunnudaga kl. 8.00-12.00 PANTANIR Á NUDDI í SÍMA 24077 Eigandi: EDVALD HINRIKSSON Heimasími 23256 Hátúni 8 - Sími 24077 maður hefur grun um kláða, þá er sjálfsagt að hafa sam- band við skólalækni eða skóla- hjúkrunarkonu og það eru líka margir af eldri kennurunum, sem þekkja kláða. Þessir sjúkdómar, sem við höfum talað um heyra allir undir hreinlætisskort, segir Melbye borgarlæknir. Hvemig er þatf með flærnar? — Flóin er allt annars eðlis og hún getur komið þangað, sem fyllsta hreinlætis er gætt. Hún er líka skaðlaus, vegna þess að hún er ekki sýklaberi. Flær eru mjög sjaldgæfar nú 1 okkar þjóðfélagi og stafar það líklega af því að hálmdýnur eru ekki notaðar lengur. En í Mið-Ameríku og Norður-Afríku er það daglegt brauð að flytja flær heim til sín, þegar farið hefur verið í ferðalög um land- ið. Það er ákaflega fljótlegt að losna við flóna, hún stekkur einfaldlega í burtu. Maður finnur strax þegar flóin bítur, hún er ekki eins lúmsk og lús- in og þá er um að gera að leita hana uppi. Þegar ég var héraðslæknir á Vesturströndinni fyrir 25—30 árum, var mikið um flær þar og ég kom oft með þær heim til mín. Eg hafði alveg sérstaka aðferð til að finna þær: Eg fór í víða, hvíta sokka, síðan úr öllum fötunum og hristi þau vel. Þá stukku flærnar niður í sokkana, það var eini felustað- urinn. Því næst steig ég upp í bala, sem var fullur af vatni og drekkti þeim. Þér megið hafa þetta eftir mér, þetta er ágætt ráð gegn flóm . . . ☆ GRÁKLÆDDI MAÐURINN Framhald af bls. 19. Gault sneri sér svo snöggt við, að vínið skvettist upp úr glasinu hjá honum. — Spyrja um mig? — Hann kom í morgun þeg- ar þér voruð rétt nýfarinn út. Um klukkan hálftólf. Hún skalf ofurlítið og tæmdi glasið. — Eg var úti í garði. — Hann kom beint til mín en ekki að dyrunum. Hann leit hræðilega út — í óhreinum gráum flún- elsfötum og með gamla tennis- skó. Rétt sem snöggvast varð ég hrædd við hann. Hann virt- ist ekki trúa mér þegar ég sagði honum, að þér yrðuð að heim- an allan daginn. Gault hafði hvesst augun og það var rétt eins og hann héldi dauðahaldi um glasið sitt. — Sagði hann ekki til nafns síns? Hún hristi höfuðið. — Nei. Eg spurði hann um það, en hann vildi ekkert segja annað en það, að hann væri gamall vinur yðar og mundi koma aftur seinna um daginn. Ég varð sárfegin þegar hann fór. Hann leit ekki út fyrir að vera neinn sannur vinur yðar. Svipurinn á Gault var orð- inn einkennilegur. Helzt varð lesin út úr honum hræðsla, og rétt sem snöggvast virtist hann eiga bágt með að hafa stjórn á sjálfum sér. — Ég veit ekki, hver þetta getur hafa verið, sagði hann og var eitthvað hikandi. — Hann var að minnsta kosti mjög fráhrindandi maður, sagði hún. — Það vildi svo til, að John var inni í forstofu þeg- ar hann kom í annað sinn — um klukkan fjögur — og opn- aði sjálfur fyrir honum. Þegar hann sagði, að þér væruð enn ekki kominn heim, gerðist hann ósvífinn og sagðist ætla að koma inn og bíða eftir yður. Og ég er hrædd um, að John hafi heldur ekki verið sem kurteisastur. Hann sagðist ekki vilja hafa hann hangandi þarna í húsinu og bað hann hafa sig á brott. Sem snöggvast hélt John, að maðurinn ætlaði að fara að gera uppistand. En þá hló hann bara lágt og sagði: — Segðu honum Gault, vini mínum, að ég komi aftur í kvöld. Síðan sneri hann sér á hæli og gekk út að hliðinu. Gault starði út um opinn gluggann, út í myrkrið, sem færðist í aukana, þetta hlýviðr- iskvöld. Hann var áreiðanlega hræddur. Hendurnar á honum skulfu. — Ég vil ekkert við hann tala, sagði hann hvasst. — Eg get við engan talað og ég vil fá að vera í friði. Síðan sneri hann til dyra. — Ég ætla að fara upp í herbergið mitt og kem ekki í kvöldmat. Hann næstum hljóp út úr stofunni. Frú Hervey starði á eftir hon- um, steinhissa. Hún var mjög áhyggjufull. — Afsakið þér, dr. Redman, en hann Gault er einkennileg- ur maður og virðist stundum ekki hafa stjórn á sjálfum sér. En svona hef ég samt aldrei vitað hann haga sér. — Honum líður illa, sagði ég. — Hann ætti alls ekki hér að vera. Eins og honum líður núna, gæti hann fengið kast, hvenær sem er, og það alvar- legt. — Hann virtist verða hrædd- ur, sagði hún, — þegar ég sagði honum frá gráklædda mannin- um. É'g hefði betur ekki nefnt hann á nafn. Þetta hefur líka gert mig taugaóstyrka. Hervey kom inn í stofuna. Hann hafði sýnilega klætt sig í snarkasti. — Afsakið, að ég er svona seinn fyrir. Hvað gengur að honum Gault? Ég hitti hann í stiganum. Hann virtist vera dauðhræddur. Frú Hervey sagði honum, hvað gerzt hafði. Hann yppti öxlum, eins og í vandræðum. — Hann er farinn að verða hálfgerð hrelling. Ég er feginn, að hann fer í næstu viku. Við erum víst bæði búin að fá nóg af honum. En ég ætti nú að fara og vita, hvað að honum gengur, og fá hann til að koma niður. Við getum ekki látið hann dúsa svona í herberginu sínu í allt kvöld. Hann lauk úr glasinu sínu og fór upp. Ég hellti í glasið henn- ar og rétti henni það. — Hafðu engar áhyggjur af þessu, sagði ég. — Gault má vera uppi ef hann vill. Við get- um vel af honum séð stundar- korn. Hún reyndi að brosa, en það var áhyggja í svipnum. Her- vey kom aftur eftir nokkrar mínútur. Hann var í vondu skapi. — Ég veit ekki, hver fjand- inn er hlaupinn í hann. Það er eins og hann sé skíthræddur, og vill ekki koma út úr her- berginu. Maður verður víst að láta hann eiga sig. Við gengum inn í borðstof- una. Kvöldverðurinn var ein- kennileg máltíð. Það var eins og eitthvert farg lægi á okkur öllum. Hervey var að reyna að 44 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.