Vikan


Vikan - 16.11.1972, Side 47

Vikan - 16.11.1972, Side 47
mér að grípa hana, áður en hún féll í yfirlið. Á líkinu var ekkert, sem sýnt gæti, hver maðurinn var. Við réttarhaldið var Gault ákærð- ur um morð af ásettu ráði. Her- vey gat ekki gefið miklar upp- lýsingar um hann. Hann hafði átt einhver viðskipti við hann fyrir mörgum árum, en síðan hafði hann farið úr landi og Hervey hafði ekkert til hans vitað fyrr en hann kom til hans og beiddist húsaskjóls. Þetta var óþægilegt þar eð þau höfðu enga húshjálp, en hann skýrði þeim frá bágbornum ástæðum sínum, svo að þau lof- uðu honum að vera. Hann átti lítið af fötum og næstum enga peninga. Eftir fyrstu vikuna tók þau að gruna, að hann hefði ekki sagt þeim rétt frá, en væri að fela sig fyrir einhverjum. Hann vildi engan hitta og var oftast allan daginn í herberg- inu sínu, eða þá úti í skógi. Hervey grunaði meira að segja, að hann hefði aldrei verið er- lendis. Það eina, sem lögregl- an komst að var það, að áður en hann kom til Herveys, hafði hann verið tvær nætur í litlu hóteli við Strand. Eftir réttar- haldið var víða leitað, en ekki fannst tangur né tetur. Læknirinn brosti til mann- anna kringum borðið. —- Þetta var góður glæpur, finnst ykkur ekki? Eg býst við, að þið sjáið í gegnum hann, ekki síður en ég? Þessu sló niður í mig allt í einu, þegar ég kraup hjá líkinu af grá- klædda manninum, en ég hélt mér saman, af því að samúð mín var öll með þeim Hervey- hjónum. Kannski hefur það nú verið rangt af mér en ég gerði það samt. Eftir réttarhaldið gekk ég heim með þeim. — Þetta hefur verið hræði- leg ákoma, sagði Hervey. —• Eg vildi óska, að ég hefði aldrei hleypt honum Gault inn í hús- ið. Við hefðum átt að geta séð, að hann var alls ekki með sjálf- um sér. Og ég er alveg viss um, að þeir finna hann aldrei. — Sama hér, sagði ég. — Ég sagði þetta í þeim tón, að þau litu bæði upp, en hvor- ugt sagði neitt. Ég kveikti í pípunni minni. — Og eins er ég alveg viss um hitt, bætti ég við, — að hann hefur ekki framið þenn- an glæp. Þau gláptu á mig. Eg sá, að hendurnar á frú Hervey kreppt- ust á stólbríkinni. — Það getur nú enginn vafi á því leikið, að hann framdi glæpinn, sagði Hervey. — Þar er flótti hans nægileg sönnun. Ef hann hefur engan þátt átt í þessu, hvers vegna leggur hann þá á flótta? — Ég sagði aldrei, að hann hefði engan þátt átt í því, svar- aði ég. — Ég sagði bara, að hann hefði ekki framið glæp- inn. En vissulega átti hann mikinn þátt í honum. Það var eins og þau bæði stirðnuðu upp. — Hvað áttu við? spurði Hervey dræmt. — Ég á við, að þetta hefur verið óvenju slynglegt morð — miklu klóklegra en dómaran- um hefði nokkurn tíma getað hugkvæmzt. Við skulum hugsa okkur, að líkið af gráklædda manninum liggi hérna fyrir fótum okkar. Hervey leit á konu sína, en hún horfði beint á mig. — Mér finnst bara ekki þurfa að eyða fleiri orðum að þessu, sagði hann. — Við erum búin að sjá nóg af . . . Einhver hreyfing á konu hans greip fram í fyrir honum. — Haldið þér áfram, dr. Redman, sagði hún lágt. — Ef við hefðum líkið liggjandi hér fyrir fótum okkar . . . ? Ég sagði: — Við skulum hugsa okkur vissar útlitsbreyt- ingar. Ef maðurinn hefði stutt hár afturkembt í staðinn fyrir lanst hár ókembt . . . Hervey hallaði sér fram í stólnum, með einkennilegasta svip á andlitinu, sem ég hafði nokkurn tíma séð. — Og ef hann væri ekki al- rakaður, heldur með alskegg Frú Hervey hallaði sér nú líka fram í sínum stól og horfði á mig með skelfingarsvip. — Og ef fölsku tennurnar hefðu ekki verið teknar út úr honum — það er alveg merki- legt, hvernig nokkur skörð geta breytt svipnum. Hervey æpti, rétt eins og honum hefði dottið eitthvað í hus. — En þá hefði maðurinn, með þessum breytingum getað verið Gault sjálfur! — Það hefði hann, sam- þykkti ég, — og sannast að segja, þá var hann það. Sem snöggvast voru þau bæði eins og mállaus af undrun, en þá rak Hervey upp hlátur. — Góðurinn minn, um hvað ertu eiginlega að tala? Hvern- ig hefði hann getað verið Gault? Þetta var gráklæddi maðurinn, sem kom að spyrja um Gault. Konan mín sá hann um morg- uninn og ég sá hann síðdegis. Við þekktum hann bæði aftur, og þú sjálfur þekktir hann líka, eftir lýsingu okkar. Ef þetta hefur verið Gault, hvar er þá raunverulegi gráklæddi maðurinn? Ég svaraði: — Þar sem hann hefur alltaf verið: Hvergi- Frú Hervey rak upp óp og Hervey stökk upp af stólnum. — Hvað ertu eiginlega að fara, Redman? Hann gekk eitt skref að mér, en ég horfði fast framan í hann og hann staðnæmdist. —■ Það var aldrei til neinn gráklæddur maður, sagði ég. Ég sannfærðist um það þegar við stóðum hjá líkinu og þú horfðir á það. Það voru fjórar persónur við þennan glæp riðn- ar, en ég var viss um, að að- eins þrjár þeirra voru raun- verulegar. Gráklæddi maður- inn var tilbúin persóna, búin til í sérstökum tilgangi. Og ég veit, hver sá tilgangur var. Frú Hervey stóð upp og tók sér stöðu við hlið mannsins síns. Hún lagði höndina rólega á arm hans. Hervey lagði hand- legginn utan um hana og þann- ig stóðu þau hvort við annars hlið. — Haldið þér áfram, dr. Redman, ítrekaði hún. — Þetta var sniðug ráða- gerð, sagði ég. — Sjálfsagt hefur Gault verið að kúga af ykkur fé. Hann gat verið þess- legur og þótt um fleiri glæpi væri að ræða. Þið ákváðuð ykkar í milli, að honum yrði að ryðja úr vegi og því var fundinn upp ímyndaður aðili og honum lýst fyrir mér, — eftir að kallað hafði verið á mig til þess að nota mig sem sjónarvott. Gault átti að virð- ast hafa drepið gráklædda manninn, og hann að finnast myrtur. Þá mundi því trúað, að Gault hefði numið brott öll kennimerki af líkinu og síðan flúið, og þá auðvitað aldrei fundizt. Því var Gault drepinn, skeggið rakað af honum, hárið klippt og kembt aftur, og fölsku tennurnar teknar úr honum, og hann síðan klædd- ur í föt, sem áttu við lýsing- una af gráklædda manninum, sem aldrei var til. Þetta hefði hæglega verið hægt að gera meðan við frú Hervey vorum í gárðinum — og síðan var lík- inu komið fyrir svo að hægt væri að finna það og þekkja sem óvin mannsins. Óneitan- lega sniðuglega að farið. Það varð dauðaþögn. Loks- ins dró frú Hervey sig frá manninum sínum og stóð óstudd. — Dr. Redman, sagði hún. — Dauði maðurinn var mað- urinn minn. Ég giftist honum fyrir næstum tíu árum. Hann var ófreskja og djöfull í manns- mynd. Þegar hann hafði eytt öllum eignum mínum hvarf hann og svo frétti ég, að hann hefði dáið í Ameríku. Ári seinna giftist ég aftur og í tvö ár naut ég sælu, sem ég hefði ekki trúað, að væri möguleg. En svo kom hann aftur. Hún skalf. — Og þá sagði hann mér, að hann hefði viljað láta mig halda sig dauðan, svo að ég gæti gifzt aftur og hann þá beitt mig fjárkúgun. Og hann gerði líf okkar að hreinasta helvíti, þangað til ég var nógu slæm til þess að láta mér detta í hug að . . . Hervey hélt fast utan um hana. -— Það var ég, sem fann upp á því. Ég drap hann og því fer fjarri, að ég finni til iðr- unar. Hann leit fast á mig. — En það sem mig langar til að vita, Redman, er það, hvers vegna þú steinþagðir við rétt- arhaldið og vissir samt það, sem þú vissir. En staðfestir að- eins framburð minn. — Af því, vinir mínir, að mig grunaði sitt af hverju af því, sem frú Hervey var að segja mér. Ég kunni vel við ykkur bæði, en hafði megna óbeit á Gault. Fjárkúgarar eiga enga meðaumkun skilið og ég stóð — og stend enn — ykkar megin. Það kann að vera, að ég sé að hylma yfir glæp, en ég get bara ekki að því gert. Hvað mig snertir, þurfið þið ekkert að óttast. Ég sagði ykk- ur bara frá því, að ég sá gegn- um þetta, af því að það var óneitanlega klóklega gert og ég hafði gaman af að leysa gátuna. Hervey og kona hans litu hvort á annað. Síðan gekk hann fram og greip hönd mína. — Þú ert fjandans góður ná- ungi, Redman, sagði hann, en . . . mér þykir fjandans leitt að gera þér vonbrigði — en þú ert lélegur spæjari. Ég sver þér — og ég veit að þú trúir því, af því að ég ætla að segja þér sannleikann allan — að dauði maðurinn var ekki Gault. Nú kom að mér að glápa á hann. — Það var alveg satt þegar ég sagði þér, að hann gat ekki verið Gault. En hitt var rétt hjá þér, að aðeins þrjár af 46. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.