Vikan


Vikan - 21.12.1972, Page 4

Vikan - 21.12.1972, Page 4
7 Hvað cr verið ^ t að skamma mann? Eru þetta ekki Sommcr-teppin, Jrá Litaveri sem þola allt^i Teppin sem endast. endast og endast á stigahús og stóra gólffleti Sommer teppin eru úr nælon. ÞaS er sterkasta teppaefnið og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá- réttum þráðum. Und'rrlagið er áfast og tryggir mýkt, sislétta áferð og er vatnsþétt. Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppln hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu járnbrautarstöðvum Hvrópu. Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og Sommer gæði. LITAVER GRENSÁSVEGI 22-24 SfMAR: 30280 - 32282 P0STURINF9 Gengur í svefni Kæri Póstur! Af því þú ert svo ráðagóður, ætla ég að biðja þig að gefa mér ráð. Eg veit, að ég hef lengi talað upp úr svefni, en undan- farið er ég líka farin að ganga í svefni og gera ýmislegt, en kem aðeins til sjálfrar mín, þeg- ar ég fer upp í rúm aftur. Getur þetta næturrölt mitt verið ástæð- an fyrir því, að mig syfjar svo mikið á daginn? Getur þetta ekki verið hættulegt, t. d. ef ég fer út? Og er ekkert hægt að gera við þessu? Mér finnst svo óþægilegt, að bróðir minn, sem sefur í næsta herbergi við mig, hefur komizt að mörgu, sem ég hef talað af mér Elsku Póstur, gefðu mér ráð. Virðingarfyllst, náttugla. .... í—^^ Ekki dugir þetta, náttugla góð, þetta er alltof spennandi fyrir bróður þinn, hann gæti orðið taugaveiklaður af svefnleysi! Við erum litlir sérfræðingar í svefngöngu hér á Vikunni og gefum þér það eitt ráð að leita læknis. Líklega ertu eitthvað spennt á taugum, og ekki batn- ar það, ef þú heldur áfram að spjalla og spranga, þegar þú átt að liggja róleg og steinþegj- andi á þínu græna eyra. Svar til einnar örvæntingarfullrar Vertu bara vongóð, það er mjög líklegt, að hægt sé að ráða bót á þínu vandamáli. Sennilegt er, að vandræði þín stafi af óeðli- legri hormónastarfsemi, og við ráðleggjum þér eindregið að leita strax til læknis. Svar til Fáskrúðs- firðings Ertu viss um, að þetta sé svo mikið vandamál? Ýmsir mundu nú kannski öfunda þig af þessu. Farðu samt ekki að fiíka því við hvern sem er. Við erum alls engir sérfræðingar í þessu, en erum þó á því, að þú leysir sjálfur þitt vandamál á réttan hátt, svo langt sem það nær. — Hins vegar sakar varla að gera sjálfan þig meira spennandi og eftirsóknarverðan í augum konu þinnar, svo að þið fáið oftar notið ánægju samlífsins. Hver myrti? Kæri Póstur! Mig langar til að leita til þín til þess að fá úr því skorið, hver það var, sem myrti eiginkonu dr. Kimbles í samnefndum þætti. Því fólk er ekki á einu máli um það, sumir segja lögreglumann- inn hafa gert það, aðrir ein- henta manninn. Heldurðu, að þú getir ekki leyst úr þessu fyrir mig? Hvernig er skriftin? Astar- þakkir. I.H. Lengi lifir í gömlum glæðum. Ekki hefði okkur dottið það í hug að óreyndu, að dr. Kimble ætti ennþá rúm í hugum fólks. Það var víst örugglega sá ein- henti, sem myrti eiginkonu þessa víðfræga læknis. Skriftin er snotur og bendir til nákvæmni, sem jaðrar við smámunasemi, ennfremur varfærni og sam- vizkusemi. Með lafandi brjóst Kæri Póstur! Ég þakka þér kærlega fyrir allt gamalt og gott. Mig langar til að biðja þig að hjálpa mér dá- lítið. Þannig er mál með vexti, að ég hef svo lafandi brjóst. Getur þú bent mér á einhverjar æfingar eða annað, svo að þetta lagist. Ég vona bara, elsku Póst- ur, að þú getir bent mér á eití- hvað, sem að gagni kemur. — Hvernig eiga steingeit og hrút- ur saman? Með fyrirfram þökk og von um, að þú svarir sem fyrst. Ein í vanda. Leitaðu til einhverra af öllum þeim skara, sem bjóða konum upp á alls konar leikfimisæfing- ar sér til heilsubótar. Það eru áreiðanlega til ýmsar æfingar, sem miða einmitt að því að styrkja brjóstvöðvana. Sé málið alvarlegt, skaltu ekki hika við að leita læknis. Hrútur og stein- geit geta átt ákaflega storma- samt samlíf. 4 VIKAN 51.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.