Vikan - 21.12.1972, Blaðsíða 6
r
r
SIÐAN SIÐAST
í STAÐINN FYRIR
GUÐFÖÐURINN
Sagt er, að Burt Lancaster hafi orðið
fyrir miklum vonbrigðum yfir því að
fá ekki að leika aðalhlutverkið í hinni
frægu kvikmynd, „Guðföðurnum". En
í staðinn hefur hann nú fengið annað
hlutverk, sem hann gerir sér miklar
vonir um. Það er aðalhlutverkið í
mynd, sem heitir „Scorpio". Hann er
þar í gervi leynilögreglumanns hjá
CIA, sem leikur tveim skjöldum og
selur Rússum leyniskjöl.
PRINSINN í FULLRI
STÆRÐ
VERÐLAUNAMYND FRÁ
ÍSLANDI
Mynd þessi birtist í franska vikublað-
inu Paris Match 28.-október síðastlið-
inn. Hún kemur vissulega kunnuglega
fyrir sjónir, enda er hún af Hallgríms-
kirkjuturninum og listaverki á síðustu
skúlptúrsýningu á Skólavörðuholti. —
Myndin hlaut verðlaun í umfangsmik-
illi ljósmyndakeppni, sem blaðið efndi
til, og höfundurinn er 28 ára gamall
Frakki, Philippe Béau að nafni.
HELG11 HEIMSPRESSUNNl
Fyrsta málverkið af Charles Breta-
prins í fullri líkamsstærð var til sýnis
í Painters Hall í Lundúnum fyrir
skemmstu. Það er málað af Leonard
Boden, einum af örfáum listamönnum,
sem hefur tekizt að fá Charles prins
og aðra úr konungsfjölskyldunni til að
sitja fyrir hjá sér. Prinsinn er klædd-
ur í skikkju sokkabandsorðunnar, en
innanundir er hann í einkennisbúningi
flughersins.
Og ísland kemur við sögu í öðru er-
lendu stórblaði um svipað leyti. í
þýzka vikublaðinu Stern birtist þessi
mynd af þeim fræga atburði, þegar
Helgi Hóseason sletti skyrinu á helztu
fyrirmenn þjóðarinnar. Nafn Helga er
að vísu ekki nefnt í textanum, en að-
eins getið um forsetann og biskupinn.
Og skyrið hafa Þjóðverjarnir ekki
þekkt; þeir tala um hvítan lit.
Það styttist óðum til jóla, enda farið
að bera á ös og annríki í verzlunum
höfuðborgarinnar. Verzlunarmiðstöðv-
ar hafa farið í vöxt að undanförnu til
hægðarauka fyrir kaupendur. Ein slík
verzlanasamsteypa er að Laugavegi 66.
Þar eru til húsa fimm verzlanir:
Gluggatjöld. Herradeild P & Ó, Káp-
an, Karnabær og Tízkuskemman.
NÚ LEIKUR HÚN
LADY HAMILTON
Sagnfræðileg efni hafa löngum verið
eftirsótt til kvikmyndunar, en líklega
aldrei eins mikið og nú. Glenda Jack-
son varð fræg fyrir að leika Elísabetu
Englandsdrottningu eins og allir vita,
en næsta hlutverk hennar er Lady
Hamilton. Peter Finch leikur Nelson
lávarð. Myndin fjallar um síðustu
mánuðina í lífi Nelsons og endar á
því, þegar hann fellur, einmitt á sama
andartaki og sigur er tryggður í orr-
ustunni við Trafalgar.