Vikan


Vikan - 21.12.1972, Síða 12

Vikan - 21.12.1972, Síða 12
PHAGRIMSFERÐ Jólasvipmynd eftir Mogens Lorentzen „Maður á ekki að fara pflagrimsferð til hins helga lands bernsku sinnar. Það á að fá að lifa óbrenglað i endurminningunni. . . Frú Spentrup vatt s^r inn i vinnuherbergi eiginmanns slns. Matarlyktin og eimurinn úr eld- húsinu stóö af henni eins og gufu- strókur. „Vilhelm”, sagöi hún og var mikiö niðri fyrir, „getur þú ekki haft ofan af fyrir börnunum svo- litla stund. Þau eru gjörsamlega óviðráðanleg, og mér er ómögu- legt að vera bæði i eldhúsinu og borðstofunni.” Spentrup ýtti skrifborðs- stólnum aftur á bak yfir slitiþ gólfteppið og reis treglega á fætur. Þar með var búið að eyöi- leggja fyrir honum þessa næðis- stund, sem hann hafði stolið sér á sjálfan aðfangadaginn, — friðurinn rofinn af sælu heimilis- lifsins, sagði hann viö sjálfan sig, og gremjan og samvizkubitiö tóguðust á i huga hans. Hann gekk inn i borðstofuna, þar sem börnunum hafði verið gert að halda sig, og þar reyndu þau að hemja óþolinmæði sina, svo sem aldurinn frekast leyfði. Hans, sem var átta ára og elztur lá úti i horni og litaði mynd. Morten, sá næstelzti, stóð iskyggilega nálægt borðinu með gjafahrúgunni og greip höndum grunsamlega snöggt aftur fyrir bak, og Marianne, sú óstýriláta ungfrú, var búin að tina allt upp úr saumakörfunni og dreifa þvi samvizkusamlega út um allt gólf. Börnin horfðu hljóð á föður sinn. Þau vissu, að þau þurftu aðeins að halda sig á mottunni, þangað til hann sneri aftur til vinnuherbergis sins, jafn viðutan og fyrr. En Spentrup stóö kyrr . . . já, stóð aðeins og horfði á þau, fullkomlega meðvitandi um vanmátt sinn i þessum að- stæðum. Hér dugðu engar minni háttar ráðstafanir. „Komið þið!” sagði hann skyndilega, ,,við förum i göngu- ferð”. „Hverjir?”, sagði Hans og leit upp úr litabókinni, „hverjir fara i gönguferð?”. „Við . . við fjögur . . . ,við förum öll. Meðan mamma býr til matinn”. Börnin risu á fætur og horfðu vantrúuð á hann. Þetta hafði aldrei komið fyrir áður, og þau skildu ekki almennilega, hvað um var að vera. „Svona,” sagði faöirinn, ,,út i forstofu meö ykkur og i fötin i snatri.” Þetta varð ekki mis- skilið. , „Hvað nú?” sagði móðirin og stakk höfðinu út um eldhús- dyrnar. „Við förum. Við förum i svona klukkutima gönguferð”, sagði Spentrup. Rödd hans — hann heyrði það alveg sjálfur — var þrungin biturð, eins og hann vildi halda áfram og segja”........og þú skalt ekki búast við okkur aftur, en þakka þér fyrir þennan tima, sem við höfum búið saman, og ég vona, að þú verðir hamingjusöm, ef þú giftist aftur, og fjandinn hirði þetta allt saman! ” Þegar þau komu út I myrkrið, tók Marianne I aðra hönd hans og Morten I hina, og Hans hélt sig nálægt með þann möguleika i huga að gripa hönd föðurinSj ef ahnað hvort yngri systkinanna léti óvart þau forréttindi af hendi. Faðirinn stefndi niður að opna svæðinu, org þau voru brátt komin á gangstiginn undir stóru trjánum. Hann sagði ekki orð. Nei, Spentrup^agði ekki orð, þvi aö sumpart hafði hann ekki hugmynd um, hvað hann gæti sagt við börnin sin, og sumpart var hann þrúgaður af til- hugsuninni um, hversu litið samband var,i rauninni milli hans og barnanna. Honum hafði eiginlega aldrei dottiö þaö i hug fyrr. Vissuiega voru þau ekkert feimin aö bulla við hann, og hamn svaraði þeim, en hann hafði vist aldrei stofnaö til samræðna við neitt þeirra framyfir nauð- synlegustu málefni liðandi stundar. ,,Er ég kannski slæmur faðir?” sagöi hann við sjálfan sig, „mér finnst þó ég gera það, sem ég get fyrir börnin . . .þegar þau eru veik. . .og ég sé um, að þau skorti ekkert og reyni að gleðja þau lika . . en okkar tengsl eru náttúrlega ekkert lik þvi eðlilega trúnaðarsambandi, sem er á milli þeirra og Gustu. Það er einkenni- legt, en mér finnst aldrei neitt er'- fitt að tala við fullorðið fólk, en börn . . .kannski er ég i rauninni lélegur faðir, ómögulegur faðir . . .” hugsaði Spentrup og kreisti litlu hendurnar tvær, sem leituðu trausts i lófum hans. „En liklega hafa þau vanizt mér, eins og ég er”, hugsaði hann, „og hvað i heiminum gæti ég lika rætt við þau núna, einmitt núna?” „Pabbi, hvað hefur kóngurinn stórt jólatré?”, spurði Morten allt i einu. „Stórt”, svaraði Spentrup stuttur I spuna, þvi að um leið vissi hann, aö hér hafði hann fengið tækifæri til frásagnar, sem börnin hefðu hrifizt af, en þó hann hefði veriö skrúfaður niður á piningarbekk, hefði hann ekki getaö kreist út úr sér svo mikið sem tvær setningar um þetta mál. Ónei. ,,.....og hvað var þitt jólatré stórt?” spurði Marianne lágmælt. „Mitt jólatré”, sagði Spentrup . . . og um leið stóð bernskan honum lifandi fyrir hugskotssjónum...... „Mitt jólatré,” sagði hann, „það var ekki svo fjarska stórt, ekki nærri eins stórt og okkar núna, en við keyptum það ekki á götunni, eins og mamma gerir, við sóttum það sjálf út i skóginn, þar sem ég bjó, þegar ég var litill. Skógarvörðurinn var vinur minn, og strax um sumarið völdum við tré, alveg ákveðið lítiö tré, og svo hafði ég auga með þvi allt haustiö. Og þegar jólin komu, fórum við, hann og ég, á aöfangadag, — þvi hann var alltaf hjá okkur á jólakvöld — og svo hjuggum við það með exi og bárum það heim.” Spentrujtvarð að ýta aðeins við Hans til aö komast áfram. „Stundum var snjór, og við urðum aö draga það á sleða.” sagöi Spentrup, ”og nú man ég ekki lengur hvers vegna, en við komum aldrei heim með það, fyrr en orðið var næstum dimmt. Svo var kveikt ljós, og Laes, skógarvörðurinn kraup úti á hlaðinu og hjó tréð að neðan, svo það passaði á fótinn.” Og tendraður af endur- minningunni — likara þvi sem hann talaði við sjálfan sig — hélt Spentrup áfram að segja frá skóginum þar heima, skógarverðinum, föðurnum og móðurinni, afa og ömmu, sem nú voru löngu dáin, hann sagði þeim frá sumrinu og leikjum sinum þá, félögunum, skólaárunum æskunni, þeirri æsku, sem hann haföi ekki I rauninni rennt huga til I fjölda ára, sem hafði verið ýtt til hliðar i huga hans, orðið að Framhald. á bls. 31 12 VIKAN 51.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.