Vikan


Vikan - 21.12.1972, Side 20

Vikan - 21.12.1972, Side 20
æsKa FRAMHALDSSAGA EFTIR FRED MUSTARD STEWART Doktor Mentius er heimsfrægur fyrir yngingar- tilraunir sinar og á hinu glæsilega hallarsjúkra- húsi hans i Sviss eru margir á biðlista. En þegar Amerikanarnir sex komu þangað, eru þar engir sjúklingar fyrir. Doktor Mentius fer ekkert i launkofa með ástæðuna fyrir þvi: hann ætlar að reyna alveg nýja aðferð, uppfinningu, sem á að gera drauminn um eilifa æsku að veruleika. Þetta verður i fyrsta sinn, sem hann reynir að- ferðina á manneskjum og doktor Mentius full- vissar þau um að aðferðin sé ekki á nokkurn hátt hættuleg. En er það hending ein að þetta eru þrjár eldri manneskjur, semhafa, hver fyrir sig, ungt fólk sér við hlið? Tjaldið féll eftir stórkostlega sýningu Bolshoi- ballettsins á Svanavatninu og hinn glæsilegi áhorfendahópur reis ósjálfrátt strax úr sætum sinum og klappaði ákaft. Ung og fögur stúlka, eða réttara sagt ung kona — i einni stúkunni, klappaði ákaft og augu hennar ljómuðu af hrifningu. Hún var hávaxin, grönn og fagurlimuð og hefði sem bezt sjálf getað verið dansmær. — Þarna koma þau aftur fram. Þetta er i þriðja sinn, sem þau eru kölluð fram, ég vildi að það yrði tuttugu sinnum. Maður hennar brosti. Hann var glæsilegur maður, en greinilega miklu eldri en hún. Ann var fjórða konan hans og hann virtist skemmta sér vel yfir þvi hve hrifin hún var. Listafólkið varð að koma átta sinnum fram og fimm minútum siðar lagði Michael Brandywine chinchillasláið um axlir konu sinnar og þau gengu niður teppalagðan stigann á Metropolitanóperunni út á Lincoln Center Plaza, þar sem einkabilstjóri þeirra beið með Bentleyinn, til að aka þeim til uppáhaldsveitingahússins 20 VIKAN 5). TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.