Vikan

Tölublað

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 19

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 19
fH Gustavsberg Mikilvægustu „húsgögn" baöherbergisins eru auóvitaó hreinlætistækin, - handlaug, baókar, salernisskál og undirlifsskál. Annaö eru fylgihlutir sem auka nota- gildi, öryggi og þægindi. Allir slíkir smáhlutir gegna aukahlutverki samanboriö viö hina mikilvægari. Hönnun baöherbergisins miðast þannig fyrst og fremst við hreinlætistækin, einkum þar sem þau eru fast- tengd. Þegar þeim hefur einu sinni veriö búinn staöur fá þau venjulega aö vera þar kyrr. Þeim mun mikilvægara er því aö skipuleggja vel frá upphafi. Gera þarf ráö fyrir nægu rými og velja „baöherbergishúsgögnin“, sem henta vel jafnvel þótt stærö og venjur fjölskyldunnar kunni aö breytast. GUSTAVSBERG postulínshreinlætistækin eru úr þétt- stroknu kísilhrúðri og hafa haröa sprunguþétta glerhúö. Allir fletir eru aógengilegir og auöhreinsan- legir. Baökörin eru framleidd úr úrvals stálplötum og glerungurinn er skv. bestu alþjóðlegu gæöaflokkun. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Innflutningsdeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080 Hið Ijúfa líf framhald af bls. 17. Amsterdam, en hún vildi ekki tala við mig: „Mér þykir það leitt,” sagði hún, „Ég er að verða 88 ára gömul. Ég er hrædd um að komast i of mikla geðhræringu. Ég get ekki tekið á móti yður.” Faðir Talithu giftist aftur og þá dóttur Augustus Johan, frægs velsks listamanns. Þau settust að i suðurhluta Frakklands. Talitha dvaldist áfram hjá ömmu sinni, gekk i skóla i Hollandi — og gaf út litla ljóðabók. Ljóðin fást ekki lengur, en vinir hennar minnast þeirra sem sapurlegra og leitandi. Eftir dauða hennar skrifaði einn vina hennar i minningar- grein um hana: „Þrátt fyrir töfra sina og kosti, þjáðist hún alla ævi af óöryggi, sem ef til vill orsakaðist af uppeldinu i japönsku fangabúðunum. En þetta óöryggi veitti henni sér- kennileg einkenni, því að hún unni öllum litlum dýrum og öllu ungu og varnarlausu”. Atján ára að aldri hélt hún til London til þess að leggja stund á leiknám við Royal Acedemy of. Dramatic Art. Hún þótti efnileg og árið 1964, þegar hún var einungis 23ja ára, gerði hún samning við kvikmyndafram- leiðandann J. Lee Thompson, sem að sögn færði henni 100.000 pund (nálægt 22 milljónum króna) í tekjur á næstu fjórum árum. Það var ekki ást við fyrstu sýn. Leikkonuferill hennar var hafinn. Þó gerði þunglyndið enn vart við sig. Hún bjó ein í litilli ibúð við Tottenham Court Road i London og þar safnaði hún kring- um sig tömum fuglabúrum. Það var helzta tómstundagaman hennar að safna þeim. Hvers vegna? Hvaða innri þörf fékk þessa h r a f n s v a r t h æ r ð u , aðlaðandi ungu leikkonu, sem öll tækifæri átti til að geta sér frægð og frama, til að velja tóm búr? Um þetta leyti sagði hún i gamni: „Vinir minir kalla mig fuglinn með gylltu búrin.” Sumarið 1965 gerðist atburður, sem átti eftir að breyta öllu lifi hennar og leiða til svartnættisins i Róm. 1 von um að hitta eftirlætis- goð sitt, rússneska ballettdansar- ann Rudolf Nureyev, fór hún I veizlu i London. Hann kom ekki til veizlunnar — en þar hitti hún hins vegar Paul Getty yngri. Þá var Paul 33 og vann fyrir föður sinn á Italiu, þar sem hann leit eftir hagsmunum þeirra. Hann var giftur dóttur kalifornisks dómara og átti með henni fjögur börn. Nafn hans hafði aldrei valdið sérlega miklu umtali og hann haföi aldrei verið bendlaður við hneykslismál. Myndir af honurh sýna við- kunnanlegan mann, hvorki friðan né ófriðan. Hann var að minnsta kosti ekki nærri þvi eins myndar- legur og Nureyev. Talitha hreifst heldur ekki samstundis: „Ég kunni ekki sér- lega vel við hann i fyrstu,” sagði hún við einn vina sinna. „Það var ekki ást við fyrstu sin — en seinna elskaði ég hann.” 1 þetta sinn var þetta ekki leik- ur ótrúlega riks manns að fátækri stúlku. Talitha var sjálf mjög vel stæð efnalega og ættingjar hennar i móðurætt eru efnaðir bankamenn i Hollandi. Skömmu eftir að þau hittust i fyrsta skipti, fór Paul að fljúga tvisvar sinnum i viku milli Rómar og London til þess að hitta hana. Rúmu ári seinna skildi hann við konu sina og var frjáls að þvi að giftast Talithu. Hollenzki handritahöfundurinn Hans van der Meyden segir: „Ef ég hefði kvænzt Talithu hefði verið hægt að segja að fátækur piltur hefði gengið að eiga rfka stúlku. En gifting þeirra Pauls Getty og Talithu var gifting riks manns og rikrar konu”. En það var auðséð þegar af brúðkaupinu, að ýmislegt var óvanalegt við þetta hjónaband. Það var engin hátiðleg athöfn og engin veizla með kaviar og kampavini eins og vera á við brúðkaup riks fólks. Paul Getty eldri var ekki við- staddur, þó að einkaritari hans segði að hann væri ánægður með tengdadótturina: „Hann ferðast alltaf með lest og náði ekki i tima.” Giftingin fór fram á borgaralegan hátt i ráðhúsi Rómaborgar á nöprum desem- berdegi 1966 og var mjög látlaus. Paul gekk yfir götuna úr ibúð sinni i Palazzo Ara Coeli og Talitha kom akandi i leigubil, klædd hvitum minipelsi. Hún var falleg, en leit ekki út eins og brúður milljónamærings. Eftir athöfnina tóku brúðhjónin á móti örfáum gestum i veitinga- húsi i Villa Borghese görðunum. Þau fóru ekki i brúðkaupsferð og settust þegar að i ibúð Pauls. Enn var ekkert sem benti til þess, sem á eftir fylgdi. Að tilmælum Pauls hætti Talitha að leika i kvikmyndum. Hann vildi ekki að konan hans ynni. Hann keypti gifurlega stóra höll i Marrakesh, tveggja hæða og á stærð við fimm til sex venjuleg hús. Hann fékk skreytingasér- fræðing til þess að ganga frá öllu innandyra. Straumur auðugra og glitrandi gesta naut glæsileiks þessarar fornu hallar með hús- ráðendum. Hún varð brátt leiö og óhamingjusöm. Arabisk áhrif virðast líka hafa verið mikil i Róm. Hank van der Meyden hitti Talithu fyrst árið 1968, um það bil ári eftir aö hún giftist. „Ég var á leið til Rómar, svo að ég hringdi-til hennar frá Hollandi og spurði hana, hvort ég mætti heimsækja hana. Hún varð sVo ánægð yfir þvi aö fá tækifæri til að tala móðurmál sitt.” Aðkoman var vægast sagt óvenjuleg: „011 ibúðin var eins og austurlenzkt musteri, á gólfunum voru alls konar sessur og dyrnar voru skreyttar á austurlenzkan hátt. Við töluðumst viö i svefn- herbergi hennar. Það var mjög dimmt enda voru gluggatjöldin dregin fyrir — þó að þetta væri skömmu eftir hádegi — og maðurinn hennar svaf i rúminu bak við tjald. Andrúmsloftið var undarlegt.” Eftir þetta hringdi Hank van der Meydan alltaf i Talithu, þegar hann var i Róm, og oft heinasótti hann hana: „Það var næstum alltaf það sama upp aftur og aftur. Hún sagði, að maðurinn sinn svæfi yfirleitt mestan hluta dagsins. íbúð þeirra var afar iburðarmikil og iburðurinn frem- ur óx en hitt. Ég er viss um að henni leiddist. Hana langaði til að vinna — en maðurinn hennar vildi ekki leyfa henni það.” Með leiðindi og auð að vega- nesti, er mjög auðvelt að rata inn Framhald á bls. 42 36. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.