Vikan

Tölublað

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 45

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 45
hún honum upplýsingar, sem hann gat notfært sér. — Ég er reyndar aðeins gestur hérna sagði Cilla. — Ég er hrædd um að þér hafið farið erindis- leysu. Þér ættuð að heimsækja hina viðskiptavinina og hringja svo til frú Söderberg siðar. — Eruð þér gestur hér? Ég hélt þér væruð heimilismanneskja. Þá erum við liklega i sama báti! — Ég er systir frú Söderberg og hugsa um húsið hérna, þegar hún er fjarverandi, sagði Cilla . Þetta var misheppnuð tilraun til að fá yfirtökin. Hún heyrði strax sjálf, hve einstaklega asnalega þetta hljómaði. Einu áhrifin af blaðri hennar á herra Isaksson, var að háðsglottið varð æ breiðara. En Cilla lét sér ekki segjast, hún hélt áfram: — Hún getur alveg eins verið fjarverandi allan daginn og það er tilgangslaust fyrir yður að biða. — Allan daginn? sagði hann. — Rétt áðan sögðuð þér, að þér hefðuð ekki hugmynd um hvar hún væri eða hvenær hún væri væntanleg. Hann leit á úrið. — Nú jæja, þar sem ég þarf að hitta hana og þér hafið greinilega ákveðið að biða eftir henni, þá er eins gott, að við reynum að gera það bezta úr þessu. Ef frú Söder- berg hefði verið heima, þá er ég viss um, að hún hefði boðið mér til hádegisverðar. Þér eruð búin að smyrja brauð, hvernig væri, ef þér settuð nú upp vatn i kaffi? Jæja, hann hafði þá hrugsað sér að fá ókeypis mat! Cilla róaðist verulega við þessa hugsun. Það gat verið að hann færi, ef hún gæfi honum kaffi og'brauð. Harald Isaksson hafði sett frá sér skjalatöskuna, hallaði henni upp að stólfæti. Cilla settist and- spænis honum. Það leit út fyrir að hann væri hinn ánægðasti, þegar hann haföi von um mat. — Þér verðið að fyrirgefa mér, en þannig er nú mál með vexti, að ég hafði ekki tima til að borða, áður en ég fór að heiman i © — Og á morgun geturðu fengið þér annan lærling, andstyggi lega skepnan þín! Mikið úrval af skólaritvélum. Sendurri í póstkröfu. SKRIFVÉLIN, Suðurlandsbraut 12 — sími 85277. morgun. Billinn minn fór ekki i gang og ég varð að láta vinnu- félaga minn aka hingað með mig. Hahn fór að ná sér i brauðsneið og Cilla sá, að hendur hans voru allar rispaðar, eins og hann hefði verið klóraður af ketti. — Svona varð ég útleikinn hjá einum viðskiptavininúm i morgun. Það var gömul frú, sem heimtaði að ég færi i gegnum mjög þéttan rósarunna. Það eru oft furðulegar mannéskjur,- sfem maður hittir i þessu starfi. Það er beinlinis unun, að koma i annan eins garð og hér' er, þegar maður hefir séð verulega illa hirta garða. Hún veitti honum athygli meðan hann borðaði. Það fór ekki á milli mála, hann minnti hana á éinhvern, sem hún hafði séð. Það lá við, að hún ræki upp öp, þegar henni varð ljóst hver það var. Þessi maður minnti hana sannarlega á Hedström, unga morðingjann, sem hún hafði séð á myndunum, sem Eva sendi henni i morgun. En Hedström hafði svipt sig lifi i fangelsinu. Dagmar hafði liklega á réttu að standa, þegar hún sagði að Cilla hefði fengið sjúklegt hugmyndaflug, við að fást við þessi glæpamál. En það var eitthvað annað, sem blundaði i undirvitund Cillu, eitt- hvað, sem var að brjóstast upp á yfirborðið.... Svo kom það: Lasse Frederikson og Björne! Striðnis- rödd Lasse i morgun: ,,Éghéltþú hefðir ætlað að drekkja þér viljandi! Að fara út að fiska i þvi- liku veðri, það var sem rigndi eldi og brennisteini á föstudaginn var”. Þegar Harald Isaksson sagði,að hann hefði verið að skoða garðinn með Dagmar á föstudaginn var, þá var henni ljóst, að hann var aö íjúga. Einmitt þennan dag hafði veðrið veriö hræðilegt, ausandi rigning, stormur og að lokum haglél. Dagmar hefði aldrei dott- ið i hug, að sýna nokkrum manni garðinn sinn I þviliku veðri. Isaksson hafði nú næstum lokið við allt brauðiö og hann var tölu- vert hressilegri. Hann hallaði sér aftur á bak og kveikti i sigarettu. — Býr garðyrkjumaðurinn hérna? spurði hann svo. Spurningin var svo óvænt, að Cilla svaráöi ósjálfrátt: — Hversvegna spyrjið þér að þvi. Röddin bar með sér, að henni fyndist honum ekki koma það neitt við. — Ég spyr rétt svona, sagði hann. — Þaö hlýtur aö vera ein- manalegt fyrir einhleypa konu að búa svona afskekkt. Þaö var eins og eitthvert sjötta skilningavit varaði Cillu við og hún svaraði kæruleysislega: — Það er ekki svo afskekkt hérna. Fólk er alltaf á ferð hér. Ræstingakonan kemur fjórum sinnum i viku. Og Curt, garð- yrkjumaðurinn, er yfirleitt hér eða hjá nágrönnunum allan dag- inn. Systir min þekkir margt fólk og það er mjög gestkvæmt hjá henni. Hún var ekki viss um að þetta hljómaði sennilega. Að minnsta kosti hafði hún ekki löngun til aö halda samtalinu áfram. Hún tók af borðinu, setti á sig eldhús- svuntu Dagmar og fór að þvo upp. — Ég skil ekki hversvegna þér hafið gert yöur þaö ómak að koma alla þessa leið. Gátuð þér ekki lokið þessu máli, þegar þér voruð hér siðast , hvenær var það nú annars? — Á föstudag i siðustu viku. Við vorum úti i garðinum lengi dags, frú Söderberg gat ekki ákveðið sig. Andartak fann Cilla hjá sér löngun til aö segja honum, að henni væri ljóst að hann væri aö ljúga, en þaö myndi ábyggilega leiöa til fleiri lyga. Hún þagði meðan hún lauk við uppþvottinn, svo sagði hún: — Mér þykir leitt, að þér hafið fariö erindisleysu, en nú nenni ég ekki að vera hér lengur, svo ég er að hugsa um að fara og læsa hús- inu. „Læsa”, það var nú ósköp ein- falt, aðeins að fara út um eldhús- dyrnar og skella i lás á eftir sér. Þá gæti hún losnað við Isaksson, falið sig svo bak við limgerðin við lóðamörkin. Svo gæti hún farið aftur inn I húsið. Hann yppti öxlum, stóð upp, stakk skjalatöskunni undir arminn, dró sólgleraugun upp úr vasanum og setti þau á sig. Þegar hann tók upp gleraugun, hékk eitthvað fast við þau og hann hristi þau ergilegur á svipinn. Einhver gljáandi lítill hlutur féll á gólfið. Það var lykill og hún þekkti hann. Lykillinn að skýli Curts! Cilla hefði aðeins þurft að stilla sig I nokkrar minútur i viðbót, hengja upp svuntuna og hleypa Isaksson út. Þess I stað beygði hún sig snögglega og tók lykilinn upp, áður en hann náði honum sjálfur og svo hrópaöi hún: — Hvar hafiö þér náð i þennan lykil? Hann greip leiftursnöggt 'um úlnlið hennar, sneri handlegginn aftur á bak og skellti aftur dyr- unum. Eftir hádegisverö, fóru Eke- bom systurnar venjulega inn i 36. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.