Vikan

Tölublað

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 37

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 37
hvat> um þaö hvað heföi skeö hjá þeim. — Charies, segðu mér hvaö þaö er, sem gengur aö Joan. Hún var ekki svona lasin, þegar þið fóruð. — Þetta hefur verið þreytandi timabil fyrir okkur bæði, en nú er þessu að verða lokið. — Er hún þá ekki hressari, þegar biðin er að verða á enda? — Anne, Joan er ekkert barn. Hún veit, að þetta er næstum von- laust. Harcourt læknir gaf henni ekki mikla von. Þannig var það þá. Ég fann hve þreytt ég var orðin. Ég hefði auð- vitaö átt að vera kyrr hjá henni, en ég fann, að ég hafði ekki þrek til þess. — Ég held ég verði að leggja mig, sagði ég. — Ferðin hefur verið svolitiö þreytandi. — Já, ég gleymi að spyrja um liðan þina. Þarft þú ekki á lækni að halda. Ég skal biðja þá hérna að hringja til læknis. Ég man hve hissa ég varð. Það var sannarlega einkennilegt, að hann skyldi ekki hringja sjálfur til Harcourts læknis. En ég sagði ekkert. — Ég er bara þreytt, ég þarf ekki læknis við. Fyrstu verkirnir vöktu mig af fasta svefni. Ég hreyfði mig ekki, en leit á úrið, eins og Raab læknir hafði sagt mér að gera. Það var að verða bjart, þegar ég gat ekki beðið lengur. Ég för i slopp og vakti Charles. Við ókum gegnum mannlusar göturog vorum von bráðar komin til sjúkrahússins. — Er þetta sjúkrahúsið. sem Joan fer til? spurði ég. — Nei, hún fer á einkasjúkra- hús Harbrings. Hann hefur aðeins pláss fyrir einkasjúklinga sina. Harbring? Hafði hann ekki sagt, aö læknir Joan hét Harcourt? En það gat veriö, að ég heföi tekið rangt eftir. Charles svaraði nauðsynlegum spurningum og skrifaði eitthvað á blað. Mér var fengið einbýlisher- bergi, ég var böðuð og kla-dd i náttkjól frá sjúkrahúsinu. Svo fékk ég eitthvert lyf, sem geröi mig syfjaöa og svo var mér ekið burt á börum. Charles stóð á ganginum og hann kyssti mig, áður en ég fór inn á fæðingarstof- una. — Gangi þér vel, Anne. Ég býð hér þangað til þetta er yfir- staðiö. Svo var ég ein með hjúkr- unarkonunni. — Þér eigið dásamlegan mann, frú, sagði hjúkrunarkonan. — Hann er svo hugsunarsamur. Hún hafði sannarlega misskilið þetta allt. Fæðingin gekk eins og i sögu, alveg eins og Raab læknir var búinn aö segja. Ég man að ég SKOLARITVELIN SKRIFSTOFUVELAR H.F. + “x" Hverfisgötu 33 ''fytuK^ Simi 20560 heyrði fyrstu hljóðin i barninu minu. Heyrði þau i gegnum ein- hverja móðu. — Mér heyrist þetta vera drengur, sagði ég og það var það lika. Og áður en ég sofnaði var ég búin að skira hann James William. Ekki Jimmy, heldur James. Ég vaknaöi i sólriku herbergi við það að siminn hringdi. Það var Joan. — Charles sagði mér, að allt væri um garð gengið og að þér liði vel. — Það var ekki eins erfitt og ég bjóst við, sagði ég. — Nú kemur bráðum að þér! — Ég vildi óska að það væri yfirstaðið, sagði hún vesældar- lega. — Ég á að fara á sjúkrahús- ið i kvöld. — Þá.er nú ekki langt að biða. Þú skalt sjá, að þetta gengur allt vel. Charles kom i heimsókn til min tvisvar á dag. Hann kom með ein- hverjar gjafir I hvert sinn: sæng- urtreyju með knipplingum, ilm- vötn, blóm og vasaklúta. Hrúgan stækkaði ört og þegar ég fór að malda i móinn, sagði hann hlæj- andi: — Allar nýorðnar mæður eiga að fá gjafir, sagði hann. — Þú átt engan að nema mig, svo ég verð að sjá um það. Hann leit alltaf á James. — Ég held hann sér bara farinn að þekkja írág, sagði hann einu sinni. — Þaö getur ekki verið, sagði ég. — Eöa heldurðu það i raun og veru? Sonur minn var ekki eins rauð- ur og hrukkóttur og ég hafði búizt við. Hann var ekki sérlega friður, en mér fannst hann fallegasta barn, sem ég hafði nokkurn tima séö. Ég hefði auðvitaö átt að komast i samband við frú Smith strax og ég talaði um það við CHarles, en hann sagði, að það gæti beðið svo- litiö. ----------Næsta dag hiíngdi hann og sagðist ekki koma, þvi að Joan væri komin meö verki. Hann virtist eitthvað æstur og ég varð lika óróleg. Hvernig myndi nú ganga hjá henni? Siðdegis gat ég ekki beðiö lengur og ég ákvað að hringja til fæðingardeildarinnar til að vita hvernig henni liöi, en ég fann ekki simanúmeriö i síma- skránni. Ég spurði hjúkrunarkon- una, en híin kannaðist ekki við neinn lækni,sem hét Harbring og ekki heldur neinn Harcourt. Þegar ég lá þarna og hugsaði um þetta, kom Charles. — Þú verður útskrifuð á morgun, sagði hann. Ég kem og sæki þig um ellefuleytið. — Þaö er ágætt. Hvernig liður Joan? Hann hristi aðeins höfuðið. Hvað áttu við? hrópaði ég. — Við vitum ekkert ennþá. Það var sólarhringur frá þvi að hún fór aö finna til. Ég fann sting af ótta, en ég spuröí hann ekki frekar. Honum leið greiniiega nógu illa. Charles sótti mig næsta morgun klukkan ellefu. James var klædd- ur sinu fínasta pússi og honum 36. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.