Vikan

Tölublað

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 21

Vikan - 06.09.1973, Blaðsíða 21
Vikan fer á stúfana i morgunsárið og heimsækir nokkur bakari i höfuð- borginni. þarna og aö hann væri ekki að hugsa um að leggja bakstur fyrir sig. Hann er í menntaskóla á veturna og fer I þriöja bekk MT i haust. Hann sagði, að þetta væri bel borgaö, en svona næturvinna væri dálitið léiöinleg til lengdar. Þegar viö kvöddum, áttu þeir eftir aö vinna i hálftima, en þeir hætta klukkan fimm og taka aðrir bakarar við. Frá Brauð lá leið okkar á Umferðarmiðstöðina. Ekki Vegna þess að þar sé framinn bakstur á þessum tima sólarhrings, heldur vegna þess að þar fást pylsur og kók, og það veröur bara að játast,' að fyrir mann, sem hvorki er bakari að starfi né eðlisfari og reyndar er morgunsvæfur, er slik hressing næstum nauðsynleg til að halda manni við efnið um þetta leyti dags. Annars var mjög fámennt viö Umferðarmiö- stöðina, aðeins einn leigubill með fulla farþega, (nýja reglugeröin er greinilega ekki komin til fram- kvæmda) en þeim mup fleira af máfum. Þeir sveimuðu þar um liklegast I leit að æti, sem eitt- hvað virtist um þarna. Ætli þeir haldi, að Umferðarmiðstööin sé eitthvert frystihús eða hvaö? Ekki eru allir bakarar eins ‘ Frá Umferðarmiðstöðinni héld- um við áleiðis til brauðgerðar Mjólkursamsölunnar, og þáhgað komum viö skömmu siöar, nánar tiltekið tvær og hálfa minútu yfir fimm. Þar hittum við fyrir ein- Jón Jónsson og Ragnar Sigurösson voru að laga vínar- brauö. t forgrunni er vél sem gerir kökukefli ónauösynleg. hvern bakara, sem greinilega hafði farið öfugur fram úr rúminu þann daginn, þvl hann var aliur hinn óhressasti. Ég var reyndar búinn að toga upp úr honum, að fyrsti maður mætti klukkan hálf fjögur þar, en þegar ég spurði hann, I hvað hann ætlaði að nota sykurinn, sem hann var að vigta, horfði hann lengi á mig og sagðist ekkert mega vera’ að þvi að tala við blaðamenn sýbna snemiLa dags. „Alltaf, þegar blaðamenn hafá komið hingað, hafa þeir gert boð á undan sér...” Hafa bakaó í meir en hálfa öld 1 bakariinu i Austurveri við Háaleitisbraut var annað hljóð i mannskapnum. Sigurður Jónsson bakarameistari bauð okkur vel- komna höfðinglegur I bragði (enda þekkti hann Bjarnleif frá þvi þeir voru ungir menn i Eyj- . um) og sýndi okkur bakariið hátt og lágt. Þar byrja þeir að vinna klukkan fimm á morgnana- og byrja á að laga vinarbrauö og rúnnstykki. Sigurður er búinn að vera við- loöandi bakstur, slðan hann var átta ára snáði i Vestmannaeyj- um. Hann var tólf ára gamall, þegar hann byrjaöi að læra, en til Danmerkur fór hann 1931, 19 ára gamall og var þar i tvö ár viö nám og störf að bakaraiön. (Bjarn- leifur bætti við, að þaö hefði þótt mikill viðburður „heima I Eyjum, þegar hann Siggi” fór út til Dan- merkur, þvi slikt skeði ekki á hverjum degi I þá tiö.) A meöan hann tók út seýdd brauð úr ofni á neðri hæðinni, sagði hann okkur frá, að hann hefði stofnsett Höfðabakari þinn 29. nóvember 1942 i Samtúni. Þá var svo mikið að gera, að ég hafði ekki tlma til að fá mér sumarfrl fyrr en 1950. — Annars get ég sagt ykkur það strákar, að vinnan drepur engan. Og það var ekhi á Sigurði aö sjá, að hann er kominn á sjötugsaldur. Hann tók þunga rúgbrauðskassana eins og fis og bar þá yfir gólfið að borðinu, þar sem hann hvolfdi úr þeim. Hann sagði, að hann færi i sund á hverju kvöldi og það væri ábyggilegt, að það gerði sér g’ott. Jón Jónsson er búinn að vinna hjá Sigurði síðan 1960, en hann byrjaði að vinna i bakarii áriö 1919 I bakaríinu Laugavegi 5. Hann sagði, að hann kynni prýði- lega við sig 1 faginu, enda gæti ekki annað verið, þar sem hann hefði fengizt við þetta i meira en hálfa öld. ‘ Ragnar Sigurðsson var búinn að baka i tólf ár og alltaf hjá Siigurðinemá 6 mánuði, sem hann vann i bakarii i Danmörku. Þegar ég spurði hann, hvort ekki væri erfitt að vakna á morgnana, kvaö hann nei við. Hann næöi þvl að Guömundur Pétursson er annar eiganda Breiöholtsbakaris, sem opnaöi 26. febrúar I vetur. Þaö fer ekki milli mála, aö þaö eru væntanleg rúsinubrauö, sem Sturla Birgisson er aö vigta. Þessum deigbollum á plötunni var ætlaö þaö hlutskipti aö veröa kruöur. Vigfús Björnsson „slagr upp” kruöunum. horfa á sjónvarpið, áftur en hann færi aö sofa. Okkur var boöið upp á kaffi og með þvi. Meöan vi6 drukkum úr bollunum ræddum við almennt um bakstur, fótaferðatlma ofc fleira. Kom þá fram, að alltaf vantar bakara til starfa I1 Framhald á bls._35 36. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.