Vikan - 06.09.1973, Síða 27
Mjólkin á Akureyri er mál út af fyrir sig. Reyndar finnur sunnanmaður
ekki mikinn mun á bragöinu, en þaö eru umbúöirnar, sem hvaö
frægastar hafa orðið. Hér um árið birti eitt dagblaðanna mynd af flug-
freyju, þegar hún var að „smygla” „belju” til Reykjavíkur. Fernur og
hyrnur eru nefnilega ekki notaðar, heldur beljur, þ.e. 10 litra mjólkur-
kassar. Þeir sem ekki hafa þörf fyrir 10 lltra mjóik á einu bretti geta
keypt mjólk I eins, og kvart litra mjóikurflöskum, gulbrúnum að lit.
^ N
*
Það er gaman að vera ungur á Akureyri. Þessi börn stilltu sér upp fyrir
ljósmyndarann, og þótti skemmtilegt, þegar „manni var að taka
mynd”.
A leiöinni frá kirkjugarðinum tii flugvallarins er ekiö niöur Búöagil.
Það má muna sinn fifil fegri, þvi nú er það afskekkt, ef hægt er að tala
um afskekktan bæjarhluta.
Það siðasta sem maður sér af Akureyri áður en flugvélin hefur sig til
lofts, er flugstöðin. Árið 1972 flugu 54 þúsund manns með Flugfélaginu
milli Reykjavikur og Akureyrar.