Vikan

Eksemplar

Vikan - 06.09.1973, Side 29

Vikan - 06.09.1973, Side 29
Það hefur tæpast farið fram hjá neinum, að Maggi Kjartans var i Englandi nú i sumar, við upptökuna á fyrstu sóló L.P. plötunni sinni. Hún hefur hlotið nafnið Clockworking Cosmic Spirits og kemur væntanlega á markað eftir rúman mánuð. A plötunni verða 10 lög, öll frum- samin. Upptakan fór fram i stlídiói, sem er i Chelsea i London, nánar tiltekið við Old Church Street eða Gamla Kirkjustræti. Stúdióið lætur ekki mikið yfir sér og yfir- leitt ganga ókunnugir framhjá án þess að taka eftir þvi. Ekki lætur það neitt meira yfir sér, þegar inn fyrir dyrnar er komið, en engu að siður hafa ekki lakari hljóm- sveitir en Jethro Tull og Fairport Convention, ásamt Sandy Denny tekið upp þar. Stúdióið er það sem kallað er, stúdió með hljómburði, þ.e.a.s. hvert hljóðfæri er ekki al- gjörlega einangrað i upptöku. Ef að leikið er á fleiri hljóðfæri en eitt i upptöku, þá heyrist greini- lega ómur. af einu þeirra inn á Keith Richard, gitarleikari Rolling Stones, á i sifelldum erj- um við lögregluna. Hann hefur þegar verið ákærður tvisvar fyrir óleyfilega meðhöndlun á eitur- lyfjum cg hefur fyrir það og ann- aö, hlotið sakaskrá, sem gæti komið i veg fyrir allt spil hans opinberlega með Rolling Stones. Og ekki fer hagur hans batnandi, þvi hann var i siðasta mánuði handtekinn af Scotland Yard lög- reglunni, þegar hún gerði húsleit hjá honum á heimili hans i London. Vinkona hans, Anita Pallenberg leikkona og leikarinn Prince Jean Clossowski voru einnig handtekin. Led Zcppelin.sem verið hefur á hljómleikaferðalagi i Bandarikj- unum að undanförnu, sló gamalt met á hljómleikum, sem haldnir voru i Florida. Eftir að hljóm- sveitin hafði leikið i tvo og hálfan tima, og þar með lokið pró- framminu, tilkynnti Robert Plant, söngvari hljómsveitarinn- ar, að fjöldi áhorfenda á hljóm- leikunum væri meiii, neldur en nokkurn tima áður i heiminum, á hljómleikum hjá aðeins einni ein- stakri rokkhljómsveit. Einnig höfðu komið i kassann meiri pen- ingar en nokkurn tima áður. En hverjir áttu gamla metið? Það voru engir aðrir en Bitlarnir, sem náðu 53.200 manns saman á hljómleika, sem haldnir voru á Shea Stadium árið 1965. Led Zeppelin fékk á þessa hljómleika 55.000 manns og fengu i kassann 309.000 dollara, en Bitlarnir fengu 301.00 dollara. — Nýjasta plata Led Zeppelin selst einnig vel i Bandarikjunum þessa dagana. Houses of the Holy var orðin gull- plata, tæpum 10 dögum eftir aö hún var gefin út i Bandarikjun- um. Georg llarrison er sagður hafa flogið frá Los Angeles til Kanada um daginn, til þess að hitta Paul McCartney þar á laun. Þetta er að sjálfsögðu aðeins ein af þeim gróusögum, sem ganga frá manni til manns, um frægt fólk, en styrkir samt sem áður þá i trúnni, sem halda þvi fram, að Bitlarnir muni koma aftur saman til að hljóðrita. Dave Ball, f.v. gítarleikari Procol Harum, hefur hafið sam- starf með Cozy Powell, sem eitt sinn lék með Jeff Beck, og bróöur sinum, Dennis Ball, en hann lék eitt sinn með John Baldry. Einnig er einhver Frank Aiello með i hópnum og saman hafa þeir stofnað nýja hljómsveit, sem hlotið hefur nafnið Bedlam. Stór plata er væntanleg á næstunni frá þessari nýju hljómsveit og mun Felix Pappalardi vera stjórnandi upptökunnar, en hann lék eitt sinn með hljómsveitinni Mountain. Bob Dylaner sagöur fara fram á milljón dollara fyrirfram- greiðslu fyrir næstu stóru plötu sína, en það eru eitthvað um 87 milljónir. Svo hafi einhver slika peninga handbæra, þá er hér upp- lagt tækifæri til að stofna eigið plötufyrirtæki. upptökurás fyrir annað. Þar af leiðandi ef t.d. fjórir menn eru að taka upp i einu grunnmúsikina, eins og átti sér stað þegar Maggi tók upp, má enginn gera vitleysu, þvi þá verður að byrja alveg upp á nýtt. Hvað sem þvi liður, þá er hljómburður og upptökuskilyrði i stúdióinu alveg ágæt. Sérstaklega þykir hljómburöur við upptöku á söng, vera góður. Það kom sér vel hjá Magga, þvi allur söngur á plötunni heyrist mjög skýrt og vel og er hvergi yfirgnæfður af hljóð- færaleiknum. Myndin hér með þessu spjalli, var tekin i stúdióinu i London, Sound Techniques, þegar Maggi var að hljóðrita sönginn á plötunni. Og að sjálfsögðu er það Maggi Kjartans sjálfur, sem er við hljóðnemann. ♦ John Lennon kemur æ á óvart með nýstárlegu útliti sinu, svo ekki sé meira sagt. Myndin, sem fylgir, var tekin i New York ný- lega, og sýnir þau hjónakorn, John og Yoko, saman á einhverri sýningu. John gaf þá skýringu á útliti sinu, að það væri meint sem symbólskt mótmælaútlit.ef það er þá hægt að segja það svoleiöis. Og tilefnið var ákæra á hendur Michael X, sem er þekktur leið- togi svartra baráttusamtaka i Bandarikjunum. Hvers vegna Yoko lét ekki snoðklippa sig lika, veit enginn, en ólikt yröi það sterkari leikur. Maggi Kjartans 36. TBL VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.